Vikan


Vikan - 27.10.1960, Side 31

Vikan - 27.10.1960, Side 31
I Borgin í skóginum i' ramhald af bls. 11. n-g sienu a grjoti götunnar meS verziamr ant i Knngnm mig og noru a iónuo streyma út og inn i nuoirnar. Uer virOist eiiki ganga nærri eins mikið á og um iniðjan aag a kaugaveginum. lóikið fer sér heiuur hægt við innkaupin, ei snyrtuega Kiætt og djarfiegt i l'ram- guiigu. ivianni skust ósjálfrátt, að peua ioiií haíi eiiki storan pening lram yur sjaiisagðar þariir og hagi ser par eiur. Manni kemur ekki í hug nruði eða ohof, þegar maöur viroir petta lolk iynr ser. Manni kemur 1 hug nægjusamt iólk, sem eJua eyoir pemugum hara til að eyoa penmgum, eins og iðuiega lienair isienuinginn. Eg geng íyrir næsta götuhorn og er á samri stundu koininn inn i einn hinna metri skrúðgarða horg- arinnar. Parna eru stónr grasveilir i sitjóii trjagróðursins. Og hér í vorsms græna grasi er breiða af fóiki, sem ekki sér út yfir. h'iestir eru á sundboium einum fata, sund- boium í öiium hugsaniegum litum. Og pað eru allt bjartir og heitir litir, iitir vors og gróðurs. Ég hef engan sundboi meöierðis og verð pvi að iata mer nægja með að tina af mér oían að mitti. Og nú hugsa ég aöeins skemmtiiegar svifiéttar hugsanir: Ef jörðin hefði ekki tekið upp á þeim skringitiktúrum, að haiia unair íiatt á sporhraut sinni, heidur látið sér lynda að þeytast i lóðrettu ástandi um himinviðátt- urnar eins og systur hennar, pá væri i dag og ulla daga eilíft sumar um miðbiii jarðar, en eilífur vetur hvarvetna annars staðar á yfirborði hennar. Og maðurinn pekkti ekki annað en sólar megin. Hús hans væri enn í dag trjákrónan, fæða hans sjálfsprottin aldin, menning lians einfaldleiki hjartans, tízka hans mittislindinn, leikur hans — að elta stúlkuna inn í skóginn. Það er afar skemmtilegt að liggja í grasinu og hugsa svona hugsanir. En loks lcemur þar, að ég spila und- ir mig fótunum og geng á útiveit- ingastað. Það er eins og vant er, þarna er hver stóll setinn. Brátt sé ég þó, hvar ung stúlka stendur upp frá tveggja manna borði, en piltur- ir.n situr eftir. Af hverju fer hann ekki með henni? Sjálfsagt kemur liún aflur. En timinn líður og hún kemur ekki aftur. Mér verður óneit- anlega tíðlitið á pillinn. Það er ekki að sjá það í svip hans, að honum þyki það neitt miður, að stúlkan sé á bak og burt. En hann sér víst, hvað mér líður, og bendir mér að koma. Þetta er myndarpiltur, ljós yfirlitum og með farmannsaugu eins og allir myndarmenn i þessu landi. Ég geng til hans, tek mér sæti og spyr: — Kemur ekki stúlkan aftur? — Nei-nei. — Er hún ekki vinkona þín? — Nei-nei. — Nú, svo þið hafið bara lent svona óvart við sama borðið. Hann hlær, svo segir liann: — Já, það var svoleiðis. Ert þú íslendingur? — Já, við erum hér nokkur sam- an á lystireisu um Norðurlönd. — Er það ekki afar kostnaðar- samt? — Jú, það er óhemjudýrt. Ertu búinn að fara í sumarleyfið þitt? — Nei, en ég er á förum, ferðast einn, á hjóli með lijálparmótor. — Og hvert ferðu? — Um Svíþjóð, Danmörku, Hol- land, Belgíu, Lúxemburg, Frakk- land og siðan til Englands. — Það var bara ekkert minna, segi ég. Hann hlær að undrun minni: — Svona ferðast þúsundir ungra Norðurlandabúa, segir hann svo. — Það er bæði ódýrt og skemmtilegt ferðalag. — En ef kémur rigning? spyr ég. — Þá fer inaður bara í regnkáp- una og vaðstígvélin, segir hann. — En ef vélin vill ekki ganga? spyr ég. — Þá fer maður bara í verkfæra- kassann, segir hann. — En ef þú skyldir villást af réttri leið? spyr ég. — Þá lítur maður bara á landa- bréfið, segir hann. — Þú verður þá aðeins fyrir skemmtilegum töfum, eins og ef ókunn stúlka sezt óvænt við borð- ið hjá þér — líkt og áðan. Hann lilær. — En hvað gerist, þegar þú kem- ur lieim úr sumarleyfinu? spyr ég. — Ég kem ekki nærri strax heim aftur. Ég ætla í landbúnaðarháskóla i Englandi. Ég fæ að vita að pilturinn á heima i nágrenni Óslóarborgar. Þar á faðir hans, sein er lestarstjóri, mikið og gott land, — tilvalið undir fyrir- myndarbú. Og svo ætlar