Veðrið - 01.09.1969, Side 16
sendar jarðskjálftastofnunum víða um lieim. Mælarnir voru settir upp í gamla
sjómannaskólahúsinu við Öldugötu, en fluttir í nýja sjómannaskólahúsið árið
1946. A síðustu árum hafa miklar framfarir átt sér stað einnig á þessu sviði.
Nýir og næmari mælar liafa verið keyptir, og nú sem stendur eru jarðskjálfta-
mælingar gerðar á 5 stöðum hér á landi. Meðal þeirra er liin mjög fullkomna
jarðskjálftastöð á Akureyri, sem Veðurstofan starfrækir samkvæmt beiðni Unit-
ed States Coast and Geodetic Survey, en sú stofnun hefir lagt til tækin í þessa
stöð.
Hafís. Þegar íslendingar tóku við veðurathugunum hér á landi voru hafís-
athuganir frá íslenzkum veðurathugunarmönnum og íslenzkum skipum undan-
skildar. Þær voru um langt árabil sendar hafrannsóknadeild dönsku veðurstof-
unnar, sem sá um úrvinnslu þessara gagna. Hins vegar er gert ráð fyrir því í
lögum bæði frá 1926 og 1958, að Veðurstofan ætti „að safna nákvæmum fregn-
um um hafís og senda út ísfregnir til skipa þegar ástæða er til“. Þetta hefir
Veðurstofan gert síðan, að styrjaldarárunum undanteknum, en þá var ekki leyft
að senda hafísskeyti frekar en veðurskeyti. Skýrslur unt hafís á fiskimiðum og
siglingaleiðum umhverfis landið voru síðan birtar í Veðráttunni. — Á yfirstand-
andi ári liefir verið veitt nokkur fjárhæð til hafísrannsókna, og kemur árangur
af þessu væntanlega í ljós áður en langt um líður.
Húsnaði Veðurstofunnar. Árið 1919 flutti Löggildingarstofan í fjögurra lier-
bergja íbúð að Skólavörðustíg 3, og þar var Veðurstofan einnig til húsa, fyrst
með Löggildingarstofunni, en síðan ein. Árið 1931 flutti stofnunin í hið ný-
reista hús Póst- og símamálastjórnarinnar að Thorvaldsensstræti 4. Um báðar
þessar vistarverur má segja, að þær voru of litlar, og sérstaklega voru þrengslin
ofboðsleg síðustu árin áður en flutt var í hið nýja sjómannaskólahús, en það
var í desembermánuði 1945. Stofnunin fékk þar miklu stærra búsnæði, en það
varð þó bráðlega of lítið, þar sem flugveðurþjónustan bættist þá við. Það kom
sér því að vissu leyti vel, að flugmálastjórnin óskaði eftir því, að Veðurstofan
yrði staðsett á Reykjavíkurflugvelli. Var útvegað húsnæði í flugturninum, en
aðeins fyrir þær deildir stofnunarinnar, sem unnu við móttöku veðurskeyta og
samningu á veðurspám. Hefir Veðurstoian í Reykjavík síðan starfað á tveimur
stöðum í allmikilli fjarlægð hvor frá annarri, og er það alls ekki heppilegt.
Framangreindar deildir Veðurstofunnar hafa verið til húsa á flugvellinum frá
])ví í janúarmánuði 1950, fyrst í gamla flugturninum, en síðan í þeim nýja.
Flugveðurstofan á Keflavíkurflugvelli er til húsa í flugstjórnarbyggingunni þar.
— Þar sent veðurathuganir í Reykjavík eru gerðar af starfsmönnum stofnunar-
innar, hefir veðurathugunarstöðin í Reykjavík orðið að flytja með stofnuninni,
var fyrst neðarlega á Skólavörðustígnum, síðan á þaki Landssímahússins, svo
við Sjómannaskólann og síðustu 20 árin á Reykjavíkurflugvelli.
Á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir 51 föstum starfsmanni á Veðurstofunni,
en laun 24 þeirra eru endurgreidcl samkvæmt samningi við Alþjóðaflugmála-
50 — VEÐRIÐ