Vikan


Vikan - 20.09.1962, Page 9

Vikan - 20.09.1962, Page 9
\' ' Sámsstaðir við Búrfell eru í byggð að nýju. Þar voru 60-70 manns í sumar við rannsóknir fyrir stórvirkjun Þjórsár. - Hér eru nokkrar svipmyndir frá starf- inu þar. ■ ■ MiW Rása Krisimundsdóttir og Anna Eydal hella upp á könnuna. 'fxiMMií Elinir fjórir vísu á teiknistofunni, Páll Ólafsson, Sigurður Ingvarsson, Samúel Ásgeirsson og Jakob Jakobsson, bera saman ráð sín. Læknaneminn og menntaskólaneminn hjálp- ast að við að halda litla borkrílinu gangandi. Doktorscfnið, Arnar Finnbogason, tottar pípu sína, og félagi hans Jakob Kristinsson stend- ur fyrir aftan. Guðmundur Sigurðsson verk stjóri bormannanna. Guðmundur vildi, að við snerum okkur tii enn hærri virðingarmanna á staðnum og fylgdi okkur inn á teiknistofuna, þar sem verkfræð- ingar og kortlagningarmenn staðarins ráða ríkj- um og brjóta heilann um torráðnar gátur í aug- um okkar leikmanna. Þarna hittum við að máli fjóra unga menn, Pál Olafsson verkfræðing, Sig- urð Ingvarsson, sem unnið hefur við kortlagn- ingu í suðurlöndum, Samúel Ásgeirsson, sem lagt hefur stund á verkfræði í Miinchen, ein- hverri mestu bjórframleiðsluborg heims og Jakob Jakobsson verkfræðinema. Þeir skýrðu fyrir okkur í höfuðdráttum hvað verið væri að gera á staðnum. Vinnan er að mestu leyti þríþætt. í fyrsta lagi er verið að sprengja göng inn í Sámsstaða- múla til þess að kanna til hlítar jarðlögin í fjallinu. í öðru lagi stendur yfir nákvæm kort- lagning á umhverfinu og í þriðja lagi fara þarna fram umfangsmiklar jarðboranir í sambandi við jarðvegsrannsóknirnar. Að þessu öllu vinna flokkar frá ýmsum aðilum, Almenna bygginga- félaginu, Raforkumálaskrifstofunni og heims- þekktu bandarísku fyrirtæki, Harza Engineering Company. Harza hefur með höndum vatnsvirkj- anir víða um heim svo sem á Formósu og Filipseyjum, í Pakistan, Iran og Iraq og víðar. Frá því fyrirtæki er hingað kominn verkfræð- ingur að nafni Svante Hjertberg. Hann er yfir- maður yfir öllum þeim rannsóknum, sem þarna eru framkvæmdar, fyrir hönd hins bandaríska fyrirtækis. Hann mun ganga frá niðurstöðum rannsóknanna, sem síðan verða lagðar til grund- vallar, þegar lokaákvörðun verður tekin um það, hvort lagt verður í að reisa stórvirkjun við Búrfell. Áætlað er, að öllum rannsóknum verði lokið í haust, þannig að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að hafizt verði handa um sjálfa virkjunina á næsta ári, ef aðstæður reynast jafn heppilegar og búizt er við og fjármagn fæst til framkvæmdanna. Við hittum Svante Hjertberg að máli. Tók hann okkur vel og bauðst til þess að gerast leiðsögumaður okkar um stund, þegar við vær- um búnir að hressa okkur á kaffi og sætabrauði hjá „húsmæðrunum" í eldaskála. — Það leyndi sér ekki, að maðurinn var af norrænu bergi brotinn eins og nafnið benti raunar berlega til. Svanti (allir virtust beygja fomafn hans á ís- lenzkan máta), er maður hár og grannur, Ijós yfirlitum með ljóst hár, sænskur að uppruna. Nú, við létum ekki segja okkur það tvisvar að ganga yfir í „messa“. Þar hittum við tvær af fjórum stúlkum, sem sjá um, að allur þessi f jöldi sé vel haldinn í mat og drykk. í eldhús- inu var töluverður handagangur í öskjunni. Stöllurnar tvær, sem kváðust heita Rósa Krist- mundsdóttir og Anna Eydal, voru í óðaönn að framreiða kaffið. Sveðjum var brugðið af mik- illi leikni, svo brauðsneiðarnar hrúguðust upp, áskurðurinn var skorinn, að því er okkur virtist, í stórhættulegu apparati, sem snérist á fleygi- ferð og kaffikannan fylltist óðum af rjúkandi þjóðardrykk íslendinga. Anna var búin að setja rúllur í hárið, enda ólofuð og ætlaði á ball í Aratungu kvöldið eftir. Þegar við spurðum Rósu, hvort þeir 50 karlmenn, sem þær fæddu, bæru ekki einlæga matarást til þeirra, svaraði hún því til, að frekar lítið bæri á slíkum einkennum, en Anna o-jæjaði og brosti kankvíslega um leið og hún renndi rúllupylsunni í gegnum skurð'ar- apparatið. „Ég ætla að minnsta kosti að vona, að þeir bjóði manni með á ballið annað kvöld.“ — Hvernig er það, er ekki eldhúsið allt of • ® YISAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.