Vikan - 29.03.1962, Blaðsíða 23
Kristín
Einarsdóttir
Þeir sem eitthvað hafa af þvi
gert að sækja skemmtanir i
Reykjavik, munu iiafa tekið eftii'
þessari stúlku og undrast mýkt
hennar, jjegar hún leggur sig
saman tvöfalda og þrefalda í
akróbatik. Hún heitir Ivristín
Einarsdóttir, 18 ára gömul og
borin og barnfædd í Reykjavík.
Foreldrar hennar eru Þuríður
Sveinsdóttir og Einar Pálsson,
skrifstofustjóri hjá Tollstjóra,
bæði úr Reykjavik. Kristín tók
gagnfræðapróf eins og lög gera
ráð fyrir og vann við verzlunar-
störf hjá Skóbúð Reykjavíkur, en
hætti þvi, þcgar hún sá, að hún
gat fengið miklu meira fyrir það
að sýna akróbatik nokkur kvöld
í mánuði. Og það hefur hún lagt
fyrir sig með svo góðum árangri,
að hún er talin hlutgeng hvar
sem væri í heiminum. Hún byrj-
aði í fimleikum hjá Guðrúnju
Nielsen í Ármanni og síðar lijá
Jóni Valgeir, danskennara. ICrist-
ín hefur liaft nokkur kynni af
leiklist, lék í „Sunnan sex“ í
Sjálfstæðishúsinu í vetur og um
þessa mundir sýnir liún txvist,
tízkudansinn fræga. Annars ætlar
Ivristín að fara erlendis og snúa
sér alvarlega að akróbatík. Hún
er ljós-skolhærð og hláeygð. Hún
er enn ólofuð.
FEGUROARSAMKEPPNIN 1062
NR.6
REYKJAVIK
UÓSM. ODDUR ÓLAFSSON