Vikan


Vikan - 02.02.1961, Síða 12

Vikan - 02.02.1961, Síða 12
Alger andstæða við fátækleg hfbýli almennings í íran er keisarahöllin í Teheran, þar sem shainn býr. Þar er fburður eins og sagt er frá í austurlenzkum ævintýrum. í stórverzlununum í Teheran eru módelkjólar eftir nýj- ustu Parísartízku, en almenningur verður að láta sér nægja að horfa á þá í gluggunum. Menn þykjast góðir að hafa til hnífs og skeiðar. Bændur í íran eru mjög fátækir og búskaparhættir frum' stæðir. Fagiiaði alþýða manna í íran þegar keisarinn eignaðist son þann er hann þráði? Svo var sagt í öllum fréttum. En drengur sá er fæddist, leysti engin vandamál. Og aukafrídagar eru þeim milljónum manna einskis virði, sem ganga atvinnulausir ár eftir ár. Þjóðhátíðir hjálpa ekki fólki sem sveltur — meðan iðjulaus keisari spilar burtu auð fjár, á einu kvöldi í póker. Bylting getur skollið yfir í íran, hvaða dag sem vera skal. „Taumlaus fagnaðarlæti um allt land!“ ........vel skapað sveinbarn, sextán marka þungt .... vakti óhemjufögnuð hvarvetna........“ ......fullkomin fagnaðarvíma . . . .“ „Páfuglshásætinu hefur verið bjargað.“ Land það sem talið er svífa I fagnaðar- vímu er íran, eða Persía eins og það er líka nefnt. Ástæðan er barnsfæðing hjá Farah Diba keisaradrottningu, sem nú er tuttugu og tveggja ára að aldri. Loksins hefir Reza Pahlevi keisari eignazt rikiserfingja, á 41. aldursári sinu. Nú getur hann dregið andann léttar — segir í fréttum. Nú er stjórn hans úr allri hættu, hvers konar ó- ánægja fokin út í veður og vind. Nú elska allir Persar sinn keisara og sitt land. Allt frá því er fyrri kona keisarans, hin fagra Sórayja, sem hann skildi við árið 1958, reyndist ófær til barneignar, hafa kvennablöð um heim allan haldið því fram, að sonur væri hið eina er bjargað gæti hásæti hans. Niðurstöður hafa verið hvarvetna hinar sömu: Enginn sonur — stjórnarbylting! Sonur — engin bylting. Nú er sonurinn fæddur! í rússneskri áróðursútsendingu var því haldið fram að barnið væri „umskiptingur“, — „keisar- inn fékk son i skiptum". En það dró þó ekkert úr fréttum blaðanna um fagnaðar- vímu, um hrópandi múga manna og konur sem táruðust. Hin unga móðir var hyllt sem hetja. íran er borgið! BEISKUR SANNLEIKUR. En sannleikurinn um Iran er á þessa leið: Bylling er yfirvofandi i landinu og getur skollið á hvaða dag sem vera skal. Keisarinn, Farah Diba drottning og ný- fætt barnið á það stöðugt á hættu að verða myrt, jafnhrottalega, jafnskyndilega og jafn-„furðulega“ sem Feisal konungur í frák. Mesta spurningin um framtíð hins ný- fædda keisarasonar er ekki á þessa leið: „Hvenær verður hann keisari?“ Hún er þe-ssi: „Tekst honum að flýja eða vcrður hann myrtur?" Þetta munu þykja stór orð, en nákunn- ugir menn og athugulir, telja þau rétt- mæt. Óánægjan með keisarann og hina auð- ugu jarðeigendur, sem bera veldi hans uppi, er sem sé meiri nú en nokkru sinni fvrr. Kominúnistaflokkurinn er bannaður, ■V XTÍ>líS» H H . Fatima prinsessa, shainn og Farah Diba keisaradrottning. Shainn eyðir fúlgum í fjárhættuspil, meðan sumir landar hans svelta og atvinnuleysi eykst. Fiskimenn að veiðum á Kaspíahafi. Þeir eru fátækir og hafa léleg verkfæri eins og alþýða manna í fran. en á sér marga áhangendur „neðanjarðar“ og er mjög styrktur af Sovétríkjunum. En landamæri þeirra liggja að íran á 160 mllna svæði. Hinn mikli múgur bænda lifir í fátækt og sinnuleysi, og trúir því statt og stöðugt, að keisariún sé staðgengill guðs liér á jörðu. En með jieirri áróðurstækni sem nú er uppi, getur verið hægt að brcyta skoðunum þeirra á einni nóttu. Og hrað- vaxandi grúi borgarbúanna bíður eftir tækifæri. . . . Ástandið er nákvæmlega hið sama sem í öllum öðrum vanþroskuðum löndum. Kommúnistar beina tnáli sinu til starfs- manna i hinum nýstofnuðu iðngreinum, til manna er lifa við þá afkomu að þeir liafa hugrekki til að heimta meira, hafa kjark til að krefjast endurbóta. Þeim tekst án efa að draga til sin múg hinna tregari bænda! „ALLIR ÞIGGJA MÚTUR.“ Óánægja þjóðarinnar eykst í sifellu og má skrifa það á reikning hugkvæmra og ófyrirleitinna kommúnista, sömuleiðis sterkum áróðri í útvarpi að kenna að nokkru leyti. En orsakirnar eru fleiri:.. 1. Keisarinn og hinar frægu „þúsund fjölskyldur“, sem eiga sjötíu hundraðs- hluta alls ræktanlegs lands, lifa gegnd- arlausu óhófi. En langflestir hinnar 21 millj. sem i landinu búa, eru vannærðir. Þeir draga fram lífið sem fasteignalausir landbúnað- arverkamenn og hafa varla til hnifs og skeiðar. í fyrra tapaði keisarinn hálfri annarri milljón króna í spilum — á einu einasta kvöldi. Framhald á bls. 29.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.