Vikan - 27.10.1960, Page 24
— Hverjir eru hinir nýju meðlimir
hl jómsveitarinnar ?
— Þar skal telja fyrstan hinn
landskunna söngvara Ragnar Bjarna-
son. Hann söng með hljómsveitinni
í Breiðfirðingabúð fyrir nokkrum
árum og stóð þá til að hann færi með
henni i Sjálfstæðishúsið, en það varð
ekki af þvi þá. Undanfarin ár hefur
hann m. a. starfað með hinum
þekkta KK-sextett og hljómsveit
Björns R. Einarssonar — en nú er
hann sem sagt kominn aftur, og betri
en -nokkru sinni fyrr.
— Mun Ragnar syngja svipuð lög
og fyrri söngvari hljómsveitarinnar ?
— Já, að nokkru leyti. Hann mun
auðvitað syngja þau dægurlög, sem
efst eru á baugi hverju sinni, en ann-
ars er hægt að velja jafn góðum
söngvara og Ragnari nær því hvaða
verkefni sem er, hann skilar ölium
lögum með jafn mikilli prýði, islenzk-
um sem erlendum, gömlum völsum
sem rokklögum.
— Og hinir mennirnir?
— Píanóleikarinn er Magnús Ingi-
marsson. Hann er fyrir löngu orðinn
þekktur hljómlistarmaður, en kom
eiginlega fyrst fram í dagsijósið, er
hann fór að leika með hljómsveit
Gunnars Ormslev í Framsóknarhús-
inu, er það tók til starfa. Annars
halði Magnús áður leikið í nokkrum
samkomuhúsum hér og á harmoniku
víða úti um sveitir, en jafnhliða því
verið prentari að atvinnu. í fyrravet-
ur lék hann einnig í Framsóknar-
húsinu, en hafði þá sína eigin hljóm-
sveit og sá m. a. um útsetningar á
lögunum í söngleiknum „Rjúkandi
ráð“ er þar var sýndur og þótti hafa
unnið þar, sem endranær, gott starf.
Einnig hefur hann gert útsetningar
fyrir marga útvarpsþætti og hljóm-
plötur, sem út hafa komið, og er sú
vinna til fyrirmyndar. Magnús er og
ráðinn se.n útsetjari i hljómsveit
Svavars Gests og verða starfskraftar
hans áreiðanlega hljómsveitinni mik-
ill styrkur, því auk þess að vera snjall
og fljótvirkur útsetjari, er Magnús
jafnvígur á flestar tegundir músíkur,
rokklög og jazzlög jafnt sem söngút-
setningar og revíutónlist.
— Og svo er einn nýr maður
ennþá?
— Það er gítarleikarinn örn Ár-
mannsson. Hann er aðeins átján ára,
en kann margt fyrir sér, þótt ungur
sé og hafi fengið sáralitla eða enga
tilsögn. Örn var hljómsveitarstjóri
fyrir góðu ári í „Fimm í fullu fjöri"
og lék með „Atlantic" á Akureyri í
sumar. Örn er áhugasamur og vænti
ég góðs af samstarfi við hann um
leið og ég vona að vera hans i hljóm-
sveitinni verði honum góður reynslu-
skóli, því Örn á áreiðanlega eftir að
leika fyrir dansi í fjölda ára í viðbót.
— Og þá eru tveir sem verða kyrr-
ir í hljómsyeitinni auk þín?
— Já, þeir eru bassaleikarinn,
Gunnar Pálsson, sem leikið hefur með
mér siðan í janúar s.l. og svo þúsund-
þjalasmiðurinn Reynir Jónasson, sem
byrjaði fyrir tæpum fjórum árum og
hefur orðið landskunnur hljóðfæra-
leikari á þeim tíma. Og nú hefur hann
enn á ný látið sér vaxa alskegg, svo
það má kannski flokka það einnig
undir breytingu.
— Nokkrar breytingar á lagavali?
— Það er litlu hægt að breyta, því
við verðum að leika alla tegund dans-
músíkur. Það er mikið að aukast að
hljómsveitir sérhæfi sig. Sumar leika
aðeins rokklög, aðrir gömlu dansana
og enn einn hópurinn sígild dans- og
dægurlög. Við verðum hins vegar að
vera með eitthvað af öllu og líklega
eina hljómsveitin sem verður að gera
það. En það kostar gífurlega vinnu
við æfingar. Annars verður alltaf
reynt að taka eitthvað nýtt fyrir,
eitthvað sem fólkið hefur gaman af
að heyra og sjá.
— Hvað viltu segja um hina miklu
aðsókn unglinga, sem verið hefur að
Sjálfstæðishúsinu undanfarið?
— Ég held að það hafi aðeins ver-
ið stundarfyrirbrigði. Unglingarnir
áttu satt að segja ekki í önnur hús
að venda. Samkomuhúsin sem selja
mat og eru opin frá kl. 7 á kvöldin
vilja þetta fólk ekki til sín og gera
allt fil að fæla það frá. En nú eru
unglingarnir hættir að koma í Sjálf-
stæðishúsið á laugardagskvöldum því
laugardagsdansleikir frá 9—2 hafa
verið teknir upp að nýju. Þeir nutu
gifurlegra vinsælda fyrr og vona ég
að við fáum að sjá okkar gömlu og
góðu gesti aftur, sem ekki töldu laug-
ardaginn fullkomnaðan, nema hann
endaði með dansleik í Sjálfstæðishús-
inu. Og nú, þegar framhaldsskólarnir
hafa tekið til starfa, þá fara ungiing-
arnir að minnka heimsóknir sínar í
,.Húsið“ einnig á föstudögum og
sunnudögum, því auðvitað ætti skóla-
fólk sízt að skemmta sér á samkomu-
stöðum þar sem vín er framreitt.
