Veðrið - 01.09.1969, Blaðsíða 30
KNÚTUR KNUDSEN:
Vorið og sumarið 1969
April. Framan af mánuðinum var veðráttan breytileg, en suðlæg átt þó
ríkjandi. Stundum var nokkuð livasst, þó einkanlega í kringum páskana.
Dagana 10. og 11. var norðaustan þræsingur með talsverðu frosti og hríðar-
hraglanda á Vestfjörðum og Norðurlandi, en ekki náði norðan áttin lengra
suður í það skiptið. Veðrið stilltist og batnaði um miðjan apríl og dagana 18.,
19. og 20. var hlý sunnan átt og gott vorveður.
Síðan kólnaði aftur og á sumardaginn fyrsta og næstu fjóra daga var enn
norðaustan þræsingur og víðast hvar éljagangur nema á Suðvesturlandi. Síðustu
dagarnir voru hægviðrasamir og sunnan lands sæmilega hlýtt á daginn, en fyrir
norðan var vægt frost.
Mánuðurinn í heild var kaldur og alls staðar snjóléttur, en enginn gróður
var kominn í mánaðarlok.
Mikill hafís var á utanverðum Húnaflóa og við Horn allari apríl og á stund-
um ófær skipum. Hrútafjörður fylltist og ís fór að sjást frá Blönduósi laust
fyrir mánaðamót.
Á siglingaleiðinni fyrir Norður- og Norðausturlandi sást smávegis jakarek
öðru hverju í apríl.
Maí var hægviðrasamur, mjög úrkomulítill og fremur svalur, en víðast hvar
var sólríkt. Undantekning var Suðausturlandið, en þar var bæði hiti og úrkoma
nálægt meðallagi. Lengst af var hæg norðlæg átt allt fram til þess 18. og síðan
aftur síðustu dagana. Mikill klaki var í jörð og tíð næturfrost um mest allt
land.
I'etta tíðarfar var hægstætt fyrir sauðburð, sjósókn og allar samgöngur, en
gróður allur var óvenju lítill og sums staðar nær enginn í mánaðarlok.
Mikill hafís var á Húnaflóa og út af Skaga allan mánuðinn. Var oftast fært
en seinfarið þá leiðina til Norðurlandsins. Ófært liefur sennilega verið í sjö
daga. Siglingaleiðin til Norðurlands fyrir Langanes var oftast lokuð fram til 20.,
en skip komust þó í gegn um ísinn öðru hverju. Eftir þann 20. var enn ísröst
tit frá Langanesi, en hún var lítið til trafala. Hafísinn lokaði ýmsum liöfnum
við Húnaflóa og á Norðausturlandi langtímum saman í maí, en sigling var
jafnan greiðfær frá Skaga að Sléttu.
Júni. Dagana 12.—14. var norðaustan kaldi með slyddu á Norður- og Austur-
landi, en annars má segja, að sunnan og austan áttir liafi ráðið ríkjum. Þokur
voru mjög tíðar á Austfjörðum og við sjóinn fyrir norðan og norðaustan. Var
þar af þeim sökum lágt hitastig. Annars staðar var fremur hlýtt, en lieldur var
votviðrasamt sunnan og vestan til á landinu. Sprettutíð var því góð, en klak-
64 — VEÐRIÐ