Vikan - 02.02.1961, Blaðsíða 27
VIKA1H
Útgefandi: VIKAN H.F. Ritstjórl: Ofsli Slgurðsson (ábm.) Auglýsingastjóri: fjóhannes Jörundsson. Framkvæmdastjóri: Hilmar A. Kristjánsson. Rltstjórn og auglýsingar; Sklphoftl 33. Simar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgrelðsls og drclílng: Blaðadreííing, Mlkiubraut 15, síml 15017. Verð 1 fausa- söfu kr. 15 Áskriftarverð er 200 kr. irs- þriöjungslega, grclðist fyrirfram. Prent- un: Hllmlr h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
Þið fáið Vikuna í hverri viku
/ næsta blaði verður m. a.:
4 Frumsýning í Þjóðleikhúsinu. Myndir af frum-
sýningargestum á óperunni Don Pasquale — tekn-
ar í hléinu.
4 Spegillinn og ég. Snjöll smásaga eftir Guðnýju
Sigurðardóttur. ....
4 Ný verðlaunakeppni: Frystikista og ísskápur í boði.
4 „Við styrkjum heldur óverðuga en neita þeim, sem
þurfandi eru“. Sagt frá heimsókn til Vetrarhjálpar-
innar.
4 Bölskyggn augu. Grein eftir dr. Matthías Jónas-
son um svartsýni og bölskyggni.
4 Tvífararnir, hnittin smásaga um frægan kvikmynda-
leikara og skrifstofumann, sem voru nákvæmlega
eins.
4 Verða flugvellir úreltir? Sagt frá nýrri flugvél.
4 Grímubúningar. Heil opna með tuttugu myndum.
4 Hús og húsbúnaður: Fallegur og hentugur svefnsófi.
!----------------------------------------------------------
fara að láta þann gamla fúskara,
Ivobba Allisopp draga úr þér tönn!
mælti vagnsmiðurinn og rétti Bill
flöskuna, svo hann mætti hressa sig
ögn við.
— En nú skal ég sýna þér, hve
mjúklega og sársaukalaust ég dreg
tennur úr heiðursmönnum. Aðeins
að gera svo vel að gapa andartak,
Bill.
Bill gapti og vagnsmiðurinn lirifs-
, aði hálflausa tönnina með léttum
■ og litlum kipp.
— Þarna sérðu, þú fannst varla
fyrir því, eða varðstu kannski alls
ekki var við það? Ef þig svo annars
skyldi langa til að borga svolítið
fyrir vikið, þá er ég stundum vanur
' að taka svo sem tíu dollara fyrir
■ svona tennur, Bill.
i Bill dró upp tiu dollara seðil og
' lagði hann þegjandi og hljóðalaust á
borðið. Síðan stakk hann sexhleyp-
unni í belti sér og gekk út að grænu
vængjahurðinni. En allt í einu sner-
ist liann á hæli.
— Vel á minnzt, mælti hann og
leit beint i augu litla vagnsmiðs-
ins. — Mér þætti sennilegt að þú
hefðir gaman af að sjá hvernig við
förum að því að skjóta, bræðurnir.
Er ekki svo, þætti þér ekki gaman
að því? Ekki held ég að ég sjái
eftir þrem kúlum á svolitla sýningu,
í þakklætisskyni fyrir handtakið.
Jessi liróðir er bannsettur klaufi
að skjóta, undireins og ögn af
viský er hrokkið ofan í hann. Hann
skýtur svo sem eins og svona. . . .
Og Bill sendi kúlu framhjá vinstra
eyranu á óttaslegnum vagnsmiðnum.
. . . Ekki er Set bróðir minn betri.
Þegar hann hefir fengið sér tiu
dropa er höndin óðar orðin óstyrk.
Þá skýtur hann eithvaði likt og
þetta. . . Bill skaut og kúlan þaut
hvínandi fast með hægra eyranu á
vagnsmiðnum. . . .
— En ég, ég þoli vel hvort heldur
er eina flösku eða tvær, án þess að
verða hið minnsta skjálfhentur. Bill
þagnaði og miðaði nú i þriðja sinn.
— Nú skal ég sýna þér hvernig ég
skýt, minn kæri. vinur, Cliff Cart-
wright!
Vagnsmiðurinn lineig niður, með-
vitundarlaus af skelfingu, en Bill
Haggerty rak upp drynjandi hlátur,
stakk sexhleypu sinni i beltið og
hvarf út fyrir grænu vængjahurðina.
ÞEGAR TÍMINN ER
NAUMUR.
Framhald af bls. 14.
Norskar lummur.
IV2 bolli hveiti, 3 matsk. sykur,
3 matsk. brætt smjör, 2 egg, 3
tesk. lyftiduft.
Eggin eru þeytt með sykrinum.
Hveiti og lyftidufti er blandað sam-
an við. Smjörið er brætt og látið í
síðast. Bakað á fitugri pönnu eins
og venjulegar lummur. Bornar fram
volgar með góðu mauki og þeyttum
rjóma, einnig góðar með sírópi.
Karamellukrem.
1 bolli sykur og 1 bolli rjómi.
Sykurinn er brúnaður á pönnu,
þar til froða hefur myndazt. Þá er
rjómanum smáhellt saman við, hrært
vel í á meðan. Þetta krem er gott að
setja á milli kökubotna og ofan á
tertur eða mótkökur, t.d. sódakökur
eða sandkökur.
