Vikan - 10.05.1962, Page 22
STÆRSTA
VERÐLAUNAKEPPNI
VIKUNNAR
og sú stórkostlegasta
sem nokkru sinni hefur
farið fram í íslenzku blaði
VINNINGUR:
VOLKSWAGEN
DE LUX - FÓLKSBIFREIÐ
VERÐMÆTI: 120,000,00
Ókeypis bíll og það splunkunýr. Hver hefur efni á
því að sleppa slíku. Ókeypis er hann vissulega þvi Vik-
una kaupa menn hvort eð er. Getraunin sjálf er lengst
til hægri og hún verður ekki þyngri en svo að aliir
ætlu að geta tekið þátt í henni. Þetta verður getraun
ársins og langsamlega glæsiiegasti vinningur sem íslenzkt
blað hefur nokkru sinni gefið lesendum sínum kost á
að vinna — fyrir ekki neitt.
Fólksvagnamir mínir og ég
„Við höfum alltaf verið með Volkswagen — og breytum ekkert til með það
___“ sagði Hákon Daníelsson, framkvæmdastjóri bifreiðaleigunnar Falur. „Allir
okkar viðskiptavinir virðast vera ánægðir með þá. Þeir eru traustir og öruggir
og þurfa lítið viðhald — en einn aðalkosturinn fyrir okkur er sá að ef einhvern
varahlut vantar, þá er ekkert annað en að fara til umboðsins og sækja hann.
Þar eru allir varahlutir á lager hvenær sem er. Það er líka mikið auðveldara
fyrir umboðið að hafa allt til, þegar litlar sem engar 'breytingar eru gerðar á
bílnum ár frá ári, og þarf því ekki að liggja með varahluti í mismunandi ár-
gerðir. Þetta er bæði kostur við bílinn — að hann ekki breytist — og ekki
síður kostur við umboðið.“