Vikan


Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 30

Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 30
Að vera falleg og halda fegurð sinni Suzanne André er leyndardómur hamingju og velgengni. XILKYNNIR Árum saman hafa læknar og efnafræðingar unnið að rannsókn- um til undisbúnings framleiðslu á snyrtivörum okkar. Ævagömul fræði um aðferðir til fegrunar og nýjustu vísindalegar uppgötvanir hafa verið hagnýttar til að ná sem beztum árangn. — Framleiðsla okkar Placenta creme inniheldur nátt- úrleg' efni, sem hörundið drekkur í sig og hefur góð áhrif á húðina. Hrukkur og drættir hverfa. Sömuleiðis öll óhreinindi í húðinni Suzanne André Kosmetik GmbH Wiesbaden PLACENTA CREM má nota, ekki aðeins á andlit, heldur á allan líkamann. Regluleg notkun á háls og brjóst gefa augljósan og skjótan árangur. PLACENTA CREM er þægilegt í notkun, það lokar ekki svita- holunum, og frekari snyrting er óþörf. PLACENTA CREM mun yður brátt finnast eins ómissandi og dagleg snyrting yðar. PLACENTA CREM fæst í snyrtivöruverzlunum og víðar. PLACENTA CREM er borið á húðina eftir hreinsun. Ögn af kreminu, á stærð við baun, er núið á milli fingurgómanna og klappað léttilega inn í húðina á andlitinu. — Einkaumboð: H. A. TCLIAIUS STUDEBAKER. Framhald af bls. 2. að stýrishringurinn ver það algjör- lega, svo að ekki er nein hætta að bílstjórinn skelli á það við árekst- ur, en spölunum, sem tengja stýris- hringinn stönginni, er svo hagað, að þær skyggi sem minnst á mælanna. Utan mælaborðsins sjálfs eru allar brúnir ávalar til að draga úr meiðslahættu. Bílaspámenn erlendis telja, að yf- irleitt verði allar helztu breyting- ar á bandarískum bílum við það miðaðar, að sem bezt fari um far- þega og bilstjóra; t. d. verði sætin stórlega bætt. Um leið sé og að því stefnt, að aksturinn verði sem þægi- legastur og öruggastur — og beri allt því ljóst vitni, að bandarískir b-’laframleiðendur ætli sér elrki aö láta í minni pokann fyrir þeim í Evrópu, m. a. leggi þeir æ meiri á- herzlu á framleiðslu fjögurra og fimm manna bíla, og sé ekki ólík- legt, að sókn evrópsku smábílafram- leiðendanna á undanförnum árum, hafi snúizt í vörn áður en langt um líður. ★ LIFUR. Blandið öllum hinum efnunum í hana og kælið deigið vel. Síðan eru búnar til úr því lengjur, sem er velt upp úr eggjum og tvíböku- mylsnu og steiktar í heitri feiti í djúpum potti cins og kleinur. Þurrkaðar á þykkum pappír áður en þær eru bornar fram. BÖKUÐ LIFUR. Lifrarsneiðum er velt upp úr krydauðu hveiti. Settar í smurt form, smjörmolar eða baconræmur lagðar ofan á. Bakað í meðalheit- um ofni í 30—40 mín. LIFRARKÆFA. 500 gr lifur, 250 gr ósaltað svína- flesk (spæk), 1 egg, 1 matsk. hveiti, 2% dl rjómi, 5 kryddsíldar eða hakkaður laukur, 4 matsk. salt, 1 tesk. hvítur pipar, V2 tesk. karrý. Lifrin látin liggja í ediksvatni í minnst klukkutíma. Skorpan er tek- in af svínafleskinu, og lifrin og fleskið hakkað mörgum sinnum í hakkavél. í tvö síðustu skiptin eru kryddsíldirnar hakkaðar með. Oll hin efnin sett saman við og deigið sett í form og í vatnsbað inni í ofni, og bakað í klt. Sé ekki óslcað eftir skorpu, er málmpappír lagður þétt ofan á. ★ Framhald af bls. 13. að í raspinn með feitinni, sem af því rennur. Af þessu er nú sett 1 matsk. á hverja lifrarsneið, þeim síðan rúllað þétt saman og bundið um með seglgarni. „Fuglarnirf‘ eru svo brúnaðir í smjörlíki og sjóðandi vatni síðan hellt yfir. Lokið sett á og látið sjóða við mjög lítinn hita í 2 klst. Stöku sinnum er hrært var- lega í pönnunni. Fuglamir bomir fram á fati með soðnum kartöflum, en soðið kryddað eftir smekk og borið í sósukönnu með. LTFUR ESPANOLA. 