Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 43
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Það er alltaf saga á bak við fötin
mín,“ segir Guðbjörg Jakobsdóttir.
„Hvítu buxurnar gaf vinkona mín
mér þegar hún kom frá Indlandi en
slíkar buxur nota karlmenn í Ind-
landi og Pakistan. Skyrtuna fann
ég á flóamarkaði í Svíþjóð. Þetta
er svakalega fín herraskyrta sem
var allt of stór á mig en ég breytti
og er núna eins og kjóll,“ segir hún
og toppar svo heildarútlitið með
uppáhaldsslaufu úr eigin smiðju
og rauðri perlufesti sem ættuð er
frá Litháen.
Guðbjörg er fatahönnuður en
segist lítið sauma á sig sjálf, frekar
breyti hún fötum sem hún kaupi.
Hún hannar hins vegar silkiháls-
men og slaufur undir nafninu Ser-
endipidy. „Þetta snýst um endur-
hönnun á vönduðum varningi,“
útskýrir Guðbjörg sem vinnur
mikið úr slæðum sem hún hefur
sankað að sér víðs vegar að.
Beðin um að lýsa stíl sínum segir
hún: „Ég er alltaf svolítið á ská.
Mér finnst erfitt að kaupa venjuleg
föt, þau þurfa alltaf að vera eitt-
hvað sérstök. Vinkona mín myndi
þó líklega lýsa mér sem rokkaðri
dömu. Fötin þurfa að vera töff en
samt elegant.“
Eitt helsta hugðarefni Guðbjarg-
ar þessa dagana eru svokallaðir
Pop-up markaðir sem hún og tvær
vinkonur standa fyrir. „Við höfum
þegar staðið fyrir fimm mörkuð-
um og það hefur gengið mjög vel.
Við erum agndofa yfir áhuganum
og velviljanum sem við mætum,“
segir hún en tilgangur markað-
anna er að kynna og sýna grasrót-
ina í hönnun og hjálpa hönnuðum
að koma vörum á framfæri.
Sjötti markaðurinn verður á
Hressó dagana 22. og 23. desem-
ber. Þeir sem vilja fylgjast með
dagskrá Pop-up markaðanna er
bent á vefslóðina www.facebook.
com/popup.verzlun.
solveig@frettabladid.is
Er alltaf svolítið á ská
Fatahönnuðinum Guðbjörgu Jakobsdóttur þykir erfitt að kaupa sér venjuleg föt. Heldur vill hún föt sem
eru sérstök. Oft breytir hún þeim fötum sem hún kaupir svo þau passi við hennar smekk.
Guðbjörg með uppáhaldsslaufuna sína við hvítar buxur og skyrtu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NICHOLAS KIRKWOOD er ungur og upprennandi
skóhönnuður. Hann hefur nú fengið hinn fullkomna stimpil
velþóknunar í heimi stjarnanna því nýlega sást engin önnur
en Sarah Jessica Parker klæðast skóm hans, en hún þykir hafa
einstakan smekk á skóm.
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið alla daga til jóla
Fyrst og fremst í heilsudýnum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Sofðu vel um jólin
JÓLATILBOÐ
20% afsláttur af sængurverasettum.
Glæný sending.
Verð nú: 199.900
Verð áður: 229.900
Queen 153x203 cm
Verð nú: 149.900
Verð áður: 189.900
Queen 153x203 cm
ÞÓR
Verð nú: 129.900
Verð áður: 164.900
Queen 153x203 cm
SAGA
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð: 7.950 kr.
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Gæðahandklæði
á góðu verði
Stærð Verð
30x30 490 kr
35x50 790 kr
70x140 2.490 kr