Fréttablaðið - 17.12.2009, Qupperneq 30
30 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
■ Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri
Neytendablaðsins.
„Ég set gömul ban-
anahýði ofan í mold-
ina hjá rósunum í
garðinum. Sama er
gott að gera við kaffi-
korg, að grafa hann
með með rósunum
sem fá þarna viðbótarnæringu. Þá
mæli ég með Undra-penslasápunni
til þess að láta gamla og harðnaða
pensla ganga í endurnýjun lífdaga.“
Eftir umhugsun bætir Brynhildur við
að gangi hálf sítróna afgangs megi
maka úr henni á blöndunartæki til
að hreinsa þau, eða kreista út í vatn
og hita í örbylgjuofni. „Þá verður
auðveldara að þrífa hann og kemur
góð og náttúruleg lykt.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
SÍTRÓNA Í ÞRIFIN
Verðmerkingum í sýningargluggum
verslana í miðbæ Reykjavíkur var
ábótavant í 42 prósentum tilfella þegar
Neytendastofa fór í eftirlitsferð þar
í byrjun desember. Þá voru vörur í
sýningargluggum 44 verslana af 138,
eða 32 prósenta, óverðmerktar með
öllu. Lögum samkvæmt ber verslunar-
eigendum að verðmerkja vörur, bæði
inni í verslunum og í sýningargluggum.
Farið var inn í 152 verslanir, þar af 138
með sýningarglugga. Tvær af þessum verslunum voru beðnar að laga verð-
merkingar sínar innandyra, Gull og Silfur, Laugavegi 52, og Guðbrandur Jezorski
gullsmiður, Laugavegi 48. Alls 58 verslanir fengu áminningu vegna vanmerk-
inga í gluggum.
■ Algengt að verðmerkingum sé ábótavant í búðargluggum
Nær helmingur trassar að verðmerkja
Allt að 85 prósenta verðmunur var á nýjum jólabókum
þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í tólf bókaverslun-
um og stórmörkuðum víðs vegar um landið í fyrradag.
Skoðað var verð á 50 bókatitlum og var munur á hæsta
og lægsta verði oftast á bilinu 30 til 70 prósent. Sem
dæmi má nefna að bókin Svörtuloft eftir Arnald Ind-
riðason var ódýrust á 3.414 krónur hjá Nettó og dýrust
á 5.690 í Bókabúð Máls og menningar, munurinn eru
tæp 70 prósent. Bónus var oftast með lægsta verðið í
könnuninni, eða á sautján titlum, en þar voru fáanlegir
22 titlar af þeim 50 sem kannaðir voru. Bókabúð Máls
og menningar var oftast með hæsta verðið í könnun-
inni, eða á 38 titlum, þar var mesta úrvalið eða 49 titlar
af þeim 50 sem skoðaðar voru. Penninn Eymundsson
var næstoftast með hæsta verðið, eða á 20 titlum, og voru 48 titlar fáanlegir í
versluninni. Nánari upplýsingar um könnunina er að finna á vef ASÍ, www.asi.is.
■ Mikill munur á verði og framboði samkvæmt könnun ASÍ
70% verðmunur á Svörtuloftum Arnalds
34 prósent norskra karlmanna eru ekki byrjuð að
kaupa jólagjafir þegar rúm vika er til jóla. Þetta
kemur fram í nýrri könnun sem greint er frá í
norska dagblaðinu Aftenposten. Konurnar eru
öllu fyrr á ferðinni en 90 prósent norskra kvenna
eru byrjuð á gjafainnkaupum. 28 prósent Norð-
manna hafa lokið gjafainnkaupunum, þriðjungur
kvenna og 23 prósent karla. Markaðsstjóri sem
blaðið ræðir við segir mynstrið kunnuglegt, örvænt-
ingarfullir karlar í leit að gjöfum á síðustu stundu
séu þekkt fyrirbæri á meðal verslunarfólks.
Norðmannsþinur er vin-
sælasta jólatréð nú sem
endranær en stafafuran
íslenska hefur þó áunnið
sér vinsældir í seinni tíð.
Tiltölulega lítill verðmunur
er á milli hæsta og lægsta
verðs á Norðmannsþini hjá
sölustöðum sem Fréttablað-
ið hringdi í en mjög mikill
á stafafurunni, 80 prósent á
150 sentímetra trjám.
Jólatrjáasala er hafin af fullum
krafti að sögn þeirra sem starfa
við sölu jólatrjáa. Fréttablaðið
hafði samband við fimm útsölu-
staði jólatrjáa og var það mál
manna að salan væri ágæt sem af
er. Norðmannsþinur er langvinsæl-
asta tegundin nú sem endranær,
þau tré eru innflutt frá Danmörku
og í hugum margra jólalegust af
öllu jólalegu.
Samkvæmt könnun Fréttablaðs-
ins er rúmlega 10 prósenta verð-
munur á Norðmannsþini í 150
sentímetra stærð, dýrust var hún
hjá Jólatrjáasölunni Landakoti en
ódýrust í Byko. Meiri verðmunur
er á stærri trjám. Ef fólk hefur
hug á tæplega tveggja metra tré er
það dýrast í Garðheimum á 8.950
kr. en ódýrast í Byko á 6.990 kr. og
munar þar tæpum 30 prósentum.
Ýmsar fleiri trjátegundir eru til
sölu á útsölustöðum jólatrjáa. Hin
íslenska stafafura hefur áunnið
sér nokkrar vinsældir í seinni tíð.
