Vikan - 02.02.1961, Side 13
Þriggja hæða sambyggingar, sem ritvélaverksmiðjurnar Olivetti í Tórínó
á Ítalíu hafa byggt yfir starfsmenn við fyrirtækið, — sérlega avipfagrar
byggingar í fallegu umhverfi.
Sambyggingar
lausn á erfiðu vandamáli
Hús og
húsbúnaður
tJTÞENSLA borga hefur víða orðið vandamál, og við erum ekki alveg ókunnug
því hér í Reykjavík. Það hefur leitt til skjótra vandræða að leyfa hverjum manii
að reisa einbýlishús, og um það hefur verið talað, — ef till vill fremui í
gamni en alvöru, — að Það hefði borgað sig fyrir Reykjavíkurbæ að reisa fok-
heldar sambyggingar og gefa fólkinu, sem byggði Smáibúðahverfið.
Hinar fyrstu sambyggingar hér hjá okkur höfðu á sér allmikil byrjendaein-
kenni og voru líkari hlöðum eða stóreflis-skemmum en íbúðarhúsum mennskra
manna. Svo stórstígar framfarir hafa orðið í þessum málum siðan, að beztu
sambyggingarnar mundu sambærilegar þeim, sem góðar þykja erlendis.
Sambyggingar frá þremur hæðum og allt upp i tuttugu hæðir hafa orð'.ð
heppilegasta lausnin á íbúðabyggingum í borgum. Fagurfræðilega þykir betra að
Framhald á bls. 35.
O Útsýn yfir Hansahverfið í Berlín, þar sem 53 arkítektar frá ýmsum lönd-
um spreyttu sig á sambyggingum og smærri húsum. Húsið næst á myndinni
er eftir franskan arkitekt, handan við það sést í hús Finnans Alvars Aalto.
Til hægri er „eldspýtustokkur“ Svíanna, og bak við það er annað sam-
býlishús á V-mynduðum undirstöðum. Það er eftir hinn fræga franska arki-
tekt Corbusier. Á grundinni milli húsanna eru tvö einbýlishús eftir Arne
Jacobsen hinn danska, og fjær sjást háhýsi. Hansahverfið gamla var lagt
gersamlega í rústir í stríðinu.
A
Þýzkt sambýlishús í einni af
borgum Vestur-Þýzkalands.
Svalirnar eru látnar ná alveg
saman, og aðeins þunnir skil-
veggir á milli. Kjallarinn er
aðeins inndreginn.
Ein af hinum nýrri sambygg- ^
ingum í Reykjavfk, KR-blokk-
in svonefnda við Birkimel. Það
gerir húsið sérkennilegt, að
efsta hæðin er inndregin og
þaksvipurinn er óvenjulegur.
Húsið er svipfallegt að utan og
íbúðirnar vel skipulagðar.
Gísli Halldórsson arkitekt hef-
ur teiknað.
•<] Sextán hæða háhýsi úr stáli,
steinsteypu og gleri. Hér er kapp-
kostað að hafa alla gluggafleti
jafna, en heildarsvipurinn er
nokkuð kaldur og minnir á skýja-
kljúfa f bandarískum borgum.