sonurinn að gerast fyrirmyndarbóndi, þegar Bretinn hefur kennt honum allt það helzta sem liann kann í búvisindum. Og ég fæ að vita talsvert: Það er hægt að ferðast um allan heiminn á hjóli mcð hjálparmótor, bara ef maður kærir sig um það. Og það er hægt að keppa að 10 markmiðum i einu, Ijara ef maður kærir sig um það. Og heimurinn er auðugri og betri en þeir allra bjartsýnustu hafa gefið í skyn, bara ef maður kærir sig um að trúa því ... Litlu seinna berst ég alveg óvart með straumnum inn á Karls Jó- hannsgötu. Þar hitti ég fljótlega fyrir nokkra af félögum mínum, sem eru að spóka sig í umferðinni: -— Hvað á að gera i kvöld? spyr ég. Ég fæ ekkert ákveðið svar. Hér er úr vöndu að ráða, það er um svo margt að velja. Én að lokuin verður næturklúbbur að sjálfsögðu lyrir valinu. Skemmtiferðafólk hef- ur þær hugmyndir, að ævinlega muni gerast eitthvað hörkuspenn- andi í næturklúbb. Næturkiúbbarnir hjá Norðmönnum byrja kl. 8. Og gamanið hefst með því að klúbb- gestir borða þríréttað. Við erum ný- búin að borða þríréttað þegar við komum i klúbbinn, en endurheimt- um matarlystina samstundis að nýju. Við erum svo heppin að fá heilag- fiski, annars hefur fiskur ekki sézt l'yrr á veiziuborði okkar í þessari reisu. Og ég skal segja þér: Ég hefði komið hingað, þótt ekki hefði verið boðið upp á annað en heilagfiski. Það er eins gott og heima í Súg- andafirði. En á meðan ég er að gæða mér á þessum helgidómi, fara fram ýmis skemmtiatriði á sýningarpalli, upplýstum marglitum kastljósum. Brátt eru lúðrar þeyttir af miklu kappi. Þetta hlýtur að boða eitthvað stórkostlegt. Ég ríf mig með öllu upp úr átinu til að missa ekki af dýrðinni. Og sjá: Strípuð kven- persóna hoppar um sýningarpallinn með stórum læraskellum. Þetta á að vera yndisdans. En þessi kvensa er heldur hjassaleg til að leika þokkagyðju. Sjálfsagt á hún í fyrir- tækinu og verður því að teljast nauðungarnúmer á prógramminu. En ég þakka fyrir heilagfiskið. Eftir miðnætti erum við öll á göngu uin Karls Jóhannsgötu. Það eru nælonljós í öllum tilbrigðum litrófsins, og mannhafið þokast áfram um gangstéttirnar. Ungur maður hágrætur í örmum lögreglu- manns, annars er tiltölulega kyrrt yfir umferðinni. Á vissum parti göt- unnar er þó fátt eitt að finna annað en lausungarlýð. Þarna setjum við á svið svolítið leikspil. í þessari kómedíu hvilir allur vandinn á herðum einnar kvenpersónu. Hverri af stiilkunum eigum við að trúa fyrir þessu vandasama hlutverki? Jú, dökkhærð, grannvaxin stúlka í gulum pokakjól verður fyrir valinu. Hún fær þessi fyrirmæli: — Þú átt að ganga niður á næsta götuhorn og til baka aftur. Þú átt að hafa alveg sérstakt göngulag og framkomu. Þú átt að ganga hægum, mældum skrefum, með niðurslegin augu, þorstlæti í svipnum og halda töskunni á mjöðminni. Svo skulum við sjá hvað skeður. Stúlkan leggur á djúpið, og brell- an heppnast lrábærlega vel. Slæp- ingjarnir flauta á stúlkuna og kalla til hennar, biðla til hennar, Og gleðikvendin, sem sjá i henni skæð- an keppinaut, láta eklci sitt eftir liggja. Þær hrópa: — Hú, við eigum miklu skárri þoka til að færa þig í. Önnur rödd: — A-a-æ, þú crt afdönkuð. Stúlkan lieldur áfram hinni fyr- irhuguðu göngu án þess að láta frýjuyrði gleðikvennanna eða lof- tungur slæpingjanna trufla sig í hlutverkmu. Og hún kemur sigur- sæl i höfn til okkar aftur, er með heilan skara af elskendum á hæl- um sér. En við kempurnar erum nú kannski menn til að hrista af okkur nokkra æpandi stráka, enda kyrrir fljótlega í kringum okkur. Leiksýningin er á enda. -fc Dásamlegt, alltaf ung og falleg, ég noia daglega Rósol-Crem með A vítamínl. Það hefur undraverð ihrif á húðina, engar hrukkur, en mjúk og falleg húð. Það gjöra emnÍR tugþúsundir annarra fslendinga. Ef þér eða fyrirtieki yðar viljið bera fjöldan- um fregnir af vörum yðar eða þjónustu þá segið sögu yðar her i smáauglýsingadátkum VIKBNNAK. Hringið í 35320 og fáið upplýsingar um verð og kjör. VIKÁN 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.