Ásgerður Einarsdóttir, sem sér um
sölu jólatrjáa hjá Flugbjörgunar-
sveitinni, segir furufólki fjölga ár
hvert. „Það virðist vera að þegar
fólk fær sér einu sinni furu þá vill
það ekki annað. Hún er auðvitað
ansi falleg, stílhrein og fer vel til
dæmis þar sem hátt er til lofts.“
Ef fólk hefur hug á furunni
borgar sig að gera verðsaman-
burð. 150 sentímetra tré kostar til
dæmis á bilinu 3.990 í Blómavali
til 7.080 kr. í Byko sem eru nær
80 prósenta verðmunur. Sá mögu-
leiki er þá fyrir hendi fyrir furu-
fólk að fara í Heiðmörk og höggva
tré sem kostar 4.990 krónur óháð
stærð trésins.
Af útsölustöðunum fimm er einn,
Flugbjörgunarsveitin, rekin til fjár-
öflunar en Landakot gefur fjórðung
sölunnar til krabbameinssjúkra
barna og Byko styrkir hjúkrunar-
heimilið Sunnuhlíð með hluta and-
virðis trjánna. Könnunin er hugsuð
til viðmiðunar enda tré seld víðar á
landinu. sigridur@frettabladid.is
10 til 80% verðmunur
VERÐ Á TRJÁM
Hringt var á nokkra staði og fenginn verð á Norðmannsþin og stafafuru.
Verð á jólatrjám ræðst af stærð þeirra og hlaupa stærðar flokkar á 25 til 50
sentímetrum á sölustöðum. Hér er birt verð á trjám í millistærðum. Þar sem
eru tvö verð miðast verðflokkar verslunarinnar við 25 sentímetra. Hringt var í
sölurnar og því ekki lagt mat á gæði trjánna.
Norðmannsþinur
Verslun 100-150 cm 151-200 cm
Blómaval 5.990 kr. 6.990 kr.
Flugbjörgunarsveitin 5.900 kr. 7.900 kr.
Garðheimar 4.850 / 5.850 kr. 7.450 / 8.950 kr.
Byko 5.350 kr. 6.550 / 7.850 kr.
Jólatréssalan Landakoti 4.990 / 5.990 kr. 7.290 / 8.290 kr.
Stafafura
Verslun 100-150 cm 151-200 cm
Blómaval 3.990 kr. 6.990 kr.
Byko 4.200/7.080 kr. 9.480/11.160 kr.
Flugbjörgunarsveitin 4.900 kr. 8.900 kr.
Garðheimar 3.800/5.300kr. 7.100/9.900 kr.
■ Karlmenn seinni til jólagjafakaupa en konur
Þriðjungur ekki byrjaður viku fyrir jól
STAFAFURA EÐA NORÐMANNSÞINUR? Ásgerður Einarsdóttir hjá Flugbjörgunarsveit-
inni á milli stafafuru til vinstri og Norðmannsþins til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Bestu kaupin mín er íbúðin mín á Ásvalla-
götu,“ segir Hildur Sverrisdóttir, lögfræðingur
og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. „Íbúðin er pínulítil og
er staðsett í gömlu verkamannabústöðun-
um. Bygging verkamannabústaðanna var
á sínum tíma merkilegt framtak og það
er gaman að búa á stað með mikla
sögu. Húsin eru samtengd í einn
hring Ásvallagötu, Hofsvallagötu,
Hringbrautar og Bræðraborgar-
stígs og í miðju þess er frábær
leynigarður sem er gott að hafa
fyrir augunum.
Ætli mín verstu kaup hafi ekki
átt sér stað örlagadaginn 6.
október 2008. Ég var stödd í
Berlín en í stanslausu SMS-
sambandi við fólkið mitt hér
heima sem flutti mér fréttir af forsætis-
ráðherra að biðja guðsblessunar. Það
kom yfir mig eitthvað sem getur kallast
kreppupanikk og hræðsla um að
á Íslandi myndi jafnvel gjaldeyrir
og innflutningur heyra sögunni
til og því þyrfti ég nauðsynlega
að kaupa mér góða skó. Eftir
að ég hafði jafnað mig á
hræðslunni, og komist að
því að Visa-gengið þennan
dag var talsvert verra en
ég hafði ímyndað mér, gat
ég ekki horft á þessa skó
án þess að skammast mín
svolítið yfir vitleysisgangin-
um og að hafa eytt talsvert
meiru en eðlilegt getur talist
í hefðbundna kuldaskó.“
NEYTANDINN: HILDUR SVERRISDÓTTIR LÖGFRÆÐINGUR
Keypti fokdýra kuldaskó í Berlín
HE IÐMÖRK V IÐE Y
Handprjónuð dömu húfa úr 100% Merino ull.
húfa húfa
Kláð
afrí
ull
V ÍK
Léttir og liprir Power stretch® hanskar.
Handprjónuð herra húfa með vindþéttu eyrnabandi að innan.
Einnig fáanleg í svörtu, gráu og hvítu.
vettlingar
Verð: 5.700 kr. Verð: 5.500 kr. Verð: 5.800 kr.Stærðir:
XS-XL
> Útgjöldin
Herraskyrta úr bómull og gerviefni.
1989 1994 1999 2004 2009
2.792
4.427
3.564
4.906
7.421
Heimild: Hagstofa Íslands.