Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 57
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009 11sængur og sængurver ● fréttablaðið ●
Heilsan er í hávegum höfð í
versluninni Betra baki í Faxa-
feni 5 sem sérhæfir sig í sölu
á rúmum, dýnum og öllu sem
viðkemur svefnherberginu.
Að sögn Jóns Woodard, verslunar-
stjóra Betra baks, hefur verið lögð
áhersla á að bjóða upp á heilsu-
tengdar vörur í búðinni í þau
fimmtán ár sem hún hefur verið
starfrækt. „Ég get sem dæmi nefnt
þéttofin sængurver úr hágæða
Maco-satíni frá hinu gamalgróna
þýska fyrirtæki Elegante,“ segir
hann. „Þéttleikinn ljáir sængunum
mýkt og glansandi áferð. Þær eru
að auki léttar, vel hólfaðar og gerð-
ar úr byltingarkenndu hitajöfnun-
arefni sem nefnist outlast. Efnið
var fyrst þróað af Geimferðastofn-
un Bandaríkjanna (NASA) fyrir
geimfara til að viðhalda jöfnu
hitastigi líkamans í geimbúning-
unum. Sama gildir um sængurnar,
þær tryggja að notendunum verð-
ur ekki kalt á nóttunni.“
Jón bendir á að koddarnir sem
fást í búðinni lúti sömu lögmálum
hvað heilsuna varðar. „Hér fást
Tempur-koddar, sem eru búnir
sams konar hitajöfnunaareigin-
leikum og sængurnar og eru líka
misþykkir og -stífir. Svo erum við
með fjórar gerðir af dúnkoddum
frá Quilts of Denmark, sem allir
eru með latexfyllingu annað hvort
í föstum eða breytilegum stærðum.
Með breytilegum stærðum á ég við
latexfyllingu í nokkrum lögum sem
hægt er að fjarlægja að eigin vild
eða allt eftir því hversu hátt undir-
lag fyrir höfuðið notandinn vill.“
Í Betra baki fæst einnig gott
úrval af rúmfatnaði frá Elegante,
en Jón segir að í bransanum sé
fyrirtækið oft kallað Rollsinn í rúm-
fötum. „Þeir hafa fengið tvo frá-
bæra en jafnframt mjög ólíka hönn-
uði til liðs við sig, þá Bruno Ban-
ani og Joop sem eru hvor með eigin
línu. Þeir eru báðir þekktir innan
bransans og sérstaklega Joop en
sængurföt frá honum njóta mikilla
vinsælda.“ En eru einhverjir sér-
stakir litir í tísku fyrir þessi jól?
„Ætli það séu ekki einna helst rauð-
ur og fjólublár og svo er hvítur
náttúr lega klassískur.“
Jón segir vel tekið á móti við-
skiptavinum Betra baks, þar sem
starfsfólk með allt að fimmtán ára
reynslu og viðamikla þekkingu á
sínu sviði bjóði fram ráðgjöf og
geti aðstoðað þá við val á rúmum,
dýnum og öðrum vörum sem tengj-
ast rúmamarkaði. Auk þess er við-
skiptavinum á höfuðborgarsvæð-
inu boðið upp á fría heimsend-
ingu.
Rollsinn í rúmfatnaði
„Við sérhæfum okkur í sölu á stillanlegum rúmum og viðurkenndum heilsudýnum,
-koddum og sængum,“ segir Jón Woodard, verslunarstjóri Betra baks. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● LOSNAÐ VIÐ HÁRIN ÚR RÚMINU Hundar og kettir elska að kúra í rúmum eigenda sinna.
Þó yfirleitt sé þeim bannað að fara upp í bólið eiga gæludýrin það til að skjótast þangað þegar enginn
sér til. Þá skapast sá vandi hvernig losna eigi við hárin sem vilja festast við lak, sæng, kodda eða
ábreiðu.
Límrúllan kemur þar sterk inn. Hún er besti vinur gæludýraeigandans og ætti að vera til
í mörgum eintökum bæði til að hreinsa hár af fötum en einnig af sófasettum, teppum og
rúmfötum.
Einnig er hægt að leita til gæludýrabúða sem sumar hverjar bjóða upp á sérstaka töfra-
bursta sem hægt er að nota á sætin í bílum, sófann, stólinn eða rúmið.
Ryksugan er svo einnig betri en engin. Sumar þeirra öflugri sjá einnig um að djúphreinsa
dýnur sem er ekki amalegt hafi kisi gert sér bæli þar einhvern tímann.