Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 94
74 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Blikum bárust góð tíð- indi í gær þegar staðfest var að þeir Alfreð Finnbogason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson hefðu skrifað undir nýjan samn- ing við félagið. Þeir skrifuðu báðir undir tveggja ára samning. Þessir ungu og bráðefnilegu unglingalandsliðsmenn voru í lykilhlutverki í liði Blika á síð- ustu leiktíð en félagið vann þá sinn fyrsta stóra titil í meistara- flokki karla. Alfreð var að gæla við að kom- ast í atvinnumennsku og reyndi meðal annars fyrir sér á Eng- landi og Noregi en var ekki boð- inn samningur. Hann verður væntanlega með Blikum í sumar úr því sem komið er en hann sló eftirminnilega í gegn síðasta sumar og var val- inn efnilegasti leikmaður deildar- innar. - hbg Blikar semja og semja: Alfreð og Arn- ór framlengdu ÁFRAM Í KÓPAVOGI Alfreð verður áfram með Blikum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Í gær var tilkynnt á heimasíðu danska úrvalsdeildar- félagsins Esbjerg að Gunnar Heiðar Þorvaldsson yrði lánaður til Reading á Englandi frá ára- mótum til loka tímabilsins. Enn var þó verið að ganga frá samningamálum í gær en Ólafur Garðarsson, umboðs- maður Gunnars Heiðars, sagði það aðeins formsatriði að skrifa undir samninginn. Gunnar Heiðar æfði með Reading í gær og voru því fjórir Íslendingar á æfingunni en auk hans eru þeir Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson á mála hjá Reading. - esá Gunnar Heiðar Þorvaldsson: Fer til Reading HANDBOLTI Skipun úrvalsliða fyrsta hluta N1-deilda karla og kvenna var tilkynnt í gær. Báðar deildir eru komnar í jólafrí en keppni í N1-deild karla hefst ekki fyrr en í febrúar vegna EM í handbolta sem haldið verður í Austurríki í janúar. FH-ingurinn Ólafur Guðmunds- son var valinn besti leikmaðurinn karlamegin en hann hefur verið lykilmaður í liði FH sem margir spáðu velgengni í haust. Gengi FH hefur þó verið misjafnt á tímabil- inu til þessa. „Við þurfum að sýna meiri stöðug leika á seinni hluta tíma- bilsins. Við höfum verið að klúðra niður leikjum sem við áttum að vinna og tapað þannig stigum. En það hefur einnig sýnt sig að allir geta unnið alla í þessari deild. Við höfum til að mynda náð ágætis úrslitum gegn efri liðum deildarinnar en átt í vandræðum með hin. Við þurfum einnig að ná betri árangri á heimavelli,“ sagði Ólafur. Hann segir FH-inga þó ekki geta kvartað undan því að liðið situr nú í 2. sæti deildarinnar með ellefu stig. Reyndar eru liðin í 2.-5. sæti öll með jafn mörg stig og því útlit fyrir harða samkeppni um sæti í úrslitakeppninni í vor. Allt til staðar hjá FH „Deildin hefur verið mjög skemmtileg og það eru ekki nema þrjú stig í Haukana á toppnum. Það er allt til staðar hjá FH til að ná góðum árangri – bæði hörku- mannskapur og góður þjálfari. Við þurfum þó aðeins að bæta hugar- farið okkar,“ sagði Ólafur. En rétt eins og hjá FH hefur árið verið misjafnt hjá Ólafi. „Það hefur verið mjög gott eftir að ég var lengi frá vegna meiðsla. Þá tók ég þátt á HM U-21 liða í Egypta- landi sem var góð reynsla.“ Ólafur segir að meiðslin hafi í raun átt sinn þátt í því að gera hann að betri handboltamanni. „Í svona löngum meiðslum fer maður að hugsa betur um hvað maður vill fá úr sjálfum sér og hvaða árangri maður vill ná. Ég var duglegur að æfa og lít þannig á að ég hafi komið sterkari aftur til leiks. Ég er vissulega með háleit markmið og ætla mér alla leið. Þess vegna er maður í þessu.