Vikan


Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 33

Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 33
arhalda í Rheydt, fæðingar- og ætt- borg Goebbels sjálfs, og átti hann sjálfur að flytja aðalræðuna, en svo fór, að andstæðingar nazista hröktu liann á brott, „eins og ótíndan glæpamann", og ekkert varð úr fundinum. Þeirri svivirðingu gat Goehbels aldrei gleymt. Goebbels fylgdi i rauninni mjög einfaldri grundvallarreglu í öllum sínum áróðri: „Sókn er sterkasta vörnin“ og „árás táknar alltaf styrk“. Hann segir sjálfur svo frá, þessu til sönnunar, að eitt sinn er hann lagði bíl sínum ólöglega úti fyrir gistihúsi nokkru, og lögreglan hugðist grípa til sinna ráða, greip hann til sinna — upphóf sina miklu raust og lét skammirnar dynja á lögreglunni, unz honum hafði tek- izt að espa svo múginn, sem þegar safnaðist að, að lögreglustjórinn sendi hraðboð um að bíllinn skyldi látinn standa þarna afskiptalaus. „Þannig veitir jafnvel ósvifnasta sókn manni sigur, en láti maður hrekja sig i vörn, er ósigurinn fyr- irfram vís“. Ofbeldi og misþyrm- ingar, sem nazistar beittu óspart um þetta leyti, voru þvi í fyllsta samræmi við þessa einföldu, en á- hrifaríku heimspekikenningu hins mikla áróðursmeistara. „Við verð- um að skírskota til frumstæðustu kennda múgsins“, skrifar hann i dagbók sína, þann 4. sept. 1932. Framhald í næsta blaði. Hóglífið er þreytandi ... Framhald af bls. 21. sykurkóngur þar; á víst einhver ó- sköp af sykurreyr. Ilann er alltaf að byggja stórhýsi út um allar jarð- ir og þá fær hann stúlkur, sem hafa komizt í úrslit á Langasandi til þess að sýna þjóðbúninga frá Filippseyj- um i landkynningarskyni. Núna í mánuðinum sem leið þurfti hann á okkur að halda bæði i Evrópu og Bandarikjunum og mér stóð til boða að fara í eitt ferðalagið enn, en af- þakkaði. — Af hverju gerðirðu það'? Var ckki farið með ykkur cins og drottn- ingar? — Jú, ekki vantaði það, en mað- ur verður þreyttur á því. Svo eru samkvæmi og kokktejjpartý upp á hvern dag og ég hef aldrei getað lært að drekka vín að neinu gagni. Mér þykir það ekki gott. — Hvernig gaztu komizt hjá því að drekka sem skemmtikraftur í næturlífi Reykjavikur? — Það voru mjög oft samkvæmi á eftir og sjálfsagt drykkja, en ég hafði þann sið, að ég kom mér út fyrir síðasta dans og spillingin fór alveg framhjá mér. — Já, mér sýnist það. En svo ég víkji að öðru; hvernig kunnirðu við fólkið j)arna vestur í Kaliforniu? — Mér fannst það dásamlegt. Hjálpsamt og elskulegt. En það er alltof önnum kafið og hefur tæp- lega tíma til að lifa. Það eru svo margir hlutir á hverjum degi, sem fólkið verður að sjá, annað hvort f sjónvarpinu eða annars staðar og svo er háð æðisgengið kapphlaup til þess að missa ekki af neinu. Fjölskyldufaðirinn kemur kannski í ioftinu heim af einhverjum bolta- leik til þess að missa ekki af á- kveðnum þætli i sjónvarpinu og svo fær hann matinn í sæti sitt við sjón- varpið. — Hefðir þú liaft góða möguleika til þess að setjast að á Langasandi eða Hollywood? — Já, ágæta möguleika til þess, ef ég hefði viljað. Mér stóðu margar dyr opnar vegna þess að ég var „Miss Iceland“. Án þess hefði ég elckert komizt, þvi það er nóg til af fallegum stúlkum þar. Til dæmis i Hollywood eru heilu hótelin full- setin fólki og aðallega ungum stúlk- um, sem bíða tækifæris að komast að í kvikmyndum. Flestar þeirra verða aldrei frægar eins og þær dreymir um. — Komst þú eitthvað fram i sjón- varpi? — Keppninni á Langasandi var að sjálfsögðu sjónvarpað og síðar var mér boðið að vera „Drottning dags- ins“ á mjög stórum fótboltaleik og því var sjónvarpað um öll Banda- ríkin. — Þeir hafa líklega ekki vitað mjög mikið um ísland, Kaliforniu- menn? — Langflestir alls ekki neitt. „ts- land, hvað er nú það“, sögðu þeir bara. Þeir höfðu ekki einu sinni hugmynd um, hvar það væ ) á hnett- inum. En ég reyndi að ..ynna land- ið eins og ég gat og b 5i alltaf með mér litmyndasafn, «■ .n er víst næst- um orðið uppslit: . — En hjónabandstilboðin, — hef- urðu haldið þeim saman? — Já, þau voru nú ekki svo mörg, en ég fékk bréf frá nokkrum mönn- um sem ég hafði aldrei séð, þess efnis, að þeir vildu fá mig fyrir konu. — Og þú hefur svarað þeim? — Nei, það gerði ég ekki. — Sögðust þeir vera milljón- erar? — Já, og jafnvel olíukóngar. — En þegar þú fórst austur til Beirut; voru Arabarnir ekki hrifn- ir af þér svona ljós eins og þú ert? — Einn vildi að minnsta kosti endilega giftast mér og bauðst meira að segja til þess að aka mér alla leið heim til íslands. — Yar hann