Vikan


Vikan - 02.02.1961, Síða 24

Vikan - 02.02.1961, Síða 24
Þorrinn er hnfinn Sími^lZZ58“og_ 12Z59 BLÓÐHEFND. Framhald af bls. 7. borgarinnar til að njóta skemmtun- ar eins og aðrir. Allir dáðu og virtu þennan mikla nautabana. Hann nálg- aðist og var goðborinn í huga fólks- ins. Gamla spákonan hrökk í kút, þegar hún sá hann, en enginn tók eftir þvi vegna ótakmarkaðrar til- beiðslu á honum. Höfðingi Tartaranna kom á móti honum til þess að bjóða liann vel- kominn og leiða hann i heiðurssœti, sem hafði verið útbúið í skyndi. Þetta var sjaldgæfur heiður. Fernandó leit í kringum sig, þegar hann var setztur, og augu hans stönzuðu á hinni fögru og ungu Rósalítu. Hann benti höfðingjanum að koma til sin. „Hver er þessi stúika þarna með hvítu kaninuna?“ „Þetta er Rósalita, dóttir min, herra.“ Höfðinginn hikaði, en bætti svo við: „Kaninan er bróðir hennar. Við trúum á afturkomu sálarinnar i öðru liki." Ferandó svaraði engu. Augu hans störðu á Rósalítu, og eftir því sem tíminn leið, fann hann til ástar og girndar. Þessa stúlku ætlaði hann að fá. Æðar hans virtust ætla að springa, þegar hann sá Rósalitu senda Pedró ástúðlegt augnatillit. Ósjálfrátt fann hann, að Pedró mundi verða liið stóra og ókleifa fjall i vegi hans. Ókleift? Þvi ekki að jafna það við jörðu? Það fór hrollur um Fernandó. Nei, hann var ekki morðingi. Dagar komu, og dagar fóru. Fern- andó var orðinn daglegur gestur í vagnborginni, og það var á allra vit- orði, að hann var að sækjast eftir ástum Rósalítu. Hann bauð henni í skrautlegan vagninn sinn til langra ökuferða um liina stóru landareign, og á allan hátt reyndi hann að vekja hjá henni ást, sem beindist að lion- um einum. Einn daginn tók hann hana til kastalans og sýndi lienni rikidæmi það, sem honum hafði lilotnazt og mundi verða hennar, ef hún veldi rétt. „Ég hef eignazt auð og frægð, Rósalita. Nú lifir þú í Tartara-vagni. Gifstu mér, og heimili þitt verður hér. En Rósalíta sneri sér kuldalega á burtu. Þegar þau komu aftur til vagnanna, sá Fernandó hana gefa Pedró léttan koss. Hinn frægi nauta- bani titraði af heift og hatri. Þetta sama kvöld kallaði hann á einn þjóna sinna, — mann, sem fyrir gullpening gerði livað, sem var og húsbóndanum þóknaðist, og átti við hann eintal. Morguninn eftir fundu Tartararnir Pedró dauðan af rýtingsstungu í bakið. Það var rigning daginn, sem þeir jörðuðu hann, en hinn sorgmæddi hópur fann ekki til þess, þar scm hann stóð við nýtekna gröfina. Höfðinginn hélt handleggnum ut- an um dóttur sína, þar sem þau stóðu og horfðu á kistuna síga nið- ur i svarta jörðina og kipptust við, þegar gamla spákonan byrjaði að kasta hverri rekunni á eftir annarri. Hún fór sér hægt. Það var eins og hún vildi á einhvern hátt fá Pedró aftur, og við hverja reku, sem hún kastaði, þuldi hún einhverjar sund- urlausar setningar. Að lokum var gröfin fyllt, og enginn sagði orð. Kanínan i fangi Rósaiitu lagði kollhúíur og starði á gröfina eins og hinir. „Þú ert ung, dóttir mín, þú munt eiga mörg ár ólifuð, og timinn mun lijáJpa þér að gleyma,“ sagði höfð- inginn. „Hver veit, hver veit?“ tautaði gamla kerlingin og studdi sig með rekunni. „Sálin i Pedró mun koma aftur i nýjum likama, og þá mun hann, með hinum mislitu augum, öðru bláu og hinu brúnu, leila að þér.