“ Liðsheildin sterk hjá Val Berglind Íris Hansdóttir, mark- vörður Vals, var valin besti leik- maður N1-deildar kvenna. Hún er lykilmaður í taplausu liði Vals sem trónir nú á toppi deildarinnar með þriggja stiga forystu á næsta lið. Reyndar hafa ekki öll lið spilað jafn marga leiki í haust og gefur því núverandi staðan í deildinni ekki hárrétta mynd af stöðu lið- anna. En Valsmenn hafa átt gott haust. „Ég átti von á því að við mynd- um mæta þetta sterkar til leiks. Við misstum þó nokkra leikmenn í sumar og þurftum því tíma til að slípa liðið saman. En þetta hefur allt smollið vel saman og liðsheild- in er mjög sterk,“ sagði Berglind. Hún segir að mótspyrnan sé ekki minni en hún reiknaði með. „Alls ekki. Það hafa verið margir hörkuspennandi leikir í deildinni. Vissulega átti maður von á því að Haukar yrðu sterkari enda eru þar leikmenn sem hafa verið lengi að spila saman. En þeir hafa verið á uppleið á síðustu vikum og ég á von á því að Haukar verði mjög sterkir eftir áramót.“ Fram og Stjarnan hafa einnig átt góðu gengi að fagna í haust og á Berglind von á því að þessi lið ásamt Val og Haukum munu áfram berjast á toppnum til loka tímabils- ins. „Það er samt ómögulegt að spá fyrir um hvernig þetta muni spil- ast áfram,“ bætir hún við. Berglind hefur sjálft átt gott ár og spilað vel bæði með Val og íslenska landsliðinu sem stefnir nú á sitt fyrsta stórmót. „Ég hef verið að halda ágætis stöðugleika og get því verið nokk- uð sátt. Mér finnst ég enn vera að bæta mig enda kemur ýmislegt með reynslunni.“ eirikur@frettabladid.is Þurfum að vera stöðugri á nýju ári FH-ingurinn Ólafur Guðmundsson var í gær útnefndur besti leikmaður fyrstu níu umferða N1-deildar karla. Berglind Íris Hansdóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins, var valin best í N1-deild kvenna. ÞAU BESTU Berglind Íris Hansdóttir, Val, og FH-ingurinn Ólafur Guðmundsson með viðurkenningar sínar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BEST Í N1-DEILDUNUM N1-deild karla Bestur: Ólafur Guðmundsson, FH Þjálfari: Aron Kristjánsson, Haukum Markvörður: Hlynur Morthens, Val Lína: Atli Ævar Ingólfsson, HK V. horn: Freyr Brynjarsson, Haukum V. skytta: Sigurbergur Sveinss., Hauk. H. horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val H. skytta: Ólafur Guðmundsson, FH Leikstj.: Jónatan Magnússon, Akureyri N1-deild kvenna Best: Berglind Íris Hansdóttir, Val Þjálfari: Stefán Arnarson, Val Markvörður: Berglind Íris Hansd., Val Lína: Anna Ú. Guðmundsdóttir, Val V. horn: Rebekka Skúladóttir, Val V. skytta: Hrafnhildur Skúladóttir, Val H. horn: Hanna G. Stefánsd., Haukum H. skytta: Alina Tamasan, Stjörnunni Leikstj.: Ragnhildur Guðmundsd., FH Aðrar viðurkenningar Besta dómaraparið: Gísli H. Jóhanns- son og Hafsteinn Ingibergsson Besta umgjörðin: Akureyri > Stendur í stað á heimslistanum Íslenska knattspyrnulandsliðið stendur í stað á heimslista FIFA sem var gefinn út í gær. Ísland er í 92. sæti en liðið hefur ekki spilað neinn leik síðan síðasti listi var gefinn út. Þetta er síðasti listi ársins en hæst komst Ísland í 75. sæti á árinu. Það var í mars en á næsta lista féll liðið um átján sæti. Ísland er í 40. sæti meðal Evr- ópuþjóða, á milli Hvíta-Rúss- lands og Moldóvu. Spánverjar eru enn efstir á listanum en engar breytingar voru á ellefu efstu sætunum. KÖRFUBOLTI Körfuboltakapp- inn Haukur Pálsson hefur vakið verðskuldaða athygli með skóla- liði sínu á Flórída í Bandaríkjun- um í vetur. Haukur Helgi Pálsson hefur lengi verið einn allra efni- legasti körfuboltamaður landsins og í vetur ákvað hann að fara í bandarískan menntaskóla. Haukur Helgi hefur staðið sig mjög vel með Montverde-skólan- um og hefur frammistaða hans vakið athygli þar á meðal hjá Joe Williams, blaðamanni Orlando Sentinel sem er stærsta blaðið á svæðinu. Williams greinir þar frá því að Haukur Helgi sé í hópi bestu leikmanna Flórída og að margir stórir skólar séu á eftir stráknum. Hauki hefur þegar verið boðinn skólastyrkur hjá University of South Florida en skólar eins og Vanderbilt, Virgin- ia Commonwealth, Notre Dame, Harvard og University of Central Florida hafa einnig sýnt honum áhuga. „Þú getur varla trúað því sem ég hef verið spurður að síðan ég kom hingað,“ segir Haukur Helgi í upphafi viðtalsins en greinin