Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 10
10 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Lokað
Vegna starfsmanna- og stefnumótunarfundar
verður lokað á öllum skattstofum landsins og hjá ríkisskattstjóra
föstudaginn 18. desember.
Ríkisskattstjóri
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi
Skattstjórinn í Reykjavík
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi
DVD myndir
1.195
Gott úrval af Lego 35%
afsláttur
Súpertilb
oð:
Áður: 44.
900
Nú 16.900
BABY born
kastali
Bratz dúkkur
frá 1.500
Úrval af Bratz dúkkum og fylgihlutum
Frábært úrval af spilum
og púsluspilum
Diego Mega Blocks
50% afslá
ttur:
Áður: 5.9
90
Nú 2.980
Jólamarkaðurinn er á
II. hæð í verslunarmiðstöðinni
Sími 565-2592
í Hafnarfirði
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti segir demó-
krata í öldungadeild Bandaríkja-
þings komna á fremsta hlunn með
að samþykkja nýja heilbrigðislög-
gjöf.
Þetta sagði hann eftir að hafa
rætt við flokkssystkini sín í Demó-
krataflokknum á þriðjudag. Hann
sagði enn vera ágreining um ýmis
atriði í frumvarpinu, en leiðtogar
flokksins vonist samt til að það
verði afgreitt fyrir jól.
„Endanleg útgáfa frumvarpsins
mun ekki innihalda allt sem allir
vilja. Ekkert frumvarp getur það,“
sagði Obama.
Ágreiningsmálin snúast meðal
annars um fóstureyðingar og
heilsugæslu aldraðra.
Joe Lieberman, óháður þing-
maður sem oftast hefur greitt
atkvæði samhljóða demókrötum,
segist vera andvígur þeim breyt-
ingum sem ætlunin er að gera á
Medicare-kerfinu, sem lýtur að
heilsugæslu aldraðra.
Hann hótar að ganga til liðs við
repúblikana og greiða atkvæði
gegn heildarfrumvarpinu ef
ákvæðin um Medicare verða ekki
tekin út. Hins vegar er hann sáttur
við frumvarpið að öðru leyti. Leið-
togar demókrata hafa áratugum
saman reynt að ná fram breyting-
um á heilbrigðislöggjöf Bandaríkj-
anna til að tryggja öllum íbúum
landsins sjúkratryggingar. Málið
er eitt það stærsta, sem Obama
hafði á stefnuskrá sinni og teldist
verulegur sigur ef honum tekst að
koma því í gegnum þingið.
Með frumvarpinu er tryggt að
þrjátíu milljónir Bandaríkjamanna,
sem hafa verið án sjúkratrygginga,
njóti framvegis trygginga.
Til þess að frumvarpið verði
samþykkt þurfa demókratar að
tryggja sér sextíu atkvæði í öld-
ungadeildinni, þar sem 100 þing-
menn eiga sæti. Greiði Lieber-
man atkvæði með frumvarpinu er
aðeins óvissa um einn demókrata,
Ben Nelson, sem reynt hefur að
fá í gegn takmarkanir á heimild-
um ríkisins til þess að greiða fyrir
kostnað við fóstureyðingar.
Í fulltrúadeildinni var frum-
varpið samþykkt án heimildar til
að greiða fyrir fóstureyðingar,
en leiðtogar demókrata í öldunga-
deildinni hafa lagt áherslu á að slík
heimild verði með.
gudsteinn@frettabladid.is
Obama von-
góður um
heilbrigðislög
Demókratar í Bandaríkjunum telja sig geta náð
fram nýrri heilbrigðislöggjöf fyrir jól. Obama segist
bjartsýnn eftir að hafa rætt við demókrata í öldunga-
deildinni. Enn er deilt um fóstureyðingar.
BARACK OBAMA Takist honum að koma heilbrigðisfrumvarpinu í gegnum þingið yrði
það einn stærsti sigur hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FERÐALANGAR Í LONDON Ferðamenn
taka myndir hvor af öðrum á West-
minster-brú í London þegar svo lítill
snjór féll eftir kalda nótt. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í fjölbýl-
ishúsi í Gerðunum í Reykjavík í
fyrradag. Ræktunin var í 120 fer-
metra glæsiíbúð sem var meira
og minna undirlögð af kannabis-
plöntum. Þær reyndust vera um
160 talsins.
Einnig fann lögregla um 25
grömm af maríjúana í íbúðinni,
auk tveggja kílóa af þurrkuðum
laufum sem ræktendur nota til að
búa til hassolíu.
Karlmaður á þrítugsaldri var
handtekinn á staðnum. Hann virt-
ist hafa búsetu í smákytru í íbúð-
inni. Á sunnudag tók fíkniefna-
dei ldin kannabisræktun á
Laugavegi. Hún var ekki stór, um
35 plöntur, en þær voru þeim mun
öflugri. Ræktunin var á annarri
hæð í húsi á miðjum Laugavegin-
um. Leigutaki húsnæðisins, rétt
rúmlega tvítugur maður, er grun-
aður um að hafa staðið að ræktun-
inni en hann hafði ekki verið yfir-
heyrður um hádegisbil í gær.
Að sögn lögreglu virðast kanna-
bisræktanir nú hafa breyst. Rækt-
anirnar eru smærri í sniðum innan
höfuðborgarsvæðisins, sem talið
er gert til að dreifa áhættunni.
Ræktendur verði þá fyrir minna
„tjóni“ þegar lögreglan bankar
upp á. - jss
KANNABIS Lögreglan hefur stöðvað tvær
ræktanir á undanförnum dögum.
Fíkniefnalögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvær ræktanir:
Kannabisræktun í glæsiíbúð
SJÁVARÚTVEGUR Allt tilbúið fiska-
fóður hjá Fóðurblöndunni hækkar
um tíu til tuttugu prósent, sam-
kvæmt tilkynningu sem fyrir-
tækið sendi frá sér í gær.
Hækkunin, sem er mismikil
eftir tegundum, tekur gildi í dag,
miðvikudaginn 16. desember.
„Ástæður hækkunarinnar eru
fyrst og fremst gífurlegar hækk-
anir á fiskimjöli innanlands,“
segir í tilkynningunni og tekið
er fram að fiskimjöl hafi hækkað
um ríflega 100 prósent á síðustu
tólf mánuðum. „Þessi hækkun
mun hafa áhrif á aðrar fóður-
blöndur félagsins sem innihalda
fiskimjöl.“ - óká
Fiskimjöl Fóðurblöndunnar:
Hækka um allt
að fimmtung