Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 58
17. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● sængur og sængurver
● KOMDU Í KODDASLAG Koddaslagur er eldgamalt fyrirbæri. Líklega hafa flestir nokkuð góða
hugmynd um út á hvað slíkur slagur gengur. Oftast er hann leikinn í góðu og oftar en ekki sprettur slíkur
leikur upp þegar nokkur börn gista saman.
Hér áður fyrr gátu slíkir slagir endað á því að efnið utan um koddana rifnaði svo fiðrið þeyttist út um
allt. Koddar í dag eru yfirleitt betri að gæðum og slík slys því fágæt. Auk þess hefur fiðrinu oft verið skipt
út fyrir nýmóðins frauðefni.
Yfirleitt fer koddaslagur fram í heimahúsi. Þess eru þó dæmi að keppt hafi verið í slíkum slag á
opinberum vettvangi. Reuters-fréttastofan sagði til dæmis frá því í janúar 2007 að koddaslagsdeild hefði
verið stofnuð á börum í Toronto. Þar fengu konur borgað fyrir að taka þátt í koddaslag.
Nemendur við Kólumbíuháskóla í Bandaríkjunum standa einnig fyrir svokölluðum vorkoddaslag.
Nemendur hlaupa þá inn á mitt háskólasvæðið á miðnætti fyrir fyrsta dag prófa og slást og öskra til að
losna við streitu.
Stærsti koddaslagur sem um getur var haldinn í Grand Rapids í Michigan-ríki í Bandaríkjunum í
september 2008. Rob Bliss nokkur sá um skipulagninguna en hann hefur einnig reynt að slá metið í
fjölmennustu uppvakningavöku heims.
Fallegt rúmteppi er svefnherberg-
isprýði og rúmteppi eru ekki bara
til að fela óumbúið rúm heldur hlífa
þau rúmfötum við daglegu hnjaski
og gefa stílhreint yfirbragð. Búta-
saumsteppi á rúm er persónuleg-
ur dýrgripur sem flestir meta
að verðleikum enda liggur oftast
gríðarleg vinna og hugsun í hverju
slíku.
Margir telja að upphaf búta-
saums megi rekja til Ameríku en
fæstir vita að hann má rekja aftur
til Egyptalands hins forna. Elsta
bútasaumsteppi í heimi fannst í
helli í Mongólíu og talið vera frá
því um kristsburð. Í Norður-Am-
eríku voru bútasaumsteppi gerð
til að hlýja hermönnum í frelsis-
stríðinu og seinna voru þau seld á
mörkuðum sem haldnir voru til að
leggja lið baráttunni gegn þræla-
haldi. Þá voru þjáningar þræl-
anna gjarna saumaðar í teppið og
þannig minnt á málstaðinn.
Bútasaumurinn nú er einkum í
gerð vegg- og rúmteppa úr mislit-
um bútum ýmist handsaumuðum
eða vélsaumuðum. Vegna mikils
áhuga á bútasaumi um heim allan
hafa sprottið upp bútasaumsklúbb-
ar, þar sem unnið er með allt mögu-
legt varðandi bútasaum og langt
leiddir bútasaumarar geta spjall-
að samam og skipst á heilræðum
og hönnun.
Hlý og góð
rúmteppi
● BENDLABÖNDIN
STRAUJUÐ Sumir eru ólatari
en aðrir. Til dæmis við að strauja.
Til eru þeir sem setja sögn-
ina að strauja bara í samband
við tölvur og greiðslukort. Aðrir
strauja það allra nauðsynleg-
asta, svo sem spari-
skyrturnar en til eru
líka þeir einstakling-
ar sem nostra við
að slétta allan
þvott og leggja
sig sérstaklega
fram við að
hafa bendla-
böndin vel
straujuð.
Það er
vissulega
fallegt.
Bútasaum má rekja til Egyptalands.
Frjáls framlög www.jolagjofin.is
904-1000 kr. 1.000
904-2000 kr. 2.000
904-3000 kr. 3.000
kl.19-21
STYRKTARTÓNLEIKAR
Í fátækrahverfum Suður-Afríku reka íslenskar konur hjálparstarf
fyrir mæður sem neyðast til að gefa nýfætt barn sitt til ættleiðingar.
Ástæðurnar eru oftast sárafátækt og/eða útskúfun. Í mörgum
tilfellum er konunum nauðgað, en hvergi í heiminum eru nauðganir
fleiri. Ef konan verður barnshafandi í kjölfarið er hún gjarnan gerð
ábyrg fyrir nauðguninni og oft gerð brottræk úr samfélaginu.
Enza hefur hjálpað konum í þessari stöðu að komast í tækifærin sem
eru til staðar á svæðinu. Með tölvukennslu í Enza skólanum hefur
sumum þeirra tekist að fá vinnu. Þannig geta þær séð fyrir sér - og
jafnvel öðrum - og orðið í leiðinni fyrirmyndir annarra kvenna í
fátækrahverfunum.
Draumur okkar í Enza er að geta byggt
hús sem verður tímabundið heimili fyrir
stúlkurnar á meðan þær eru að fóta sig í
tilverunni á ný. Kostnaður við byggingu
hússins er um þrjár milljónir, en þá
vantar fjármagn fyrir innbúi og til að reka
heimilið. Fjárþörf Enza fyrir byggingu
hússins, innbúi og rekstri í eitt ár er
6,5 milljónir.
jolagjofin.is
gjöfin
BEIN ÚTSENDING 21.DES. kl.18:55-19:25
JÓLAÞORPINU
ABC - MÆÐRASTYRKSNEFND - RAUÐI KROSSINN - STÍGAMÓT - ENZA