hefst á því að leiðrétta þann misskiln- ing að Íslendingar búi í snjóhúsum og hafi ekkert rafmagn. Haukur Helgi er með 11,5 stig og 5,5 frák- öst að meðaltali hjá Montverde. „Hann les leikinn vel og er mjög fjölhæfur leikmaður. Hann hefur góða skottækni og getur bæði spilað fyrir utan sem og inni í teig,“ segir Kevin Sutton, núverandi þjálf- ari hans hjá Montverde. Haukur Helgi segir frá því í viðtalinu að hann sé herbergisfélagi Senegalans Papa Samba Ndao og Brasilíumanns- ins Matheus Saroli. Papa Samba Ndao spilar körfu- bolta með Hauki en Saroli er sá markahæsti í fótboltaliðinu. „Það er frábært að hafa fulltrúa þriggja heimsálfa í einu herbergi,“ segir Haukur. „Þetta er gott tæki- færi til þess að kynnast ólíku fólki með allt aðra siði og venjur.“ Í greininni segir að Haukur Helgi hafi flott skot, góða yfir- sýn og góðan skrokk fyrir baráttuna undir körfunni en aðalviðbrigðin fyrir hann hafi verið að venjast ólík- um leikstíl. „Það er miklu meiri hraði hér, krakkarn- ir eru þroskaðri hér og það geng- ur ekki að vera „mjúkur“. Það eru líka betri íþróttamenn hér en heima á Íslandi,“ segir Haukur Helgi í viðtalinu við Orlando Sentinel. - óój Körfuboltakappinn Haukur Helgi Pálsson eftirsóttur hjá mörgum háskólaliðum: Notre Dame og Harvard meðal skólanna sem hafa rætt við Hauk Hlynur Morthens, eða Bubbi eins og hann er iðulega kallaður, var í gær útnefndur besti markvörður fyrstu níu umferða N1- deildar karla. Hann gekk í raðir Vals í sumar þar sem hann hefur átt frábæru gengi að fagna og blómstrað í markinu. „Þetta er virkilega skemmtilegt fyrir mig,“ sagði hann við Fréttablaðið í gær. „Ég er ótrúlega ánægður og stoltur af þessari viðurkenningu.“ Hann segir að árið hafi þróast á annan máta en hann bjóst við. „Fyrir ári var ég í Gróttu í 1. deildinni og átti ekki von á að fara neitt annað. En svo datt ég í Val þar sem allt hefur gengið upp hjá mér persónu- lega. Ég er auðvitað með mjög öfluga varnarmenn fyrir framan mig sem hjálpar mér mikið.“ Hann segir Valsmenn vera ágætlega sátta við sína stöðu í deildinni en liðið er með ellefu stig, rétt eins og þrjú önnur lið sem skipa 2.-5. sæti deildarinnar. Valsmenn eru þó í fjórða sæti vegna innbyrðis árangurs þessara liða og sleppa því naumlega inn í deildarbikar- keppnina sem haldin verður á milli jóla og nýárs. „Auðvitað vildum við vera með fleiri stig en við höfum verið óheppnir með meiðsli. Ég tel að Valur sé það lið sem muni bæta sig hvað mest eftir áramót enda er von á að bæði Baldvin [Þorsteinsson] og Siggi [Sigurður Eggertsson] verði þá með.“ Hann segir þó deildina hafa verið mjög skemmtilega. „HK redd- aði hinum liðunum um daginn þegar það vann Hauka sem hefðu stungið af með sigri í þeim leik. En það sýndi líka að Haukar eru ekki með yfirburðalið í deildinni og alls ekki ósigrandi,“ sagði Hlynur. Það er nokkuð langt í neðstu lið deildarinnar – Fram og Stjörnuna – sem hafa verið talsvert á eftir öðrum liðum í haust. „Ég á þó ekki von á öðru en að þessi lið og þá sér- staklega Fram munu ná sér á strik eftir áramót. Það er enn nóg eftir af deildinni og þessi lið geta enn bjargað sér frá falli.“ En árið segir hann hafa verið nokkuð gott hjá sér. „Mér líður vel og er í fínu standi. Ég hef alltaf talið mig vera fínan markvörð og ef varnarmennirnir nenna að djöflast fyrir framan mig þá skal ég taka rest.“ HLYNUR MORTHENS: BESTI MARKVÖRÐURINN Í FYRSTU NÍU UMFERÐUM N1-DEILDAR KARLA Ótrúlega ánægður og stoltur af viðurkenningunni UPPALINN Í FJÖLNI Haukur Helgi Pálsson spilaði stórt hlutverk með meistaraflokksliði Fjölnis í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Forma mótorkross og fjórhjólaskór. Sixsixone hlífar og brynjur. Sixsixone, G-max og AGV-hjálmar. Full búð af nýjum og vönduðum vörum! GARÐABÆ - Sími 563 5411 Útivist og sport Opið 10 til 22 til jóla ÖRUGG JÓLAGJÖF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.