Vikan - 13.09.1962, Side 3
Þannig hugsar teiknarinn sér að athafnasvið froskmanna á sjávar-
botni muni líta út áður en langt um líður. Og hver veit?
hjálpartæki til umráða, eins og ljósmynda- og kvikmyndatökuvélar,
sem koma þeim að sjálfsögðu í góðar þarfir við öflun heimilda þar
niðri — og loks eru það djúpsleðarnir — litlir sleðar, knúnir vatnsþétt-
um hreyflum, sem froskmennirnir liggja á eins og krakkar á „maga-
sleða“, og geta stýrt bæði upp og niður og á hlið. Bera sleðar þessír
þá ekki einungis mun hraðara um djúpin en þeir geta synt með
hreifum sínum, heldur draga þeir og til muna úr súrefnisþörf frosk-
mannsins, þar sem þeir spara honum áreynsluna, og getur hann því
verið mun lengur í kafi en ella. Sá er þó galli á, að talið er að frosk-
Ljósmyndavél, ætluð til myndatöku
á liafsbotni.
maðurinn þoli ekki, líkamans vegna,
nema tveggja „hnúta“ hraða þeg-
ar hann kemur niður á verulegt
dýpi, og er því í ráði að smíða þeim
eins konar tveggja manna „kafbáta“, til
ferða þar.
Þá telja þeir, sem sérfróðastir eru á
þessu sviði, ekkert því til fyrirstöðu
að sökkt verði kútum með „blönduðu“
lofti niður á athafnasvæði froskmanns-
ins svo hann gæti tengt við þá önd-
unarslöngur sínar, en þá mundi hon-
um fært að dveljast á botni svo klukku-
stundum skipti. Þeir telja og tæknilega
fært að koma þar fyrir eins konar
,matsölum“ með vatnslokum, eins og
Framhald á bls. 41.
Singer Vogue hefur yfir sér viröulegan svip lúxusbíla og er brezkur
„fram í fingurgóma“.
j Bílaprófun FÍB
| og VIKUNNAR
Skoðunina framkvæmdi
Páll Friðriksson,
bílaeftirlitsmaður.
SINGER VOGUE
Er 4 dyra 5 manna enskur
fólksbíll, sérlega vandaður og vel
frá genginn að öllu leyti. Að inn-
an er hann rúmgóður og bjartur
og útsýni gott. Afturrúðan er
stór og bogin fram á við i horn-
unum að neðan. Ágætt pláss er
fyrir 3 aftur í og 2 fram í. Fram-
sætið er heilt þvert yfir með
þægilegum armhvílipúða í miðju
og færanlegt fram og aftur. Fót-
rými er gott í aftursæti, en nokk-
uð þvingað í framsæti einkum
fyrir ökumann þar sem gírkass-
inn er stór og fyrirferðarmikill
og hryggur sem byggður er yfir
hann tekur mikið pláss úr framgólfi.
Pedalar eru einnig fullhátt frá gólfi.
Mælaborðið er laglegt, hnotuviðar-
klætt að framan og bólstrað að ofan.
Kostur er að í bílnum eru mælar
bæði fyrir hleðslu og útleiðslu
(ampermælir) og olíuþrýstimælir,
en ekki aðvörunarljós fyrir þetta
hvort tveggja eins og er í flestum
bilum nú til dags. Einnig eru hraða-,
hita- og benzínmælir og aðvörunar-
ljós er sýnir er búi geisli framljósa
er á og annað er sýnir stefnuljós.
Stefnuljósarofi hefur sjálfvirkan af-
slátt. Á öllum hurðum að innan er
hnotuviðarlisti samskonar og er
framan á mælaborði. Hurðarlæsing-
ar eru góðar og hurðarhúnar þægi-
legir. Öryggislæsingar eru á hurð-1'
unum sem hægt er með einu hand-
taki að setja á, þannig að börn geti
ekki opnað hurðirnar innan frá.
Armhvílipúðar eru aðeins á aftur-
en ekki framhurðum.
Rúðuþurrkur eru rafmagnsdrifnar
en aðeins einn hraði.
Miðstöð er stór og hitar prýðilega.
Farangursrýmið er helzt til lítið
þar sem benzíngeyminum er fyrir
komið fremst í því og tekur hann
mikið pláss. Benzínáfyllingin er á
góðum stað utan á vinstri hlið bíls-
ins.
Framhald á bls. 42.
Þverskurður af
Singer Vogue.
Hitstjórn og .augiýsingar: Skiþholh
33, Sitnar: 35320. 35321, 35322, 35323.
PóstKólf 149, Afgreið.'díi'og drttifíng:
Blaðailreifing, l.auguvegi 133, sitni
36720. Dreifingnrstjóri óskiir Karls-
son. Virð í lausasöiu kr. 15. Askrift-
arverð er 200 kr, ársþriðjungslegíi,
grciðíst fyrirfrarn. Prentun: Iiilmir
h.f. MyiKlamóí: Rafgraf h.f.
Útgefandí: Hílmir h.f.
ICitstjóri:
Gísli Bigurðsson (ábm.)
Framkvæmdastjóri:
Hilmar A. KrÍHtjánsson.
í tilefni af því að Vikan hefur verið á ferð við Mý-
IjiK Al&J " vatn, birtum við forsíðumynd þaðan. Staðurinn heitir
Geiteyjarströnd og er við austanvert vatnið. Gömlu
mennirnir eru bræður, fæddir og uppaldir á þessum stað og hafa átt þar
heima alla ævi. Einn þeirra hafði komið suður, en hinir höfðu ekki gert
víðreist. Þeir eru 74 ára, 79 og 81 árs gamlir, virðulegir fulltrúar gömlu
kynslóðarinnar í einu sveitinni á Islandi þar sem ungt fólk ílendist að ráði.
/ Við segjum betur frá Mývatnssveit aftur í blaðinu.
í næsta blaði verður m. a.:
• Við byrjum á nýrri og glæsilegri verðlaunagetraun. Verð-
launin eru NSU Prins 4, 1963 módel, fimm manna bifreið
að verðmæti kr. 117 þúsund. Þessi getraun verður í 10 blöð-
um eins og Volkswagengetraunin. Fylgizt með getrauninni
frá byrjun og vinnið Prinzinn. Hann er einhver fallegasti
bíll, sem hingað hefur verið fluttur.
• Verður ódýrasta rafmagn í heimi framleitt í Þjórsárdal?
Vikan hefur brugðið sér að Búrfelli í Þjórsárdal þar sem
rannsóknir fyrir stórvirkjun hafa staðið yfir. Grein og myndir.
• Aprílrósir. — Smásaga eftir Guðnýju Sigurðardóttur.
• Hver er normal? — Mjög athyglisverð grein um sálkreppur
og sálgreiningu eftir dr. Matthías Jónasson.
• Sá eini rétti. — Smásaga.
• Er nútímakonan á glapstigum? — Grein.
VIKAN 3