Vikan


Vikan - 02.02.1961, Page 33

Vikan - 02.02.1961, Page 33
ÞAR SEM HATRIÐ VEX. Framhald af bls. 29. fagnar barninu. Þeir vona, að fæð- ing þess hafi í för með sér óbreytt ástand á komandi árum. Hitt er hreint aukaatriSi, þótt nokkrir hrifnæmir Teheranbúar fagni með þeim. ÞaS breytir engu verulegu. Þeir sem horft hafa á myndir frá íran í blöSum og sjónvarpi, hafa ef til vill veitt því eftirtekt, hve mikiS ber á hermönnum i fjöldanum. STÚDENTAR FLÝJA LAND. Keisarinn hefir ednnig reynt aS byggja skóla og sjúkrahús. HingaS til hefir það litið bætt úr skák. Enn eru 5 hundraðshlutar þjóðarinnar hvorki læsir né skrifandi. Mjög há hundraðstala þjóðarinnar, sem ekki er þó vitað fyrir víst hver er, þjáist af kynsjúkdómum. Á íran þar heims- met, svo dapurlegt sejn frá er að segja. Langflestir þeirra stúdenta sem efni hafa á að leita sér menntunar erlendis, hika við að snúa heim, að námi loknu. Hugsjónina um aS ger- breyta íran, telja þeir vonlausa. Einn þeirra hefir látið svo um mælt: — Bandarikjamenn hafa gefið okkur fjóra milljarða króna síðan stríðinu lauk. Olíulindir írans, sem er fjórða mesta oliuland heims, gefa af sér meir en einn milljarð á ári. En allt hafnar þetta i vösum auðmannanna. Keisarinn er velvilj- aður, en vantar þrótt. Svona litur sannleikurinn út. Hinn nýfæddi prins hefir ekkS forðaS páfuglshásætinu frá hruni. Fall þess nálgast. Þetta barn verður aldrei keisari í íran. ÉG LEITA EKKI, ÉG FINN. Framhald af bls. 6. jafnað litla Baskaþorpið, Guernicu, viS jörðu. Tveim dögum siðar hóf Picasso að mála griðarlega stóra oliumynd og lauk við hana á ótrú- lega skömmum tíma. Hann var al- tekinn skelfingu atburðarins og hlóð myndina andstyggð sinni á grimmdaræði styrjalda og hvers kyns kúgunar. Þeir, sem séð hafa Guernicu, vita gjörla að hún er ■— Alveg einstakt lag, sem hann hefur á því að ala upp börn. .— Mér finnst alltaf þessi eld- húslúga vera heldur í þrengra lagi fyrir mig. mestmegnis máluð í svörtum og hvítum litum. En inni á milli þess- ara póla hefur málarinn búið sér til fléttur úr gráum, heldur fíngerð- um pensilstrikum. Hann gleymdi því ekki, jafnvel undir þessum kringumstæðum, að létt, leikandi og augðugt hugmyndaflug er og hefur alltaf verið aðall listar hans. Samt er það hin beinabera ófreskja mannúðarleysisins, sem slær okk- ur gegnum myndina, svo að við skjálfum og nötrum lengi á eftir. Þegar Frakkland féll og höfuð- borg þess lenti i höndum Þjóðverja, flúðu margir listamenn frá París. Sumir komust á skip til Englands og settust þar að, aðrir héldu ferð- inni áfram vestur yfir hafið. Picasso hélt kyrru fyrir í íbúð sinni við Signu. Menn óttuðust um líf hans, af því að hann hirti ekki einu sinni um að „hverfa“ eins og vinir hans í andspyrnuhreyfing- unni. Þjóðverjar leyfðu honum qkki að halda sýningar — enjétu hann annars afskiptalausan. Á þessum döpru dögum sökkti Picasso sér nið- ur í vinnu sína eins og svo oft áð- ur. Svo er að sjá sem hann hafi málað bæði portrerttmyndir i göml- um stíl og kröftugu stflfærðu mál- verkin með breiðu útlínunum. Þeir, sem komu 1 vinnustofuna í Paris síðustu styrjaldarárin, eru nokkurn veginn sammála um þetta atriði. Þó voru síðarnefndu listaverkin i mikl- um meirihluta eins og greinilega kom í ljós á frelsissýningunni 1944. Þar var Picasso skipað í heiðurs- sæti með margar afburðafallegar og sérkennilegar myndir, bæði málverk og höggmyndir. Þessar höggmyndir Picassos eru efni í kafla út af fyrir sig. Sá kafli verður þó ekki ritaður hér. Ég vildi aðeins vekja athygli á þeirri staðreynd, að listamaður- inn hafði ekki gefið sig jafn heils- hugar að höggmyndalistinni siðan á fyrstu árunum eftir 1939. Nú flutti hann nokkrar myndir úr gömlu vinnustofunni sinni i Boisgeloup heim til Parisar, gerði við sumar þeirra, breytti öðrum til muna og bjó til allmargar nýjar. Hauskúpa manns eða dýrs er afaráberandi í myndum Picassos frá stríðsárunum. Menn eru stundum að velta fyrir sér orsök þess. Persónulega gæti ég hugsað mér þá skýringu, að málar- inn hafi ráðizt beint framan að þessu ógnþrungna tákni dauðans, til þess að losa sig við allar þungu og kveljandi hugsanirnar, sem sóttu á hann þegar nazistar voru að murka lífið úr vinum hans, Gyðing- unum i listamannastétt, — og mað- urinn sjálfur var ekki túskildings virði. Síðan styrjöldinni lauk hefur Picasso dvalizt langdvölum i Suður- Frakklandi. Fyrstu níu árin bjó hann i smábæjunum Antibes og Vallauris á strönd Miðjarðarhafs, en árið 1954 fluttist hann til Cannes, ferðamannabæjarins alkunna, og settist þar að ásamt konu sinni (eða fylgikonu) Jaqueline Roque. Það er mynd af henni, portrett eftir Pablo Picasso, sem þið sjáið á forsíðu blaðsins. Vafalaust verður Picasso að sætta sig við það nú orðið að vera opinber persóna. Og kannski er honum það ekki ókært með öllu. Einhvern veginn hef ég þó á til- finningunni, að honum líði allra bezt þegar hann fær að ganga til vinnu sinnar sprækur að morgni og vera smáskrítinn og kyndugur karl með vinum sínum að kvöldi. -ár vikan 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.