Vikan - 10.05.1962, Síða 19
n
n
*
'IOUPHQP
HrútsmerkiS (21. marz—20. apr.): Það er eins og
atburður frá vikunni sem leið valdi þér einhverj-
um áhyggjum, en i rauninni þarftu ekki að skapa
þér þessar áhyggjur, því að allir eru búnir að
gleyma þessu nema þú. Þú skalt ekki reyna að
keppa við félaga þinn í hjartans málum, því að þér verður
aldrei ágengt á þessum miðum. Heillataia kvenna 7.
Nautsmerkiö (21. apr.-—21. maí): Þú munt verða
mjög mikið að heiman i vikunni, og yfirleitt
muntu lifa skemmtilegustu daga. Ef þú ferð í
ferðalag í vikunni, skaltu vanda mjög valið á
ferðafélögum, því að ef svo verður ekki, getur
ferðin orðið bráðleiðinleg. Þú lendir aldeilis í lukkupott-
inum á mánudaginn, og er það sizt sjálfum þér að þakka.
Tviburamerkiö (22. maí—21. júní): Þétta verður
vika mikilla freistinga, en yfirleitt munt þú
verða maður til þess að standast þessar freisting-
ar, og muntu fá mikið lof fyrir. Vinur þinn er i
einhverjum vanda staddur, og getur þú orðið til
þess að bjarga honum, en þú verður að leggja talsvert á þig
til þess — enda er það vel Þess virði. Heillalitur bleikt.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Það er eins og
allt endurtaki sig i þessari viku, því að henni
svipar mjög til annarrar viku, sem Þú hefur lifað
fyrir svo sem mánuði. Þú verður í bezta skapi í
vikunni, og hefur þú vissulega ástæðu til, því að
fréttirnar sem þú færð, eru vissulega gleðilegar. Vinur þinn
einn hverfur af sjónarsviðinu um stundarsakir.
Ljónsmerkiö (24. júli—23. ág.): Þú skalt vanda
allt það, sem þú segir við ókunnuga í vikunni —
þú virðist dálítið ör þessa dagana, og er því hætt
við því að þú talir einhvern tíma af þér. Þér býðst
gott tækifæri í vikunni, sem þú munt kunna að
nýta þér til hlítar. Einn fjölskyidumeðlimur veldur þér
talsverðum vonbrigðum, en hann er íús til að breyta betur.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): 1 þessari viku
mun mjög bera á óþolinmæði i fari þínu, og má
ryendar segja, að ekki sé það að ástæðulausu. Þú
skalt reyna að sinna bezta áhugamáli þínu sem
mest. Þetta kemur fyrr en varir, sem þú ert að
bíða eftir, en þú flýtir ekki fyrir þvi með þvi að bíða. Þú
mátt ekki láta það eftir þér að vera óþolinmóður.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú munt
sýna vinum þínum og fjölskyldu, að þú ert ekki
allur þar sem þú ert séður, og verður þetta líklega
í sambandi við einhverja breytingu, sem verður
á heimilishögum þínum einmitt í þessari viku.
Verður þetta til þess að sambúð ykkar batnar til mikilla
muna. Mánudagurinn er þér til mikilla heilla, einkum í pen-
ingamálum.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú lest eitt-
hvað eða heyrir, sem þú misskilur svo herfilega,
að líklega verður þér á eitthvert glappaskot í
sambandi við þennan misskilning þinn. Þú þarfn-
ast tilbreytingar þessa dagana — og um helgina
gefst þér sannarlega tækifæri til Þess að breyta til. Heilla-
tala 11.
BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þeir, sem
eiga afmæli í nóvember eiga von á afar heilla-
drjúgri viku, þótt hinir þurfi engan veginn að
kvíða neinu. Þú kynnist athyglisverðri persónu i
vikunni. Líklega er þér ekki hollt að kynnast
þessari persónu of vel, en það má sannarlega margt á henni
græða.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Þú verður mik-
ið á ferðinni í vikunni, og ýmislegt verður að sitja
á hakanum, þótt þú hefðir einsett þér að ljúka
því einmitt í þessari viku, en þú skalt samt engu
kvíða. Vinur þinn kemur með skemmtilega hug-
mynd, sem þið einir getið hrint i framkvæmd, og það skuluð
þið gera, áður en það er orðið um seinan.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú ert að
reyna að breyta til þessa dagana, og til þess gefst
þér einmitt gullvægt tækifæri i vikunni. Líklega
verður um leið einhver breyting á fjármálum þín-
um. Þú virðist ekki vera nægilega sjálfstæður í
skoðunum þessar vikurnar — þér hættir dálítið til að til-
einka þér um of skoðanir persónu, sem þú metur afar
mikils.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Um helgina
berast þér fréttir, sem eiga eftir að valda þér á-
hyggjum, en vissulega er ekki ástæða til Þess, því
að það mun síðar koma í ljós, að þessar fréttir eru
miklar gleðifréttir, þótt ekki virðist svo i fyrstu.
Maður, sem er nátengdur þér, verður til þess að þú dettur
laglega í lukkupottinn.
Stjörnuspáin gildir frá finuntudegi til fimmtudags.
w