Vikan


Vikan - 13.09.1962, Síða 5

Vikan - 13.09.1962, Síða 5
sem tvo daga, finnst mér satt að segja, að kalla mætti þetta „dyr- plageri“. En strákurinn þinn virðist sætta sig við þetta — þess vegna skaltu bara hafa hann tjóðrað- ann, þangað til hann fer að hafa vit á að varast umferðina. „Vinur“... Kæri Póstur. Mér þætti vænt um ef þú vildir gera að umtalsefni þann afleita á- vana sumra að kalla alla, hvort sem þeir þekkja þá eða ekki (og þá frek- ar ekki) „vin“. Þeir, sem temja sér slíkt, eru að líkindum að reyna að hreykja sér hærra en þeir eru í rauninni, en þeir skapa sér ekki virðingu með þessu ávarpi, heldur fyrirlitningu. Þetta ávarp á aðeins rétt á sér góðvina á milli. Það er hörmulegt að hlusta á sjálfumglaða menn (eða kannske menn með minnimáttarkennd(?)) kalla hvern og einn viðurnefninu „vinur“ — ætl- andi með því að klappa umræddum „vini“ bókstaflega eða óbókstaflega á öxlina og lítillækka hann. Póstur minn, heldurðu að þú birt- ir þetta ekki, vinur? Vinur þinn. Kæra Vika. Ég ek oft Bergstaðastræti að Skólavörðustíg. Þar sem þessar göt- ur mætast er oft talsverð umferð. Skólavörðustígur hefur enn ekki að- albrautarréttindi. Ég hef aldrei svo ekið inn á Skólavörðustíg frá Berg- staðastræti, að ekki hafi bíll, sem ekur niður Skólavörðustíg „svínað" á mig. Þetta er erfitt horn. Nú vil ég gera það að tillögu minni, að þarna fái Skólavörðustígurinn aðal- brautarréttindi fyrir Bergstaðastræti eða þá að komið verði upp umferð- arljósum á þessum stað, — sem er auðvitað öllu fráleitara. Með þökk fyrir birtinguna. Billi. Gagnrýni... Kæri Póstur. Ég rek mig oft á það í dálkum þínum og annarra blaða, að fólk er að setja sig á háan hest og gagnrýna eitt og annað — og þá ekki sízt rit- smíðar. Ég hef alltaf talið það gott mat á ritsmíðar, að ég geti sjálfur ekki gert betur. Og ekki býst ég við, að allir þeir, sem skrifa umkvartan- ir til blaðanna geti gert betur. Ég geri mér ljóst, að bæði Vikan og önnur blöð verða að birta ýmislegt, sem reyndar myndi aldrei fá nein ÍMÓbelsverðlaun, en fólk hefur bara engan rétt til að gagnrýna, nema það geti gért betur sjálft. Vilmundur. -----— Hver á að gagnrýna Nóbelsskáldin? Fótur... Kæri Póstur. Hvernig stendur á því, að íslenzk- an gerir engan greinarmun á efri og neðri hluta ganglima vorra? Fót- ur táknar orðið líkamshlutann allt frá tá upp undir nára. Flest mál gera greinarmun á slíku (Enska: foot — leg; Danska: fod — ben) — en íslenzkan er í stökustu vandræð- um. Ekki er orðið löpp nokkuð betra -— merking þess er álíka óljós og orðsins fótur. Það þarf að kippa þessu í lag, finnst þér ekki? Þetta er aðeins eitt dæmi um það, hversu íslenzkan er ófullkomið mál. Ég læt þetta nægja að sinni. Kain. --------Þetta er aðeins eitt dæmi um eitthvað, sem betur mætti fara; en það sannar eng- an yeginn, að íslenzkan sé neitt ófullkomið mál. Hún stendur ein- mitt mörgum öðrum málum framar, hvað ýmislegt annað snertir, sem of langt mál yrði að telja upp hér. Hins vegar er þetta alveg satt hjá þér, það þarf að koma þessu „fótar“-máli á hreint. Eitthvað öfugsnúið... Kæri Póstur. Ég er móðir drengs, sem nýlega varð sjö ára. Við hjónin búum við góð efni og höfum getað veitt drengnum ýmislegt, sem önnur börn fá sjaldan. Fyrir skemmstu gáfum við honum tvíhjól, og um leið gáf- um við, án þess að láta hann vita, gamla stóra þríhjólið hans. En nú bregður svo við, þegar nýja- brumið er farið af tvíhjólinu, að drengurinn er búinn að missa áhug- ann á því og vill nú aftur snúa sér að þríhjólinu, sem búið er að gefa. Auðvitað langar hann hálfu meira í þríhjólið, úr því að búið er að gefa það. Mig langar þess vegna til að spyrja þig, Póstur góður: finnst þér rétt eða rangt að láta svona mikið eftir börnunum, þegar foreldrarnir á annað borð hafa efni á því? Finnst þér, að við eigum að fá handa hon- um nýtt þrjíhjól? Mamma í vafa. --------Nei, það finnst mér ekki. Þetta er bara einhver dek- urfyrirtekt í stráknum. Þú mátt búast við því, að ef þið gefið honum nýtt þríhjól, þá líði ekki á löngu áður en hann heimtar nýjan barnavagn til að dóla um í. ■ Wm Iðunnarskórnir eru liprir, vandaðir og þægilegir. Nylonsólarnir „DURALITE" hafa margfalda endingu á viö aðra sóla. Veljið lit og lag við yðar hæfi í næstu skóbúð.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.