Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 23
Hver fer í sumarleyfið á nýj-
um Fólksvagni frá Vikunni
Splunkunýr, ljósrauður Volkswagenbíll. Hlutur, sem fjölda manns dreymir
urn að eignast; enda sá bíll, sem í langflestum tilfellum er skynsamlegast að
eiga fyrir hjón með þrjú börn. Hann er eins og hugur manns í akstri, skjótur
af stað og enn fljótari að stoppa, þegar á þarf að halda. Fyrirferðarlítill í um-
ferðinni og úrtökugóður á þjóðvegunum. Vegna þess hve hann er kúptur í lag-
inu, heldur loftstraumurinn honum niðri og því betur sem hraðar er ekið.
Fjaðraútbúnaðurinn er mjög fullkominn: Hjólin fjaðra hvert fyrir sig og hann
fer yfir holóttan veg sem sléttur væri. Sem sagt: Hinn ákjósanlegasti fjölskyldu-
bíll og nú er spurningin: Hver verður svo heppinn að fara í sumarleyfið í sum-
ar á þessum bíl. Enginn veit, hvenær heppnin ber að dyrum; ráðlegast er að
taka þátt í getrauninni því það kostar í rauninni ekki neitt.
GETRAUNIN
Nú er Gissur glaður á
góðri stund, enda
Rasmína hvergi nærri.
Þetta eru tvær myndir
eins og þið sjáið, en á
neðri myndinni höfum
við breytt þrem atriðum.
Þið gerið hring utan um
það sem breytt hefur verið.
Klippið báðar myndirnar
frá ásamt getraunaseðlinum
og geymið þar til getrauninni
lýkur.
--------Klippið hér
Getraunaseðill Nr I
NAFN .
HEIMILI
SÍMI ___