Vikan


Vikan - 13.09.1962, Blaðsíða 20

Vikan - 13.09.1962, Blaðsíða 20
Dahlt leit á armbandsúr sitt. í allt að því klukkustund höfðu þeir leitað staðsetningar, en árangurslaust. ,,Jæja, Carl?“ Dahl sá örvæntingarglóð kvikna í augum félaga síns,. dula og uggvekj- andi. „Hamingjan góða“, mælti Prowse að lokum. „Við erum stödd á svæði, sem ekki fyrirfinnst á landabréfinu..“ FJÓRÐI KAFLI: DAHL hafði skotið rjúpur með hlauplöngu, 22 cal. marghleypunni, og veitzt það auðveldara en hann hafði búist við. Hann kunni að vísu vel með byssu að fara, en allar veiðar og dráp var honum andstyggð, hafði verið allt frá þvi er hann sem drengur skaut íkorna, eiginlega af forvitni,' og til að sjá áhrif byssukúliinnar, og horfði á hann í dauðateygjunum. Og jafnvel í morgun, þegar þörfin knúði hann til veiða, fann hann dauða rjúpunnar vekja með sér sektartilfinningu. Hann hristi höfuðið, rétt eins og hann vildi freista að hrista af sér sektina — en rjúpurnar höfðu vapp- að noklcur skref undan, að því er virtist flemtri slegnar, og síðan kúrt sig niður af hræðslu og heimsku og bóðið sig að skotmarki. Þetta höfðu þær svo endurtekið í hvert skipti, sem hann skaut, þangað til allur hópurinn var fallinn. Þvi í ósköpunum höfðu þær ekki einfaldlega hafið sig til flugs og komið sér úr skotfæri? nálgast, og hann varð að viðurkenna, að brosið, sem hún heilsaði honum með, yljaði honum innanbrjósts. En um leið varð hann dálítið hissa, þegar hann var allt í einu farinn að hug- leiða hve hún myndi bera af öðrum stúlkum, ef hún gengi um stórborg- ar stræti, klædd samkvæmt nýjustu tízku; það var áreiðanlegt, að þá mundi margur maðurinn líta um öxl á eftir henni, til þess að mega njóta andartaki lengur glæsileiks hennar og yndisþokka og muna eirrautt hárið, bjart hörundið og heiðríkan svipinn, þótt hið mjúka form andlitsins sam- svaraði ef til vill ekki ströngustu kröfum hins kalda og listræna fegurð- arnrats. „Hafðirðu heppnina með þér, Lin- coln?“ „Ég var að minnsta kosti ekki ó- heppinn", svaraði hann drýgindalega. „Hvar er Sam?“ Henni varð litið að tjaldinu og á- hyggjusvip brá fyrir á andliti hennar. „Prowse hefði betur gætt tungu sinnar", varð Dahl að orði um leið og hann straum gómnum um skeggbrodd- ana á kjálkum sér. „Sam gieymir á- reiðanlega ekki orðum hans, er hann kenndi honum um ólán okkar, og það er ekki gott að vita, hvað af því get- ur hlotizt". Stúlkan hristi höfuðið, strauk síð- an eirrauða lokkana frá augum sér. „Hvað hafðirðu?" spurði hún og sneri talinu aftur að veiðinni. FRAMHALDSSAGAN 4. HLUTI EFTIR LAWRENCE EARL „HYERNIG FER, EF OKKUR YERÐUR NU EKKI BJARGAÐ?“ SPURÐI ALISON. „OKKUR YERÐUR ÁREIÐANLEGA BJARGAÐ,“ SVARAÐI DAHL. „EN EF ÞAÐ BRYGÐIST NÚ SAMT .. “ MÆLTI HÚN ENN. Sól hafði ekki náð hádegisstað, þeg- ar hann hélt aftur heim á leið til fé- laga sinna. Hann heyrði axarhögg inni í kjarrinu, þegar hann nálgaðist eið- ið; þeir Greatorex og Prowse voru að höggva brenni til vetrarins. Það var einnig að ráði Alison, þótt ekki hefði það verið mótþróalaust að hún fékk því framgengt. Hún var uppalin hér nyrðra, þeir höfðu einungis dvalið þar sem sumargestir. Og þessi fyrir- hyggja hennar hafði tvíþættan tilgang. Það skildi Dahl að minnsta kosti vel. Það voru ekki eingöngu vetrarhörk- urnar og hríðarbyljirnir, sem hún hafði í huga, enda þótt það væri með þeim rökum, sem hún hafði sigrazt á mótþróa Þeirra, heldur hitt, að halda þeim að stöðugu starfi, svo kvíðinn og hugarvilið næði ekki tökum á þeim og bryti kjark þeirra — að þeim gæf- ist ekki tími til að hugleiða til hlítar þær aðstæður, að hafa týnzt á ókunn- um auðnum og það undir veturinn. Þegar Dahl hugsaði þetta nánar, lá við að hann fyriryrði sig. Hvernig mundi útlitið fyrir þá félaga vera nú, ef hún — eina stúlkan í hópnum — hefði ekki tekið að sér forystuna? Hann varð ósjálfrátt léttari í skapi, og fann vakna með sér þægilega ör- yggiskennd, þegar hann sá hana sitja við eldinn í skjólinu, sem hún hafði hlaðið með eigin höndum úr hnull- ungsgrjóti. Hún leit upp þegar hún heyrði hann Hann sveiflaði léttilega af sér bak- pokanum, svo hana skyldi ekki gruna, hversu þungur hann var, seildist of- an í hann og kastaði rjúpu fyrir fæt- ur henni með leikrænu kæruleysi. Þetta var akfeitur fugl, að hálfu leyti enn í sumarhamnum; vængirnir fjaðrahvítir, skrokkurinn enn mórönd- óttur með hvítum skellum hér og þar. „Rjúpur... .það er ekki amaleg veiði, Lincoln". Orð hennar breyttu skyndilega af- stöðu hans til rjúpnanna. Honum hvarf gersamlega öll sektarmeðvitund í sambandi við drápið á þeim; þær voru eingöngu veiðifengur, matarforði sem hann hafði aflað fyrir dugnað sinn. Hægt og rólega týndi hann þær, hverja á eftir annarri, upp úr bak- pokanum, þótt honum væri ijóst, að það væri barnaleg mannamennska, og lagði þær fyrir fætur henni. „Þær ættu að verða okkur þægileg tilbreyting á mataræðinu“, sagði hann og lét eins og ekkert væri. „En hafa þær eklci minnstu vitglóru í kollinum, Alison? Þær vappa fyrir hlaupið hjá manni". Hún tók upp eina þeirra. „Nei, þær eru vist ekki sérlega gáfaðar, greyin", sagði hún um leið og hún tók til við að reita af henni fiðrið, og það leyndi sér ekki, að hún hafði einhvern tíma reitt rjúpu áður. Svo færði hún sig nær bálinu, án þess þó að gera nokk- urt hlé á starfinu.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.