Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 88
68 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Þrjár plötur eru áberandi söluhæst-
ar það sem af er þessu ári. Plata
Friðriks Ómars og Jógvans, Vina-
lög, er á toppnum með um níu þús-
und eintök seld, þar af tvö þúsund í
Færeyjum. Næst á eftir koma Jóla-
tónleikaplata Björgvins Halldórs-
sonar og fjórða plata Hjálma með í
kringum sjö þúsund eintök hvor.
Eiður Arnarsson, útgáfustjóri
Senu, er að vonum ánægður með
viðtökurnar við Vinalaga-plötunni.
„Þetta er gott dæmi um plötu sem
er að virka út á brjáðsnjalla hug-
mynd,“ segir Eiður. Tvö þúsund
eintökin í Færeyjum eru einnig
ánægjuefni. „Ég er ekki sérfræð-
ingur um færeyska markaðinn en
mig grunar að þetta sé söluhæsta
platan í Færeyjum fyrir jól.“ Eiður
bætir við að stóri munurinn á
sölunni núna og undan farin ár sé
sá að söluhæstu plöturnar í ár eru
ekki jafnsöluháar og vinsælustu
plöturnar í fyrra. Þá seldi Páll
Óskar um fimmtán þúsund ein-
tök af Silfur safninu, plata með
minningar tónleikum Vilhjálms
Vilhjálmssonar seldist í um tólf
þúsund eintökum og Mamma Mia
fór í um ellefu þúsundum. „Fjórar
vinsælustu plöturnar í fyrra
náðu meira en tíu prósentum af
heildar sölunni en í ár ná þær mun
minna.“
Steinþór Helgi Arnsteinsson
hjá Borginni er engu síður á því
að plata Hjálma, IV, gæti hæg-
lega selst í tólf þúsund eintökum.
Það yrði mun meiri sala en á fyrri
plötum sveitarinnar, sem hefur
verið í kringum sjö þúsund ein-
tök. „Það er eitthvað bjartara og
jákvæðara yfir þessari plötu en
þeirri síðustu og ég held að það sé
að skila sér,“ segir Steinþór. - fb
Þrjár plötur seljast langbest
FRIÐRIK OG JÓGVAN Plata Friðriks
Ómars og Jógvans, Vinalög, hefur selst í
um níu þúsund eintökum á Íslandi og í
Færeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vefritið TMZ hefur greint frá því
að íþróttafyrirtækið Puma sé á
höttunum eftir Elinu Nordegren,
eiginkonu Tiger Woods, og
vilji fá hana sem nýtt andlit
fyrirtækisins.
Samkvæmt TMZ eru samning-
ar milli Puma og Nordegren á
lokastigi. Talsmaður fyrirtækis-
ins hefur jafnframt staðfest að
viðræður hafi átt sér stað og
hyggst Puma framleiða nýja fata-
línu, Tretorn, og er innblástur
fyrir línuna sóttur til heimalands
Nordegren, Svíþjóðar. Tals maður-
inn sagði jafnframt að ástæðan
fyrir því að Puma hafi áhuga á
Nordegren sé sú að hún „passi
við ímynd fyrirtækisins“.
Elin Nordegren hefur aðeins
sést tvisvar eftir að upp komst
um framhjáhald Woods. Hún
brosir framan í myndavélarnar
og ber sig vel en athygli vekur að
hún ber engan hring á fingri.
Frá Tiger
til Puma
MEÐ SAMNING Elin Nordegren gæti
hafa landað stórum samningi við Puma.
Snorri Helgason heldur útgáfu-
tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum
í kvöld. Upphaflega stóð til að Ríó
tríóið og Sigríður Thorlacius og
Heiðurspiltar myndu hita upp, en
Sigríður forfallaðist. Þá kom félagi
hennar í Hjaltalín, kammergoðið
Högni Egilsson, sterkur inn og var
vélaður til að hlaupa í skarðið.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
kem fram einn og ég veit satt að
segja ekkert hvað ég ætla að gera.
Ég ákveð það bara í dag,“ segir
Högni, fremur skelfdur. „Ég held
ég verði bara með einhver grín-
lög. Ekki uppistand kannski, en
eitthvert grín bara.“
Hann segir sólóferil ekki í píp-
unum enda gengur pípandi vel
með Hjaltalín. Platan Terminal,
sem hefur fengið glimrandi góða
dóma, seldist upp á fáum dögum.
„Upplagið seldist miklu hraðar en
við áttum von á,“ segir Högni. „Öll
eintökin fóru í fyrstu vikunni og
platan var ekki fáanleg í viku. Nú
er víst búið að redda þessu, sem
betur fer.“ - drg
Högni grínast fyrir Snorra
VERÐUR MEÐ GRÍN Högni í Hjaltalín
verður með fyrsta sólógiggið í kvöld.
Hljómsveitirnar Hjálmar og
Hjaltalín leiða sama hesta sína
og fagna jólahátíðinni með tón-
leikum á Nasa á laugardags-
kvöld. Samkoman er haldin undir
merkjum tónlistarveislunnar
Jólagrautsins sem hefur verið
haldin í kringum hátíðirnar frá
árinu 2005. Þá léku Hjálmar,
Mugison og Trabant á eftirminni-
legum tónleikum. Hjálmar eru að
fagna nýrri plötu sinni sem nefn-
ist IV og Hjaltalín gaf á dögunum
út sína aðra plötu, Terminal.
Miðaverð á tónleikana er 2.000
krónur í forsölu en verður 2.500
krónur við hurð á tónleikadag.
Miðar fást í Skífunni og á Midi.is.
Tvær spila á
Jólagraut
HJALTALÍN Hljómsveitin Hjaltalín spilar á
hátíðinni Jólagraut á laugardagskvöld.
TÓNLIST, MYNDIR & SPIL
Á FRÁBÆRUM AFSLÆTTI
1.680 kr.
verð áður 2.325 kr.
2.690 kr.
verð áður 3.390 kr.
afsláttur
21%
afsláttur
28%
1.990 kr.
verð áður 2.550 kr.
1.480 kr.
verð áður 1.990 kr.
1.680 kr.
verð áður 2.365 kr.
Tilboðin gilda til og m
eð 21.des eða á m
eðan birgðir endast
Anna Mjöll
Shadow of your smile
Stefán Hilmarsson
Húm
Guðrún Gunnars
Cornelis Vreeswijk
Friðrik Ómar og Jógvan
Vinalög
Hjálmar
IV
Söngvaseiður
Tónlistin úr sýningu Borgarleikhússins
Eivör
Live
Karneval dýranna
Sögumaður: Örn Árnason
afsláttur
29%
afsláttur
29%
afsláttur
22%
1.990 kr.
verð áður 3.190 kr.
1.990 kr.
verð áður 3.190 kr.
afsláttur
38%
1.990 kr.
verð áður 2.890 kr.
afsláttur
26%
afsláttur
31%
2.950 kr.
verð áður 3.950 kr.
afsláttur
25%
2.950 kr.
verð áður 3.950 kr.
afsláttur
25%
3.990 kr.
verð áður 5.590 kr.
afsláttur
29%
2.490 kr.
verð áður 2.990 kr.
afsláttur
17%
5.890 kr.
verð áður 6.990 kr.
4.890 kr.
verð áður 6.190 kr.
2.490 kr.
verð áður 3.190 kr.
Heilaspuni
Spil fyrir skapandi Íslendinga
Kollgátan
Bráðskemmtilegt spurningaspil
Memory
Íslenska stafrófið
afsláttur
16%
afsláttur
21%
afsláttur
22%
20% afsláttur af
Ravensburger púslus
pilum