Vikan - 13.09.1962, Page 2
Loksins!
litarblœr svo eölilegur, aö öll-
urn sýnist hann ekta.
VIKAN
ogtæknin
SÍMATALNEMAR MEÐ
HLJÓMSTILLINGU.
Bell símtækjaverksmiðjurnar í
Bandaríkjunum eru farnar að fram-
leiða símatalnema með hljómstill-
ingu, sem nota má við allar tegund-
ir símtækja. Með stillingu þessarri
má styrkja og veikja rödd þess, sem
við mann talar, og þótt þessir tal-
Hinn nýi símatalnemi frá Bell verk-
smiðjunum. Hljómstillingunni er
þannig fyrirkomið, að auðvelt er að
ráða henni með fingurgómi.
nemar séu fyrst og fremst gerðir
með tilliti til þeirra, sem nokkuð
eru farnir að misst heym, getur
stillingin komið sér vel fyrir alla,
þegar sambandið er ekki sem bezt
— t. d. þegar um langlínusamtöl er
að ræða. Og vitanlega má einnig
lækka rödd, þem talar, og getur það
líka komið sér vel; bæði liggur sum-
um óþægilega hátt rómur og svo er
það til, að þeir brýni raustina ó-
þægilega í eyra manns ef svo ber
undir. Þetta er því hin þægilegasta
uppáfinning — og í rauninni undar-
legt, að hljómstilling skuli ekki hafa
verið sett fyrir löngu á alla símatal-
nema.
Stórkostleg uppgötvun frá Noxzema! Hressandi Cover Girl smyrst svo eðlilega og fullkomlega. Það inni-
heldur sérstök sóttvamarefni, sem bæta húðina og hjálpa að koma í veg fyrir húðtruflanir.
Hið nýja Cover Girl er svo létt og
fer svo yndislega vel á andlitinu . . .
og þar að auki dásamlega gott fyrir
húðina. Ólíkt mörgum „Make-ups“,
sem bæta húðina ekki neitt (oft
jafnvel skaða hana) fær húðin með
notkun Cover Girl, sérstök bætandi
efni. Berið á yður „Cover Girl
Make-up“ á hverjum morgni. —
Strjúkið yfir með Cover Girl stein-
púðri á daginn. Með því fáið þér
ekki aðeins fegurra útlit, heldur
verður húðin fallegri. Það er því
ekki að undra þótt Cover Girl sé
uppáhalds fegurðarlyf milljóna
stúlkna.
NÝTT COVER GIRL með sérstakri efnasamsetningu frá Noxzema.
HEILDSÖLUBIBGÐIR
FRIÐRIK BERTELSEN & CO. H.F.
Sími 36620. Laugaveg 178
LITIÐ INN í
STUDEBAKER ‘63.
Þetta er ein af fyrstu myndunum,
sem birzt hafa af Studebaker „Av-
anti“, árgerð 1963. Sýnir hún hvern-
ig umhorfs verður í framsætinu —
mælaborð, stýri og skipting. Mæla-
borðinu verður þannig fyrirkomið,
Framhald á bls. 30.
Framsæti, stýri, mælaborð og skipt-
ing í Studebaker „Avanti“, árgerð
1963.