9
Hrútsmerkið (21. marz—20 apr.): Þér hefur ekki
komið beint vel saman og einhverjum í fjölskyld-
unni undanfarið, og hefur þetta viljað bitna á öðrum
en þér sjálfum. Þú getur hæglega orðið til þess að
koma á sættum. Láttu verða af því áður en það verð-
um seinan. Þú munt þurfa að sinna áríðandi verkefni í vik-
unni. Þú skalt ekki hika við að biðja um frí frá störfum í einn
dag eða svo til þess að ljúka þessu verki.
Nautsmerkið (21. apr.—21. maí): Þér hefur ekki
orðið eins mikið úr verki og þú ætlaðir þér, og
og er það líklega því að kenna, að þú ert búinn að
missa trúna á sjálfan þig — alveg af ástæðulausu.
Þú skalt vanda framkomu þína gagnvart konunni,
sem þú kynntist .fyrir skemmstu. Hún gæti orðið þér að liði,
fyrr en varir.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þú hefur verið
með allóvenjulegt áform á prjónunum undanfarið, en
stjörnurnar vilja ráðleggja þér að bíða með að
binda endahnútinn á það. Ekki svo að skilja, að
ekki sé rétt að hrinda hugmyndinni í framkvæmd,
heldur er þetta ekki rétti tíminn til þess. Þú verður spurður
álits varðandi mál, sem snertir þig og kunningja þína. Láttu
ekki eigingirni ráða í því máli.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þetta verður á-
hyggjulaus vika, og þú munt lifa margar ánægju-
stundir. Gömul ósk þín rætist að nokkru, en nokkur
bið verður á þvi að hún rætist að fullu. 1 sambandi
við hjartans mál verður létt af Þér þungu fargi. Þú
skalt aðeins varast að hlaupa ekki á þig um helgina, því að
þá verður lögð fyrir þig slæm gildra. Þú forðast þessa gildru
aðeins með hógværri framkomu.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Þér hættir dálítið
til þess að láta smávægileg glappaskot valda þér
áhyggjum, og verður það til þess að þú nýtur ekki
lífsins sem skyldi. Þú verður að gera þér ljóst, að
öllum verða á glappaskot — við þvi er ekkert að
gera. Líkur á skemmtilegu heimboði, líklega um helgina. Þá
muntu kynnast nýrri hlið á þessum nýja kunningja þínum.
Meyjarmerkið (24. ág.—23. sept.): Hætt er við að,
ástvinur þinn komi heldur ósæmilega fram við þig
—- að þér finnst. Ef þú rannsakar málið dálítið
nánar, muntu komast að því, að þetta er allt vel
meint. Þú munt kynnast einkennilegum manni um
helgina. Varaðu þig á honum, því að hann er ekki allur þar
sem hann er séður.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Þú munt eiga
mjög annríkt í þessari viku, einkum þó utan vinnu-
staðar. Nú mun þekking sú, sem þú hefur öðlazt
vegna áhugamáls þíns, koma sér vel. Þú hefur kom-
ið heldur illa fram gagnvart einum kunningja þín-
um. Reyndu nú að sýna honum fram á, að þú vilt honum að-
eins vel, því að hann er smátt og smátt að fjarlægjast Þig.
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Vertu vel á verði
gagnvart öllu því, sem endurtekur sig i vikunni.
Ef þú sérð fram á, að eitthvert óþægilegt atvik, sem
fyrir hefur komið áður í vikunni, ætlar að endur-
taka sig, skaltu reyna að gera þér grein fyrir, hvað
það var, sem olli þessu óþægilega atviki og forðast það þannig.
Þú hefur slæma samvizku út af einhverju, en sannleikurinn er
sá, að þú áttir ekki sök á þessu.
Bogmaðurinn (23. nóv.—21. des.): 1 þessari viku
skipta einkamál þín þig mestu, þvi að ekkert mark-
vert mun gerast á vinnustað. Hinsvegar skaltu vera
því viðbúinn, að eitthvað gerist í hjartans málum.
Þú ert orðinn nokkuð óþolinmóður vegna bréfs eða
skilaboða, sem þú átt von á, en nú rætist úr þessu. Trúgirni þín
kom þér í klandur í fyrri viku, og nú skaltu varast, að sama
endurtaki sig.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Helgin verður
skemmtilegasti hluti vikunnar, því að þá gerist
margt af því, sem þig hefur lengi dreymt um. Á
mánudag verður þú fyrir einhverjum vonbrigðum,
en ekki skaltu samt örvænta. Líkur eru á stuttu
ferðalagi, sem þér mun að líkindum finnast allt of stutt. Hættu
nú að blekkja einn kunningja þinn, og vertu hreinskilinn, þó
erfitt sé það. Heillatala 8.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. feb.): Þú virðist
hafa verið alltof viljugur til þess að sinna störfum
annarra. Þetta er allt saman gott og blessað, en þú
verður að varast að það komi ekki niður á þínum
eigin störfum. Vinur þinn er í vanda staddur, og
þykjast stjörnurnar sjá, að hann eigi allt undir góðri framkomu
þinni. Föstudagur er dagur hinna ástföngnu.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Það gerist dálítið
í vikunni, sem veldur þér miklum heilabrotum, og
ekki leysist þessi mikla gáta fyrr en eftir nokkrar
vikur. Þú og nokkrir kuriningjar þínir þurfið að
sinna verki, sem þarf að Ijúka fyrir vissan tíma.
Með þessu áframhaldi, ljúkið þið ekki verkinu á tilsettum tíma.
Reynið þið nú að fórna meiri tíma í þetta, til þess að allt
fari ekki út um þúfur