sheik? — Nei, bara réttur og sléttur. — Hann hefur ekki einu sinni átt kvennabúr? — Nei. — Svo þú hefur hafnað boðinu? — Já, hvað heldurðu. Annars sá- um við kvennabúr, það er að segja „búrið“ sjálft en ekki dömurnar. — Heldurðu að það sé mikil hætta á því, að stúlkur verði spillingunni að bráð, sem lenda í svona ævin- týrum eins og þú hefur komizt i? — Ekki held ég það, en annars er það undir hverri og einni komið og þá þarf ekki að fara út i lönd tii þess að verða spillingunni að bráð. En það vantar ekki tilboð frá alískonar herrum, sem langar til þess að fá fallegar stúlkur í sel- sltap og maður gæti látið bjóða sér út á hverju einasta kvö'di. — Hvernig finnst þér að vera komin heim, Sigrún? — Mór finnst það dósamlegra en orð fá lýst. Aliir hafa tekið svo vél á móti msr og þó sérstaklegá for- eldrar minir. Og nú langar mig til l)css að fá mér rétta og slétta vinnu því ég er orðin þreytt á þvi að fá a!lt upp í hendurnar og hugsa um það eitt að lita vel út og láta sér líða vel. — Fer langur tima í það að við- halda þessu glæsilega útliti? — Nei, hreint enginn tími. Ég hef varla púðrað mig í rnargar vikur hvað þá meira. — Og að lokum, Sigrún; hvað því á fyrstu uppvaxtarárum sinum finnst þér, að þú hafir grætt á ferð- ætlað að endurtaka þróun, sem kost- inni. uðu mannkynið tugi árþúsunda. — Hún hefur verið á við langan Margþætt siðmenning nútimans ger- skóla og mér finnst ég vera mörg- ir kröfur, sem frumhvötum mann- um árum eldri en þegar ég fór af eðlisins veitist örðugt að beygja sig stað. Þetta hefur verið ævintýri lifs fyrir. Þróunarhraðinn ofbýður ung- mins og það verður ekki metið til barninu, nema sérstakrar varúðar sé fjár. g. gætt. Eflaust hei'ir það kostað óra- tið í þróunarsögu mannkynsins, að Hlekkir tímans. Framhald af bls. 27. ir skynsemin að miðla málum, sætta andstæðurnar og vernda þannig sál- manninum lærðist að leggja höml- ur á tilfinningar sínar. Honum var löngum tamt að láta þær brjótast fram hömlunarlaust i ótta, reiði, sorg og gleði. Honum var það eðli- legt ástand að vera algerlega á valdi tilfinninga sinna, en hann leitaðist rænt samræml og heildgerð personu- leikans. Þennan málamiðlunarhæfi- leika nefnir Freud sjálf, og er það eitt af meginhugtökum sálgreining- arinnar. Frumsjálf, sjálf og yfir- sjálf eru samkvænit þessari kenn- ingu sú hugtakaþrenning, sem staða og vaxtarskilyrði einstaklingseðlis- ins í siðmenningu nútímans birtast skýrast 1. Sjálf merkir einfaldlega hæfileika mannsins að draga hag- nýtar ályktanir af reynslu sinni, svo að óstýrilátar frumhvatir bjargist sæmilega í sambúðinni við hefð- gróna siðvendni. Sú sambúð verður þó með mörgu móti og er oft nokkru sléttari á yfirborði en hið innra í sálarlífi einstaklingsins, en sálræn heilbrigði hans er einmitt háð henni að miklu leyti. í gær, þegar ég var rétt að byrja að hugleiða efni þessarar greinar, lieyrði ég gáfaðan mann ræða um liinar siauknu námsbyrðar, sem lagðar eru uppvaxandi kynslóðum á herðar. Sifellt væri aukið við námsefnið, en fáu sleppt í staðinn. „Hve lengi verður hægt að halda þessu áfram?“ spurði hann. En sí- auknar námskröfur eru aðeins einn þáttur í kapphlaupi hins siðmennt- aða manns við tímann. Siðmennt- unarkröfurnar verða sífellt strang- ari, en timinn til að fullnægja þeim hlutfallslega naumari. Á þessu fær ungbarnið strax að kenna. 1 siðmenntuðu samfélagi er varla við að ná valdi yfir þeim. En einmitt þessa sjálfsstjórn ætlar sið- menning nútímans barninu ungu. Það á að bæla niður reiði sina, liarka ai' sér ótta sinn, gæta sjálfs- stjórnar jafnt í gleði og sorg. Hin- um siðmenntaða manni nútimans er bannað að vera hamslaus i reiði sinni eða skelfingu, að láta hatrið blinda sig eða njóta kyneðlis síns blygðunarlaust eins og dýrið. Þannig er nútímamaðurinn frá fyrstu bernsku spenntur vægðar- laust inn í kapphlaupið við tímann. Honum er þó ekki aðeins þrýst af ytra valdi. Kappið á taug í eðli hans sjálfs, sem er klofið og tvihverft, eins og menningin, sem af þvi óx. En þvi meir sem siðmenningin fjar- lægist frumstæð lífsform mann- kynsins, því algengari verður sú of- reynsla tilfinninga og margskonar sálrænt misræmi, sem á okkar tim- um þjáir margan mann og gengur undir nafninu taugaveiklun. ^ Hús- og húsbúnaður. Framhald af bls. 12. marglitar og liturinn heldur sér vel. Margir hafa sótt þessháttar grjót vestur í Drápuhlíðarfjall á Snæ- fellsnesi, en þar virðist vera einna mest af því. Fjórða tegundin, sem notuð er til skreytinga utanhúss eða VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.