Vikan


Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 24

Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 24
Ungfrú Yndisfríð Hvar er órbin hans NÓ71? Nú er það Örkin hans Nóa, sem ungfrú Yndis- fríS hefur faliS í blaSinu. Kannske i einhverri myndinni. ÞaS á ekki aS vera mjög erfitt aS finna hana og ungfrú YndisfríS heitir góSum verSlaunum: Stórum konfektkassa, sem auSvit- aS er frá SæigætisgerSinni Nóa. Nafn Heimilisfang Örkin er á bls. Simi SíSast þegar dregiS var hiaut verSlaunin: AÐALFRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR, RauSarárstig 10, Reykjavík. Hve glöggur ertu? Svo virðist sem teikningarnar séu báðar eins, en látið nú ekki blekkjast! í rauninni hefur teiknarinn breytt neðri teikningunni í sjö at- riðum. -Reynið nú að finna þessar sjö breytingar áður en þið flettið upp lausninni, sem er á bls. 39. 24 VIKAN Ella til íslands? Sú fregn birtist í einu dagblaðanna fyrir nokkru, aS von væri á Ellu Fitzgerald til íslands, mundi hún koma fram á hljómleikum hér. ÞaS er i sjálfu sér ánægjulegt aS eiga von á jafn skínandi góðum söngvara lil ísiands og Eila er. En skyidi Ella koma'? ÞaS var ekki fullyrt i fregninni hvenær hún kæmi, og ég er nú einn af þeim svártsýnu, ég trúi þessu ekki fyrr en ég sé Ellu á sviSinu hér. Þvi slík fregn hefur fiogiS hér fyrir af og til undanfarin ár, ef þaS er ekki Ella Fitzgerald, þá er þaS Louis Armstrong eSa einhver önnur heims- fræg stjarna. En aldrei verður úr þessu. ÞaS er ein- faldlega vegna þess, að þaS er ekki nógu stórt sam- komuhús hér á landi til aS láta slíka skemmtun fara fram hallalaust. Þegar við höfum fengið samkomusal, sem tekur 2—3000 manns þá fáum viS stóru nöfnin hingaS, varla fyrr. En kannski kemur Ella? Hver veit, og þvi er ekki úr vegi aS láta fyigja mynd af henni meS þessu spjalli. Þetta er mynd sem var tekin í London fyrir nokkru þegar hún var þar á hljómieikaferSalagi. Og það þarf náttúrlega ekki aS taka fram, alls staSar var uppselt löngu fyrirfram, og alls staSar fékk Ella frábæra dóma: Aldrei betri en nú. Nýjar hljómplötur Fats Domino: Ida Jane og You win again. Fats Domino á vafalaust þó nokkra aðdóendur, því af og til fást hér plötur meS honnm, sem jafnan seljast upp. Hann er þó ekki mikill söngvari, sem kemur sérstaklega vel í ljós i síðara laginu á þessari plötu, þar sem hann ailt aS því talar textann. En Domino er vinsæll mjög i heimalandi sinu og reyndar viSar, plötur hans seljast í milljónavís á ári hverju og meira segja er sú, sem hér um ræSir nú komin í efstu sætin á vinsældalistanum í USA. Platan fæst hjá HSH, Vesturveri og er gefin út af Imperial. Paul Anka: Love me warm and tender og I‘d like to know: Nú er Paul Anka farinn aS syngja fyrir plötufyrirtækið RCA Victor og er þessi fyrsta plata lians með því betra sem liann hefur gert á und- anförnum mánuSum. AS sjálfsögðu eru bæSi lögin Framhald á bls. 35. Gamla myndin Hljómsveit Þóris Jónssonar á Hótel Borg 1946. Frá vinstri: Sveinn Ölafsson, tenór-sax (leikur nú í Sinfóníuhljómsv.), Vilhjálmur Guðjónsson, altó-sax (leikur nú á Hótel Borg með Birni R.), Jóhannes E’ggertsson, trommur (leikur i tríói í Kópavogsbíói og á celló í Sinfóníuhljómsv.), Kjartan Runólfsson, harmonika og trompet (fæst ekki lengur við hljóðfæraleik), Trausti Thor- berg, gítar (leikur í tríói Eyþórs Þorlákssonar í Leikhússkj.), Baldur Kristjánsson, píanó (leikur nú i Kópavogsbiói) og Þórir Jónsson, fiðla og saxófónn (leikur nú aðeins í Sinfóniuhljómsv.). — Sendið Vikunni gamlar hljómsveitarmyndir og upplýsingar um þær. Myndirnar verða endur- sendar um leið og þær hafa birzt. essg.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.