Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 32

Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 32
32 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 45 Velta: 123,5 milljónir OMX ÍSLAND 6 809 +1,11% MESTA HÆKKUN ATLANTIC +6,12% ÖSSUR +4,98% MESTA LÆKKUN EIK BANKI -7,14% FØROYA BANKI -1,92% MAREL -0,16% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 166,00 +0,00% ... Bakkavör 1,95 +0,00% ... Føroya Banki 127,50 -1,92% ... Icelandair Group 3,65 +0,00% ... Marel 63,60 -0,16% ... Össur 147,50 +4,98% Talsverð hreyfing var með hlutabréf stoðtækjafyrirtækisins Össurar jafnt hér sem á hlutabréfamarkaði í Kaup- mannahöfn í Danmörku í gær eftir að sænski bankinn SEB Enskilda birti nýtt og verulega uppfært verðmat á félaginu. Gengi bréfanna rauk upp um fimm pró- sent hér en um tæp átta í Danmörku. Enskilda segir í mati sínu að uppgjör Össurar á þriðja ársfjórðungi sé umfram væntingar. Miklar vonir séu bundnar við rafeindastýrðar vörur með gervigreind auk þess sem vænta megi betri sölu á öðrum vöruflokkum. Greinendur bankans mæla með því að fjárfestar bæti við hlut sinn og setji 8,2 danskra króna verðmiða á hvern hlut félagsins. Það jafngildir rúmum tvö hundruð íslenskum krónum samanborið við 147 krónur hér. Þetta er um fjörutíu prósentum hærra mat en núverandi verð bréfanna ytra. Þar standa þau í 6,10 dönskum krónum á hlut, sem jafngildir 152 íslenskum krónum á hlut saman- borið við 147,5 krónur hér. Talsverð eftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum Össurar ytra í kjölfar skráningar félagsins þar í september. Framboð hefur á móti verið takmarkað. Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu, segir mikla eftir- spurn eftir bréfunum ekki koma sér á óvart enda Össur gott félag með frábært sjóðstreymi. Svo virðist sem þeir sem hafi keypt bréfin í útboðinu á dögunum vilji ekki selja mikið af þeim í bili nema fyrir hærra verð. Talsverður áhugi hafi vaknað á fyrirtækinu ytra eftir skrán- inguna þar og greini nú fjögur fjármála- fyrirtæki Össur erlendis. - jab Hlutabréf Össurar taka flugið ytra FORSTJÓRI ÖSSURAR Mikil eftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum Össurar ytra eftir að félagið var skráð á markað í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Átta óskuldbindandi tilboð hafa borist í 49 prósenta hlut í Skeljungi ehf. og tengdum félög- um. Fyrirtækjaráðgjöf Íslands- banka annast söluna, en hlutur- inn var settur í opið söluferli í lok nóvember síðastliðinn. „Þeim sex tilboðsgjöfum sem áttu hæstu óskuldbindandi til- boðin verður gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku í sölu- ferlinu og veittur aðgangur að nánari upplýsingum um starf- semi og fjárhag fyrirtækisins,“ segir í tilkynningu Íslands- banka. Skuldbindandi tilboðum með fyrirvara um áreiðanleikakönn- un á að skila í síðasta lagi 21. desember næstkomandi. Þau verða opnuð í viðurvist óháðs aðila og í kjölfarið hefjast við- ræður við hæstbjóðendur. - óká Átta tilboð, sex halda áfram Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er maður árs- ins, að mati bandaríska vikurits- ins Time. Í umsögn tímaritsins segir, að seðlabankastjórinn hafi gegnt lykilhlutverki í þeim öldu- dal sem fjármálaheimurinn hafi siglt í gegnum í kreppunni og megi þakka honum fyrir hægan efnahagsbata í stað langvarandi kreppu. Þá segir að Bernanke hafi óskorað vald yfir peningamála- stefnu Bandaríkjanna og ráði miklu um örlög landsmanna. Á meðal annarra sem voru tilnefndir voru hershöfðinginn Stanley McChrystal, sem tók í vor við stjórn bandaríska hers- ins í Afganistan, og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings. - jab Bernanke banka- stjóri maður ársins Samið var um uppgjör eigna og skulda Landsbank- ans í fyrrinótt. Fjármála- ráðherra er sáttur og segir endurreisn bankakerfisins ekki nærri eins kostnaðar- sama og óttast var í fyrstu. „Þetta er jákvætt og mýkir lend- inguna,“ segir Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra um sam- komulag ríkisins við skilanefnd gamla Landsbankans og kröfuhafa um uppgjör eigna og skulda