8 baconsneiðar, 400 gr lifur, 1 rif- inn laukur, 50—75 gr steinlausar rúsínur, 1—2 matsk. edik. Baconið skorið í smábita og steikt þar til það er hart. Lifurin er skor- in í fingurþykkar ræmur og brúnuð í baconfeitinni. Hún er tekin upp úr, haldið heitri meðan laukurinn er brúnaður í sömu feiti. Ef feitin verður of lítil má bæta smjörlíki í hana. Nú er rúsínunum og edik- inu bætt í og allt sett aftur í pott- inn og látið gegnhitna. Löng, frönsk brauð borin með, eða kartöflur. INNISKÓR. Framhald af bls. 12. áfram að hekla 2 fastal. í hvern boga að miðju að aftan. Útábrotið: Festið garninu við miðju að aftan og heklið 2 loftl., sleppið 1 fastal., heklið 1 fastal. í næstu 1., þannig áfram þar til við miðju að framan. Þá er aukið út eins og á tánni, þá aftur heklað 2 loftl. og 1 fastal., þar til við miðju að aftan, þá er aukið út eins og að framan. Heklið nú þannig áfram 4 umf., klippið á þráðinn og gangið frá honum. Heklið annað stk. eins. Takið nú skinnið og sníðið það 2 sm. stærra en leppinn. Brjótið það yfir leppinn og leggið niður við með þéttum sporum. Sníðið fóðrið 1 sm. stærra en leppinn, brjótið inn af því og leggið niður við með þéttum spor- um aðeins fyrir innan brúnina. Takið síðan heklaða stykkið og saumið við sólann og ath. að láta það ekki togna að framan. Dragið teygju í við samskeyti útábrotsins. ★ HRÆRÐ EGG MEÐ LIFTJR. 6 egg, % tesk. salt, % tesk. pipar,.... 2 matsk. smjör, afgangur af jí; steiktri lifur, u. þ. b. 300 gr eða* eftir ástæðum. (J,* Eggin eru þeytt lauslega saman, eðafe rétt þar til rauðurnar hafa sprungið, salti og pipar bætt í. Smjörið brætt, en ekki brúnað og eggjunum hellt í. Mjög lítill hiti hafður á og hrært öðru hverju varlega í. Tekið af hit- anum áður en það er alveg stíft. Hakkaðri, brúnaðri lifrinni stráð yfir. LTFRARKRÓKETTUR. Vi kg lifur, 1 bolli hvítur upp- bakaður jafningur, 2 matsk. soð- in hrísgrjón, Vi tesk. sæt paprika, 1 tesk. rifinn laukur, Va tesk. pip- ar, % tesk. salt, V2 tesk. sftrónu- safi. Látið lifrina sjóða við hægan hita í saltvatni þar til hún er meyr. NÚTÍMAKONAN. Framhald af bls. 13. urreisnartímabilinu hefur átt sér 'stað óeðlilega mikil tilbeiðsla á orð- (inu gáfur, og það höfum bæði við og aðrar kynslóðir á undan okkur, orðið að borga fyrir — aðrir mann- legri og dýrmætari eiginleikar hafa beðið lægri hlut. Þetta á ekki bara við um konuna, við mennirnir höfum líka misst mik- ið. Því konan hefur hjartahlýju, sem hversdagslíf mannsins hefur kann- ske ekki þörf fyrir, en sem lífið sjálft hefur þörf fyrir. Þann dag, sem þess- ar uppsprettur þorna, er allt búið að vera. Þá munu fæstir finna lífsham- ingjuna. Þetta er það, sem Herbrand Lavik hafði að segja, og ekki er hægt að neita því, að það vekur umhugsun. Við látum ykkur svo eftir, lesendur góðir, að kappræða málið. ★ 30 VIKÁN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.