“ Mánuðir liðu hægt i huga Fern- andós. Astin kvaldi hann og brenndi, svo að hann hafði engan tíma til neins annars en heimsækja Rósa- lítu, sem engan áhuga virtist liafa á daðri eða gjöfum. Fernandó sneri sér til höfðingj- ans, og með ýtni og smjaðri tókst lionum að fá hann tii að sækja mál sitt, sem um síðir hafði þau áhrif, að Rósalíta lét undan. Brúðkaupið var ákveðið, og Fernandó samþykkti þá beiðni hennar, að það skyldi haldið i vagnborginni. Eftir brúðkaupið fór Fenandó aftur inn á hringleikasviðið til að berjast við nautin, og aldrei hafði hinn blóðugi ferill hans verið eins dáður og nú. Hinn spænska, tilfinninganæma þjóð þráði spenning, og sá, sem gat veitt henni hann, var hylltur sem konungur. En eftir þvi sem Ferandó jók meir á lýðhylli sína og frægð og þvi fleiri bardaga sem hann háði, varð fram- koma hans við liósalitu ofsafengn- ari, og liann lagði dauðiegt hatur á kanínuna, sem alltaf sat i kjöltu hennar. Metnaðargirni hans var djúpt særð, vegna þess að hann fann, að hann gat ekki gert hana hamingju- sama og að kanínan var henni til meiri ánægju en allur hans auður og frægð. Ekkert virtist geta fengið hana til að tala eða brosa. Hún sat alla daga í sama sætinu og strauk hin löngu eyru kanínunnar. Aðeins einu sinni heyrðist hún gefa frá sér hljóð. — Elskaföu einhvern annan? Dag nokkum kom Fernandó heim drukkinn og æðisgenginn af af- brýði til alls og allra, þegar hann sá kaninuna í fangi konu sinnar, þreif hann dýrið og skar það á háls. Á meðan hann framkvæmdi verkn- aðinn heyrðu þjónarnir tryllingslegt angistarvein frá Rósalítu. Eftir þetta varð gagngerð breyting á öllu fari hennar. Frá þvl að Fern- andó hafði drepið kaninuna, fór hún að búast eins og auður hans gaf henni tilefni til. Hún fylgdi lionum eftir brosandi og sat við hlið hans, þegar hann ferðaðist í skrautvagni sinum, og virtist njóta lifsins og þeirrar hylli, sem maður hennar hlaut frá allri þjóðinni. Hún sat í heiðursstúku, þegar liann sýndi snilli sína og hugrekki, og hlaut alltaf mesta heiður, sem nautabani getur sýnt, eyrun af hinu sigraða nauti. Þau ferðuðust til Madrid, en þar átti Fernandó að berjast við naut, sem miklar sögur fóru af fyrir krafta og ótrúlega skynsemi. Hver nautabaninn af öðrum hafði reynt að leggja það að velli, en naut- ið virtist ekkert eiga sameiginlegt öðrum nautum og barðist eftir því. En Fernandó virtist vera óhrædd- ur, þegar hann gekk inn á leikvang- inn og að venju beint að stúku konu sinnar og lieilsaði henni að hætti nautabana. Rósalíta tók rauða rós úr hári sinu og kastaði til hans. Þetta var venja, og Fernandó tók liana upp og setti inn á barm sér. Merki var gefið, og allir biðu með eftirvæiitingu eftir að sjá nautinu hleypt út. Það heyrðist braka i þung- um og sterklegum bjálkahlerunum, og nautið geystist inn á völlinn. Litfagrar og skrautlqgar spírur stóðu upp úr herðakambi þess, sett- ar þar til að æsa upp heift þess og grimmd. Þetta var stórt naut, rauðbrúnt að lit, og heiftin geislaði úr liverri hreyfingu.þess. Augnablik stóð það kyrrt og starði yfir leikvanginn, þangað sem nautabaninn stóð. Hann var tilbúinn. Rauðu klæðinu hélt hann með báðum höndum, og áhorfendur sáu, að hann ætlaði að byrja leikinn með svæfingarsverðið í hönd sér. Nautið var nú búið að átta sig og tók sprettinn í áttina að Fern- andó. Hann lét létta hreyfingu fara um klæðið til þess að vekja athygli nautsins á þvi. Sjálfur stóð hann kyrr eins og myndastytta. Það herti á sprettinum eftir þvi, sem nær dró, og allt i einu sá Fern- andó, að það stefndi ekki á klæðið, heldur á hann sjálfan. Hann bjó sig undir að vikja til hliðar með einni af sinum léttu og mjúku hreyf- ingum. Hann vildi ljúka þessu af og mið- aði sverðinu eftir handlegg sér til þess að veita því banastungu í fyrstu atrennu. Þetta mundi gera alla ó- ánægða, en úr þvi mátti bæta með öðru nauti, sem var ekki eins hættu- legt og þetta. Augnablik horfðust maðurinn og dýrið í augu, og hrollur fór um Fernandó. Það virlist ekki koma auga á klæðið, og Fcrnandó hreyfði það með meiri ákafa, en allt kom fyrir ekki. Allt I einu sveigði nautið hausinn til hliðar og gerði bæði að koma í veg fyrir, að Fernandó gæti vikið sér til hliðar og beitt sverð- inu. Vinstra liorn þess stakkst inn í hægri síðu Fernandós og fór það djúpt, að hann gat ekki losað sig. 24 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.