Annars er skemmtilegt að spila fyrir
unga fólkið, það fylgist vel með þvi
sem hljómsveitin gerir og klappar
óspart lof í lófa ef því líkar vel og
ég held að þið getið slegið botninn
í þetta með því að segja að það hefir
fullkomlega sætt sig við Þær breyt-
ingar sem orðið hafa á í hljómsveit-
inni, ef marka á undirtektirnar, sem
við höfum fengið þessu fáu kvöld sem
við höfum leikið saman.
Hljómsveit Svavars Gests, eins og
hún var skipuð, er hún lék í Breið-
firöingabúö áriö 1956. Frá vinstri:
Ragnar Bjarnason, Axel Kristjánsson,
Jón Sigurösson, Svavar Gests og
Árni Elvar. vj
A
Hljómsveit Svavars Gests eins og
hún er nú skipuö. F. v.: Reynir
Jónasson, Magnús Ingimarsson, Svav-
ar Gests, Gunnar Pálsson, örn Ár-
mannsson og Ragnar Bjarnason.
skrítlur
„Lœknir, ef ég gengst undir upp-
skuröinn, get ég þá veriö kominn
heim aftur eftir tvœr vikur og farinn
aö spila á fiöluna mína?“
„Ja, fiölu ■— því get ég ekki lofaö.
En síöasti sjúklingurinn, sem ég skar
upp var farinn aö spila á hörpu eftir
12 tíma.“
„Hvernig var veöriö í London?“
„Eg sá þaö ekki. Þaö var svo mikil
þoka.“
„Anna er aö veröa gráhærö.“
„Af hverju?“
„Af áhyggjum yfir því, hvort hún
á aö hafa háriö á sér Ijóst eöa rautt.“
„Maöur fyrir borö,“ kallaöi ungi
sjóliöinn, sem var í sinni fyrstu ferö.
Hiö stóra skip var stöövaö í of-
boöi, en þá fór sjóliöinn til skipstjór-
ans og sagði:
„Afsakiö herra, en mér skjátlaöist
er ég kallaöi „MaÖur fyrir borÖ“.
„Guði sé lof,“ sagöi skipstjórinn og
gaf skipun um aö skipiö yröi sett á
fulla ferö aftur.
„ÞaÖ var,“ hélt sjóliöinn áfram,
„ ... nefnilega kvenmaöur."
Hann: „Eg ætla aö hringja í yöur
á morgun, hvaö er símanúmeriö
yÖar?“
Hún: „ÞaÖ er í símaskránni.“
Ilann: „Þaö var gott, en hvaö heitiö
þér?“
Hún: „Nafniö mitt er í skránni
líka.“
Flugvélin var komin hátt á loft, er
flugmaöurinn lieyrist fara aö hlœja
ofsálega.
„Hvaö er svona fyndiö?“ spyr einn
farþeginn.
„Ég er aö velta því fyrir mér, hvaö
þeir munu segja á vitfirringahælinu,
þegar þeir komast aö því aö ég hef
sloppiö þaöan út.“
Hann: „Hvernig getur kvenfólkiö
sagzt hafa veriö aö verzla, þegar þaö
kaupir ekki neitt?“
Hún: „Ja, hvernig er meö ykkur
karlmennina, þegar þiö fariö í veiði-
túr ?"
Lögregluþjónninn (viö mann sem
stendur fyrir utan hús eitt Jclukkan
þrjú um nótt): „HvaÖ ert þú aö gera
hér ?“
„Ég gleymdi lyklunum mínum. Og
ég er aö bíöa eftir því aö hrakkarnir
mínir komi heim og opni fyrir mér.“
híjómlist
Það vekur að
sjálfsögðu tals-
verða athygli, er
miklar breyting-
ar verða í hljóm-
sveitum hér í
bænum, hvað
starfslið snertir,
og ekki sízt ef
mannaskipti
verða i hljóm-
sveitum þeim,
sem notið hafa mikilla vinsælda frem-
ur öðrum. Illjómsveit Svavars Gests
hefur í langan tíma verið ein sú
þekktasta, bæði hér í Reykjavík og
einnig úti á landsbyggðinni. Og um
vlnsældir hennar vitnar bezt hin
mikla aðsókn að Sjil.stæð.'shúsinu
undanfarið ár og að skemmtunum
Þeirri, sem þeir félagar héldu úti á
landi í sumar sem leið.
Við h.ttum Svavar að máli um dag-
inn og lögðum íyrir hann nokkrar
spurningar varðandi hinar nýorðnu
.breytingar.
— Heidurðu að vinsældir hljóm-
sveitarinnar haldist ekki þrátt fyrir
.þessi skipti?
— Það er ekki gott að segja um
það — ef til vill ekki hjá ákveðnum
aldursflokki Annars er tilgangur
hljómsveitarinnar ekki eingöngu það,
að afle. sér vinsælda Við erum hljóð-
færaleikarar að atvinnu og leggjum
aðeins áherzlu á, að leika sem fjöl-
breyttasta dansmúsík, því við verðum
að leika fyrir alla aldursflokka, allt
frá 3—4 ára um jólin til 40—60 ára á
árshátíðum — og svo unga fólkið þess
á milli.
— En auðvitað viljið þið nú vita
af því að þið njótið vinsælda?
— Vissulega er skemmtilegt að geta
leikið tónlist, sem fellur öllum þeim
í geð, sem eftir henni þurfa að dansa
hverju sinni. Á því atriði byggjast
vinsældir fyrst og fremst.
24 vijían