Vikan


Vikan - 20.09.1962, Side 3

Vikan - 20.09.1962, Side 3
EINKAÞOTUR — ÞÆGILEGT EN DÝRT GAMAN. Ibn Saud Arabíukonungur keypti sér einkaþotu af Cómetugerð ekki alls fyrir löngu; fullstóra farþega- þotu, en þar sem öllum innbúnaði var breytt í því skyni, að kóngur gæti haft það sem notalegast á flug- inu, komið fyrir konunglegu svefn- herbergi, setustofu og skrifstofu, getur hann ekki haft nema fimmtíu Framhald á bls. 41. Dagstofa og svefnherbergi Arabíu- arabískra valdhafa við lifnaðarháttu konungs í Cómetunni. Svo er að sjá kalífanna, eins og þeim er lýst í sem tæknin geti ekki rofið tengsl „1001 nótt‘‘. i Hin nýja þota frá De Havilland verksmiðjunum mun að vísu fyrst og fremst miðuð við það, að verða framkvæmdastjórum stórfyrirtækja og þeim, sem reka viðskipti í mörg- um löndum, hentugt farartæki. Ekki er þó ólíklegt, að þarna sé um að ræða þotugerð, sem hentar vel smærri flugfélögum til farþega- flutninga á langleiðum. Það ætti að geta farið notalega um þessum sætum. Olíupeningamir eru hans hátign og nánustu hirð hans í líka peningar. ii§ii§ í ' 1 1 » ' Æ œf¥. . 9R; Bílaprófun FÍB 'é*úi- rá)5 og VIKUNNAR Skoðunarmaður Pálmi Friðriksson, bílaeftirlitsmaður. VAUXEALL VICTOR SUPER Vauxhall er 4 dyra 5 manna enskur fólksbíll, nýtízkulegur og stilhreinn í útliti og í flestu vandaður í frágangi. Þegar Vauxhali kom í októþer í fyrra með þennan nýja Victor sinn á markaðinn, gjörbreyttan í útliti og bygg- ingu, vakti hann mikla og verðskuldaða athygli og fékk frábærar viðtökur almenn- ings, auk þess sem hann vann gullverðlaun í sínum verð- flokki á bílasýningu í Frank- furt Am Main haustið 1961. Versta óvin sinn, ryðið, sem herjaði eldri gerðirnar mikið, hafa þeir nú reynt að vinna með breyttu byggingarlagi og ryðvarnarböðun. Að innan er bíllinn látlaus og íburðarlítill, bjartur og út- sýni gott. Sæta- og fótrými er gott fyrir 3 aftur í og 2 fram í. Framsæti er heilt, færanlegt fram og aftur, en ekki nægilega vandað og heldur þreytandi að sitja í. Fáanlegur er bíllinn með tvískiptu sæti (stólum) og eru þau um 3000.00 kr. dýrari. Stjórntækjum er vel fyrir komið nema stillirofar fyrir miðstöð, eru helzt til langt frá ökumanni. Mið- stöð er góð og kraftmikil vatnsmið- stöð og blástur á framrúðu. Rúðuþurrkur eru rafmagnsdrifn- ar en aðeins einn hraði. Vatns- sprauta á framrúðu er ekki í standard framleiðslu, en hægt að panta hana sérstaklega. Tvö sól- skyggni eru í bílnum. Farangurs- rýmið er stórt og rúmgott og vara- hjólbarða fyrirkomið á góðum stað í hægri hlið þess. Fjöðrunin er gormar að framan og fjaðrir að aftan. Aksturseiginleikar eru góðir, mótorinn er byggður meira niður en áður til að lækka þyngdar- punktinn og bíllinn liggur vel á vegi og er góður í ójöfnum. Framhald á bls. 41. Vauxhall Victor er íburðarlítill en smekklegur að innan. Framsætið er heilt, en fáanlegt sem aðskildir stólar eins og myndin sýnir. Útgefandi: Hilmir h.í. Hitsljóni og augiýsíugur: Skiphujt. 33. Símor: 35320. 35321, 35322, 35323. Pósthólf 140; A’ígreiðsla og dreifing: Ititstjóri: Blíiðadreífing, l.augavegi 133, sltni Gísli Sigurðsson (ábm.) 30720. Urtíifingarstjóri Óskar Karlk- son. Vt.rð í líiu.sasölii kr. 15. A.skrifb Framkvæmdastjóri: Hilmar A. Kristjánssön. arvtírS ér 200 kr, ársþriðjungsltígá, greiðíst fyrirfrarn. Prentun: Hilmir h.f. Myndumot: Rafgraf h.f. í næsta blaði verður m. a.: • Negrakóngasaga frá íslandi. — Við höfum flutt inn um tvö þúsund nýjar bifreiðar á þessu ári til viðbátar því, sem fyrir var, en ekkert bólar á nýjum og betri vegum. Nýju bílamir hristast í sundur á þvottabretti og hvörfum og farþegarnir anda að sér rykmekkinum. • Hundalif. — Myndir af hundunum hans Carlsens, og viðtal við hann um mannagildrur og sitthvað fleira. Eftir GK. • Óstýrilátt hjarta. — Smásaga. FORSÍÐAN Þar hafið þið Prinzinn — eða NSU Prinz 4 eins og ___ hann heitir fullu nafni hjá þeim í Neckarsulm í Vest- ur-Þýzkalandi, þar sem hann er smíðaður. Þeir birta gjama myndir af honum þar með græna skóga að baki eða gamlar hallir, en hér eru það hvorki skógar né hallir sem einkenna bakgrunninn. Grjót og meira grjót. Þannig er Island og Prinzinn fer viðlíka vel í þesskonar landslagi eins og þið sjáið á myndinni. Svo skuluð þið fletta upp á opnunni; þar er getraunin og sitthvað fleira um Prinzinn. • Allt fyrir unga íólkið: „Leðurjakkar", Stjama á himni djassins, Ástfangið ektapar, Litlasystir þeirrar „stóru“ og Tarzan hinn ógurlegi. • Eiðurinn. — Smásaga eftir Elizabet Bowen. • Góðmeti og kjammeti. Uppskriftir og matartilbúningur. Eftir Bryndísi Steinþórsdóttur, húsmæðrakennara. VIKAN 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.