Vikan - 02.02.1961, Side 4
Málverk frá námsárunum í París: Nakin fyrirsæta í her-
bergi Picassos. Um þær mundir hreifst hann mjög af Tou-
louse-Lautrec.
t
<] Nú er Picasso 79 ára og lítur þannig út.
Stúlka að- teikna, olíumynd eftir Picasso síðan 1935. Sem
fyrirmynd notaði hann eina af fylgikonum sínum, Doru
Maar.
BÆRINN MALAGA á Suður-
Spáni er lágreistur og fólkið
þar hefur löngum búið við
mikla fátækt. Um þetta hef
ég lesið í bókum en get ekki lýst
staðnum af raun. Aftur á móti getur
Pablo Picasso það, ef þið skylduð
einhvern tima hitta hann. Picasso
fæddist í Malaga árið 1881. Á Spáni
er sá siður ríkjandi, að börnunum
er frjálst að kenna sig jafnt við
móður sem föður. Pablo hallaði sér
fyrst að ættarnafni föður sins en
þegar hann var sextán ára bætti
hann við ættarnafni móður sinnar,
Maríu Picasso. Og þegar stundir
liðu varð Picasso-nafnið yfirsterk-
ara enda hljómmeira og sjaldgæfara
en þitt. Árið 1896 fluttist fjölskyld-
an búferlum til Barcelona. Faðir
Pablos tók við prófessorsembætti við
Listaháskólann þar. Nú upphófst
skemmtilegur timi fyrir drenginn.
Hann naut þess í rikum mæli að
eiga heima í stórri, litríkri og
hávaðasamri borg. Hann hafði frá
öndverðu sýnt góða hæfileika til að
teikna og mála enda leið ekki á
löngu, þar til hann þreytti inntöku-
próf við Listaháskólann. Flestir um-
sækjenda voru vanir að glíma við
prófverkefnið í mánuð en Pablo
varð ekki skotaskuld úr að leysa
það á einum og sama deginum.
Svipað afrek vann hann nokkru sið-
ar við San-Fernando-skóIann i
Madrid en honum leiddist dvölin í
höfuðborginni og hvarf aftur til
Barcelona.
Barcelona — gamla höfuðborgin
í Katalóníu — var ííflegasta borg
Spánar í lok 19. aldar. Áhrifa
spánsk-bandariska stríðsins gætti
þar ekki eins mikið og í Madrid.
Og sem mikil hafnar- og viðskipta-
borg var hún næmari fyrir slögum
umheimsins í menningarmálum og
listum. Á kaffihúsinu Fjórir kett-
ir — sátu ungir menn og ræddu mál-
cfni dagsins af eldmóði. Við skulum
beina athyglinni að fjórum þeirra:
Manolo myndhöggvara, Sabartés
skáldi, Ramón Casas og svo vitan-
lega Pablo Picasso. Casas var sjálf-
kjörinn leiðtogi þeirra félaganna og
hátt yfir þá hafinn á marga lund.
Hann var þroskaðri en hinir, betur
heima i deiluefnum samtiðarinnar
og gaf þar að auki út tímarit. Því
hefur verið haldið fram, að Ramón
Casas hafi haft mikil áhrif á Pablo
um það leyti, sem hann stundaði
hvað mest kaffihúsin í Barcelona
og naut þess að vera ungur sveim-
hugi í hjarta stórborgarinnar. Það
skal ekki dregið í efa. Pablo var
sextán ára um þessar mundir og
efndi til fyrstu sýningarinnar af
ótal mörgum. Menn tóku eftir henni
og blöðin skrifuðu hlýlega um hana
en enginn hreifst verulega með.
Laust fyrir aldamótin sneri einn
af beztu vinum Picassos aftur heim
til ‘Spánar eftir skamma dvöl i Par-
ísarborg. Hann hafði frá mörgu og
skemmtilegu að segja. Gamlar fylk-
ingar voru að riðlast á bökkum
Signu en nýjar að myndast í þeirra
stað. Nokkrir málarar, sem nánast
hafði verið litið á sem óbetranlega
sérvitringa, höfðu skyndilega tekið
að vaxa i augum heimsins. Ungu
Spánverjana þyrsti i að kynnast
þessum hræringum i háborg list-
anna og er farareyrir var fenginn
héldu þeir af stað í stutta kynnis-
för til Parísar. Á næstu árum var
Picasso á stöðugu flakki yfir Pyr-
eneafjöll. Það var eins og hann
gæti ekki almennilega ráðið við sig
hvorum megin þeirra hann ætti að
búa. Loks settist hann að í Paris
árið 1904.
Heimili hans stóð uppi á Mont-
martre-hæðinni í gömlu húsi innan
um skrifstofumenn, þvottakonur og
trúðá. Há og myndarleg kennslu-
kona, Fernande Olivier, sem var
ástkona hans í nokkur ár, hefur lýst
honum þannig: Hann var lítill mað-
ur, dökkur á húð og hár, þrekinn,
órólegur i fasi, djúpeygur og snar-
eygur. Hreyfingar hans voru stirð-
legar, hendurnar eins og á konu,
fötin ljót og snjáð. Þykkur gljáandi
hárlubbinn lafði fram á ennið. Sam-
kvæmt frásögn hennar voru Picasso
og vinir hans ósviknir „bóhemar“
um tima. Þeir héngu á kaffihúsum
allan liðlangan daginn og fóru
stundum með ópum og óhljóðum um
göturnar á nóttunni, gengu meira
að segja svo langt einu sinni að
hleypa af skammbyssu beint upp i
loftið. Samdrykkjur voru tíðar en