Vikan


Vikan - 20.09.1962, Side 35

Vikan - 20.09.1962, Side 35
tvíþættur, annars vegar lekaprófan- ir og hins vegar að ná í sýnishorn af jarðveginum. Haraldur hefur sjálfur umsjón með lekaprófunun- um. Hann er ungur stúdent og legg- ur stund á jarðfræði í Belfast. Þar er hann einn af þremur íslenzkum námsmönnum. Ekki fannst honum útlitið glæsilegt fyrir jarðfræðinga hér á landi. En áhuginn fyrir faginu hafði skotið rótum á unga aldri, svo hann lagði út í námið. Við ókum nú svolítið áfram og að næsta bor. — Þarna vinna þeir Hemingway og general Patton, sagði Svanti. Þegar betur var að gáð, kom í ljós, að það var engin tilviljun, að þeir félagarnir Þórður Kristjáns- son og Stefán Stefánsson gengu und- ir þessum frægu nöfnum. Skeggið á Þórði gaf skeggi Hemingways heitins ekkert eftir og alls ekki er ólíklegt, að hjálmur Stefáns hefði passað nákvæmlega á höfuð hers- höfðingjans. — En Þórður sór og sárt við lagði, að hann hefði aldr"'i á ævinni skotið tígrisdýr, ljón eða fíl, hvað þá orðið heimsfrægur á ritvellinum. Stefán var líka harður á því, að hann hefði aldrei farið með teljandi ófriði gegn nokkrum manni hvað þá heilli þjóð. Hvað sem öllu þessu líður, höfum við heyrt fyrir satt, að Þórður sé einn geð- bezti glímumaður á landinu. Félagar hans í Þjórsárdal báru það allir sem einn, að það væri sama hvað á gengi, Þórður væri alltaf í sólskins- skapi og ljúfmennskubrosið hyrfi aldrei af ásjónu hans. Þetta þóttu okkur ekki slorleg meðmæli. Næst ókum við að vestri bakka Þjórsár norðan við Búrfell. Þar er fyrirhugað að gera stíflugarð þvert yfir fljótið, 6 til 8 metra háan. Þarna er áin ekki mjög djúp, varla meira en hálfur annar metri, en breiddin er þeim mun meiri eða 3 til 4 hundr- uð metrar. Svolítið ofar með ánni rákumst við á tvo unga námsmenn við þriðja jarðborinn, Arnar Finnbogason, sem leggur stund á læknisfræði og Jakob Kristinsson menntaskólanema. Arn- ar tottaði tóma pípu af stóískri ró, og hvorugur virtist láta það nokkuð á sig fá, þótt þeirra bor væri miklu lítilfjörlegri, en hinir fjórir, sem í gangi voru. — Þetta kríli getur svo sem ekki neitt. Hann rolast þetta í gegnum vikurlagið 10 til 15 metra og er bara notaður til þess að bora ofaná fast, sagði Arnar. — En hvernig finnst ykkur ein- veran hérna uppi í óbyggðum, strákar? — Hún venst furðufljótt, segir Arnar. Já, þetta er bara ágætt. Veðr- ið mætti bara vera betra. Það hefur verið hálf skítlegt í sumar; það eru einu leiðindin. Á bakaleiðinni mættum við lands- frægum fjallabíl, Petrínu gömlu. Út úr Petrínu steig flokkur mælinga- manna, sem nú voru á leið á vinnu- stað. Það hafði rignt fyrr um dag- inn, en nú var stytt upp. Mælinga- menn eru svo skolli „lánsamir", að þeim er ógjörningur að stunda vinnu sína nema í þurru veðri. Við smellt- um einni mynd af flokknum og svo héldu báðir sína leið. Leiðin til baka niður af fjallinu var næstum því enn hrikalegri en leiðin upp, en landróverinn stóð sig eins og hetja. Nú var rúsínan í pylsuendanum eftir það er að segja að kanna jarðgöngin sem verið var að gera inn í Sámsstaðamúla. Tbni heimapermanent gerir hár yóar mjúkt, gljáandi og meðfærilegt Með Toni fáið pér fallegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að “leyniefni” Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér þurfið aðeins að bregða greiðtmni í hárið, til þess að laga það. Ekkert annað permanent hefir “leyniefni”. það er eingöngu í Toni. Toni er framleitt i þremur styrkleikum REGULAR fyrir venjulegt hár SUPER fyrir mjög fínt hár GENTLE fyrir gróft hár, skolað og litað hár Einn þeirra er einmitt fyrir yður. Toniframleiösla tryggir fegursta hárið VIKAN 35

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.