nýja bankans. Samkomulagið og stofn- efnahagsreikningur bankans voru kynnt í höfuðstöðvum Nýja Lands- bankans (NBI) í gær. Ríkið leggur bankanum til 122 milljarða króna eiginfjárframlag í skiptum fyrir 81 prósents hlut í bankanum. Þetta er um 78 millj- örðum lægri upphæð en upphaflega var reiknað með að ríkið þyrfti að leggja til bankans. Heildarfram- lag ríkisins til bankanna þriggja nemur nú samtals 137 milljörðum króna auk fimmtíu milljarða í víkj- andi lánum. Gert var ráð fyrir að endurreisn bankanna myndi kosta ríkissjóð 385 milljarða. Forgangskröfuhafar, breska og hollenska ríkið, fara með nítján pró- senta hlut í NBI á móti ríkinu. Náist samkomulag um Icesave-málið mun Tryggingasjóður innstæðueigenda eignast tæp sextíu prósent krafna í bú gamla bankans. Þessu til viðbótar gefur NBI út skuldabréf til gamla bankans til tíu ára upp á 247 milljarða króna. Vaxtaálagið nemur 1,75 prósent- um yfir Libor-vöxtum. Aðeins eru greiddir vextir af bréfinu fyrstu fimm árin en afborganir bætast við að þeim tíma liðnum. Ásmundur Stefánsson bankastjóri segir niðurstöðuna afar ánægju- lega enda tryggi skuldabréfið, sem er í breskum pundum, Bandaríkja- dölum og evrum, erlenda fjármögn- un NBI og íslenskra fyrirtækja sem þurfa á erlendu lánsfé að halda um nokkurra ára skeið, eða þar til erlendir lánsfjármarkaðir opna dyrnar fyrir bankann á ný. Heild- areignir nýja bankans, sem verður umsvifamesti banki landsins, nema 944 milljörðum króna. Þar af eru útlán til viðskiptavina 608 milljarð- ar króna. Ásmundur segir eignavirði nýja bankans endurspegla mat á eignum eftir flutning úr þeim gamla. Hann gat hvorki tjáð sig um það hversu mikil niðurfærsla eigna var né fengust upplýsingar um það þegar eftir því var leitað. Hann benti þó á að rétti efnahagslífið úr kútnum geti það skilað sér í auknu verð- mæti eigna, jafnvel upp á hundr- að milljarða króna. „Þetta er ekki áætlun, heldur von okkar,“ segir hann. Ásmundur segir orðspor Lands- bankans hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum í fjármálahruninu. „Bankinn er ekki traustur í þeirri merkingu að hann hafi áunnið sér traust umhverfisins. Það vantar mikið upp á það. En fjárhagslegur grundvöllur er það í dag og á því getum við byggt. Við verðum að vinna að því,“ segir hann. jonab@frettabladid.is Landsbankinn reistur við á ný SAMKOMULAGIÐ SKOÐAÐ Almenn sátt virðist með samkomulag um uppgjör eigna og skulda á milli gamla og nýja Landsbankans. Bankastjórinn segir mikilvægt að byggja upp traust á bankanum á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA P09 06 228.ALI M.001-P1 útg. 2 (30 09:08) - Prentað 30.11.2009 14:01 Í bókinni lýsir david lynch sköpunarferlinu; hvernig hann „fiskar“ eftir hugmyndum og hrindir þeim í framkvæmd. Jafnframt lýsir hann þýðingu innhverfrar íhugunar fyrir líf sitt og list. Fiskað í djúpinu er kærkomin bók fyrir aðdáendur leikstjórans, skapandi fólk og þá sem vilja bæta líf sitt með innhverfri íhugun. Útgefandi: íslenska íhugunarfélagið www.ihugun.is Fæst m.a. í Máli og menningu, verslunum Hagkaupa og Bóksölu stúdenta. F i s k a ð í d júp inu : íhugun, vitund og sköpunarkraftur David Lynch Endanlegt uppgjör NBI er ekki lokið að fullu. Eftir því sem næst verður komist stefnir bankinn á að birta uppgjör síðasta árs á milli jóla og nýárs og líkur á að níu mánaða uppgjör liggi þá fyrir. Þegar samþykki Fjármálaeftir- litsins um uppgjör bankans liggur fyrir mun verða boðað til hluthafafundar NBI. Líklegt er að það verði skömmu eftir áramót. Í kjölfarið verða stjórnarskipti og munu kröfuhafar fá einn mann í bankaráð NBI í krafti nítján pró- senta hlutar í bankanum á móti fjórum frá íslenska ríkinu. Nýtt bankaráð mun ráða nýjan bankastjóra til að taka við af Ásmundi Stefánssyni, sem fram til þessa hefur verið lausráðinn. Reiknað er með að Bankasýsla ríkisins auglýsi stöðu hans fljótlega. ÁSMUNDUR HÆTT- IR EFTIR ÁRAMÓT FORSÍÐA TIME Ben Bernanke seðla- bankastjóri þykir hafa siglt bandarísku þjóðarskútunni hægt en örugglega í gegnum fjármálakreppuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.