Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 56
17. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● sængur og sængurver
Menning og náttúra leika lykil-
hlutverk í hönnun Lín Design
en fyrirtækið hefur frá stofnun
sérhæft sig í sölu á alls kyns
vörum fyrir svefnherbergið.
Lín Design er eini aðilinn á inn-
lendum markaði með íslenska
rúmvörulínu fyrir svefnherberg-
ið. Íslensk náttúra og menningar-
arfleifð er helsti innblástur hönn-
unar fyrirtækisins, en fyrir þessi
jól er hún undir sterkum áhrifum
frá gömlum og vinsælum barna-
vísum auk verka listamannsins Al-
freðs Flóka.
„Eftir þá sprengingu sem varð
í fæðingum á árinu ákváðum við
að bæta við úrvalið í barna línunni
okkar. Brugðum á það ráð að búa til
myndir upp úr vinsælum vísum, til
dæmis Dýravísum eftir Jón Leifs,
og bróderuðum þær síðan í sæng-
urfatnað fyrir börn,“ útskýrir
Bragi Smith, framkvæmdastjóri
Lín Design, og bætir við að verkið
Elskendur eftir teiknar ann Alfreð
Flóka hafi hlotið sams konar með-
ferð en útkoman sé aftur á móti
hugsuð fyrir fullorðna.
Meðal annarra minna í sængur-
fatnaði má nefna íslenska skjaldar-
merkið og ýmis þjóðleg blóm sem
hafa frá upphafi einkennt hönnun
Lín Design. „Við ákváðum strax í
byrjun að leggja áherslu á innlenda
textílhönnun með skírskotanir í
íslenska náttúru og menningar-
arfleifð, ekki síst eftir að okkur
varð ljóst að lítið sem ekkert hafði
verið gert af því, að minnsta kosti
ekki fram að þeim tíma. Svo höfum
við haft þá reglu að leiðarljósi að
bæta árlega við einu til tveimur
blómum en breyttum út af vana í
þetta sinn og höfðum þau fleiri þar
sem fyrirtækið fagnar fimm ára af-
mæli á árinu.“
Bragi segist almennt hafa skynj-
að aukinn áhuga á íslenskri hönnun
að undanförnu, fólki sé í mun að vita
hverjir standi á bakvið hönnunina
og hverjar hugmyndirnar séu. „Sem
er alls ekkert skrítið, enda margir
sem koma að verkinu, hópur hæfi-
leikaríkra íslenskra hönnuða og svo
er sjálf varan unnin úr hágæðal-
íni sérvöldu erlendis frá.“ Hann
bætir við að hönnunin veki sömu-
leiðis áhuga á íslenskri menningu.
„Þetta er auðvitað kjörin aðferð til
að koma menningararfleifðinni á
framfæri og kynna, sérstaklega
fyrir yngstu kynslóðinni.“
Bragi tekur fram að þess utan
fáist í versluninni allt til alls í
svefnherbergið, þar með talið rúm-
teppi, pífur, gardínur, koddar og
andardúnsængur í öllum stærðum
og gerðum. „Þess má geta að sæng-
urnar innihalda einungis 100 pró-
sent hvítan andardún. Hér er um
hreina náttúruafurð að ræða sem
er algjörlega laus við hvers kyns
efnasamsetningar,“ segir hann
og bætir við að sængurnar séu að
auki unnar í sérstökum vélum sem
hreinsi burt ryk og önnur óhrein-
indi og henti því vel ofnæmis- og
astmaveikum.
Náttúran veitir innblástur
Íslensk menningararfleifð og náttúra gegna lykilhlutverki í allri hönnun Lín Design að sögn Braga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
● STIMPLAÐ Á RÚMFÖT Þeir sem vilja setja sitt eigið mark á
svefnherbergið geta leikið sér að því að stimpla og mála á sængur-
föt. Best er þá að fjárfesta í einföldum, hvítum sængurfötum sem þurfa
ekki að kosta mikið og hefjast handa.
Verkið er flóknara en svo að hægt sé að lýsa því í nokkrum orðum,
en hægt er að benda á vefsíður á borð við www.diyideas.com sem er
vefsíða með ábendingum um hvernig gera megi hlutina sjálfur. Þar er
aðferðunum lýst með nokkurri nákvæmni. Þar er einnig bent á þau efni
sem best er að nota.
Verð 29.900,-