Veðrið - 01.09.1969, Blaðsíða 9
á húfi. Á engan er hallað, þótt sagt sé, að í þessari list standi Björn Pálsson
fremst íslenzkra manna, og jafnvel þótt víðast væri leitað um lönd.
Ég hef í þessu rabbi haft í huga þá, sem fljúga smávélum í innanlandsflugi,
og þá gjarnan undir skýjum. Enn verður það svo að nokkru leyti, einkum
vegna aukins einkaflugs. En sem betur fer er farþegaflug orðið miklu óháðara
veðri. Þá er ekki skreiðzt undir skýjum, heldur notuð fylgdartæki og flogið
hiklaust gegnum ský sem heiðríkju. Loftvog og radíohæðarmælir segir til, hvort
haldið er öruggri hæð, en mjóir geislar frá flugvitum á jörðu niðri eru þræddir
eins og þjóðvegir. Ratar í flugvél og á flugvelli veitir frekara öryggi, ásamt
mörgum öðrum vélabrögðum.
Segja má, að þessi tækni dragi nokkuð úr jreirri þýðingu, sem starf veður-
fræðinga hefur fyrir flugið. En við getum verið harla ánægðir með það. Allt
okkar starf miðar að því, að veðrið komi sem sízt á óvart og angri sem minnst.
Jafnframt leitast aðrir við að brynja menn gegn áhrifum þeirra veðra, sem við
erum að reyna að sjá fyrir. Og lengi enn munu hvorir tveggju hafa nokkuð
að iðja.
P. B.
Skörp veðraskil og óvenjulegt hitafall
að Hornbjargsvita
í veðurathuganabók fyrir febrúar 1969 skýrir Jóhann Pétursson vitavörður
frá fádærna snöggum veðrabrigðum að Hornbjargsvita. Farast honum svo orð:
„Minn fæðingarmánuður heilsaði með frosti af norðaustri, en þakkaði fyrir
sig með sjö stiga hita að sunnan. Mest varð eyrnanepjan í suðlægri átt þann
sjötta — 20.6 stig. Annars var hann margátta með rok í bland og hafís á fjörum
ásamt þeim skörpustu veðraskilum, er núverandi Hornstrendingar höfðu lifað.
Kl. 12 á hádegi jj. 16. voru 9 vindstig af suðri með 6 stiga hita. Staddur utan-
dyra kl. 12.20 horfði ég til fjalls í vestur, þegar öndverðir vindar léku um kinnar
mér. Ég hafði spyrnt móti sunnan stormi, og leit nú um öxl: og stóð jrá norðan
rokveggur alhvítur meðfram Bjarginu og féll jtegar yfir jtar sem ég stóð. Og
uppaf Bjarginu hófst digur strókur með gífurlegum sviptingum og náði brátt 200
metra hæð. Þar sveigði hann til hafs, en skarst á nær sama tíma við Bjargsegg,
og máðist út neðanfrá. Ég hafði þegar tal af orðmjúkum starfsmanni Veðurstofu
og tjáði honum feiknin: — síðan beint út í mælahús, og var j)á komin norðan
hríð og 4 stiga frost.“
Við jícssa myndríku Irásögn Jóhanns er aðeins j)ví að bæta, að frá kl. 12 til
15 féll hitastig á Hornbjargsvita úr 6.2 í —9.3 stig eða um 15.5 stig á þremur
stundum. Frá kl. 12 til 18 féll hitinn um 17.9 stig, en frá kl. 9 til 18 um 19.2 stig.
VEÐRIÐ •— 43