Vikan


Vikan - 20.09.1962, Qupperneq 36

Vikan - 20.09.1962, Qupperneq 36
mvn’s barnapúður noli’ÍS .TON'SOX'S bnniíi])iV\ir rflir livrrt ImÖ og niltaf þegnr it imi blt'yju. fvtmnm’s barnavörur Iíarnapúður. OIíi, Lolion. Shampoo, Sápa, Eyrnapinnar, li i i jn r. l’t ollacl m. (jjvkwívndjfQnwxon Hcildsöiiiljirgðir: FUIDIUK BERTELSEN & CO. H.F. l.augategi 178. —• Sími'3G620. "S'ií; ■«;; c ""'í: i í ! i i BABY POWDER i Þegar búið var að taka af okkur | hjálmana, eina virðingartáknið, sem j við bárum í ferðinni, ók Svanti okk- ur niður að skálanum aftur. Hann ! benti okkur á, að við mættum ekki láta undir höfuð leggjast að finna að máli stéttarbróður okkar á staðn- um. Hér væri nefnilega gefið út blað og héti ritstjórinn Jón Sigurðs- son. Jafnframt því, að hann ritstýrði merkisblaðinu ,,Búrfelli“, hefði hann umsjón með veðurathugunum á staðnum íyrir veðurstofuna. Aður en við gengum á fund rit- stjóra fengum við nð skoða eina húsdýrið á staðnum. TJti undir skála- vegg hafðist ljónfiöru"ur yrðlinc- ur v'ð í búri sínu. Hafði hann verið handsamaður á fjöllum uppi og fluttur í fjötrum til mannabústaða. Refurinn va'; kallaður Pálína í höf- uðið á Páli Ólafssyni sem hafði veg og vanda af uppeldi rebba. Eitt af því, sem Páll var búinn að kenna skjólstæðing sínum, var að reykja pípu. Við heyrðum meira að segja útundan okkur, að sá stutti væri farinn að setja sig upp á háan hest og vildi ekki sjá annað tóbak en Prins Albert. Ef til vill hefur runnið blátt blóð í æðum kauða, en ekkert vitum við um það. Inni á ritstjórnarskrifstofu hitt- um við Jón Sigurðsson ritstjóra. Hann var í óða önn að undirbúa útgáfu næsta tölublaðs. Sagði hann okkur, að útgáfan gengi bara sæmi- lega. Einu mistökin, sem enn höfðu orðið, voru þau, að hausinn á fyrsta tölublaði hefði misritazt, svo að úr varð Búrell í staðinn fyrir Búrfell. Þetta lítilræði hafði þó enginn tekið neitt nærri sér. Dálítið kvartaði Jón undan því, að hann neyddist til að „prenta“ blaðið á sænska rit- vél, sem á vantaði þó nokkra ís- lenzka stafi. Umburðarlyndir lesend- ur fyrirgáfu þennan ókost einnig að fullu, svo þetta var kannski ekki svo afleitt eftir allt saman. Vegna þess hve blaðið var gefið út í fáum eintökum, kunnum við ekki við að fara fram á, að við fengium að hafa eintak með okkur. fffí stað þess fengu.m við leyfi til að _ófskrifa nokkrar frétt.ir upp úr blað- inu. Fyrir utan „hel’ismunnann“ hitt- um við fyrir þi Árna Snævarr, Svavar Jónatansson verkfræðing við göngin og Guðmund Hermannsson verkstjóra í göngunum. Ræddu þeir um verkið r.iej alvörusvip, og á- ræddum við ekki að blanda okkur í samtalið, cnda vafasamt, að við hefðum getað lagt nokkuð gáfulegt til málanna! En ætlunin var að labba sér inn í göngin, svo við fengum allir hjálma, sem við settum þegar upp og vorum hinir vígalegustu. Auk þrss voru dregin stígvél á fætur okkar, þar 'eð botninn í göngunum var ökkladjúp, seigfljótandi leðja. Var nú haldið af stað inn göngin, hinir kunnugu á undan, en við í humátt á eftir „svona til vonar og vara“. Göngin voru á þriðja metra ó hæð og um tveir metrar á breidd, þrúðbein og regluleg. Veggir og loft úr jökulleir sem verður að fíngerð- um salla við sprengingarnar. Þegar sari”>-i bl tn?.r lítur þetta ósköp svipað út og venjuleg sements- steypa. Svavar sacði okkur, að held- ur seinlegt væri að sprengja gegnum þetta fíngerða jarðlag. Jökulleirinn er svo laus í sér að holurnar, sem boraðar eru fyrir sprengiefnið, fyllast gjarna á svipstundu um leið og borað er. Þess vegna gengur þetta ekki eins rösklega og við hefðum kosið, sagði Svavar. /— Hvað eru göngin orðin löng, Svavar? •—• Rúmlega 100 metrar. Ætlunin er, að þau verði minnst 800 metra löng áður en líkur. — Og hvað komizt þið langt á sólarhring? — Að meðaltali á fjórða metra. En nú þykjumst við sjá merki þess, að við séum að komast niður úr þessu leiða jökulleirlagi og niður á klöpp, og þá vonumst við til, að afköstin aukist. Eftir göngunum liggja járnbraut- arspor. Á þeim rennur eimreiðin, sem dregur fulla flutningavagna upp úr göngunum. Eftir að hreinsað hef- ur verið til eftir hverja sprengingu, þarf að bæta við spori og þannig sniglast verkið áfram, lengra og lengra inn í bergið. Inn eftir göngunum liggja fjórar leiðslur, sem flytja vatn, þrýstiloft, rafmagn og ferskt andrúmsloft inn í enda. Bæði er því allbjart og sæmi- lega gott loft þarna í iðrum jarðar, en engu að síður leið okkur ekki nema sæmilega vel niðri í jörðinnL Ef til vill hefur því verið um að kenna, að við minntumst þess, að í gamla daga stóð fólk á því fast- ara en fótunum, að gegnum Heklu- tind lægi „beinn og breiður vegur“ beinustu leið niður til bústaðar kölska. Þarna vorum við svo ískyggilega nærri Heklu, að það var ómögulegt að vita nema við værum komnir óþarflega nálægt stað, sem okkur þótti alls ekkert eftirsóknar- verður. Við vorum því þeirri stund fegnastir, þegar við komum upp á yfirborðið aftur, þótt við værum reyndar dálítið upp með okkur eftir að hafa staðizt þessa eldraun og værum auk þess reynslunni ríkari. Við spurðum Guðmund Her- mannsson verkstjóra við göngin, hvort ekki kæmi fyrir, að mönnum liði hálfilla þarna inni, fengju inni- lokunarkennd eða eitthvað þess háttar. Guðmundur varð undrandi á jafnkjánalegri spumingu. Hann kvaðst hafa unnið við neðanjarðar- göng síðan 1949 og reyndi að full- vissa okkur um, að sér liði hvergi betur en inni í sem allra lengstum göngum. Það var ekki laust við, að vði bærum þó nokkra virðingu fyrir svona fífldjörfum fullyrðing- um. Frétt úr Búrfelli, 2. tbl. I. árg.: REFURINN: Refurinn sem náðist lifandi 12. júlí, er við róða heilsu eftir atvikum. Hann fer í gönguferð k hverjum degi og er þvegið með sápu og volgu vatni tvisvar í viku. Hann étur allar tegundir af hráu kjöti, sem honum er boðið, en hann lítur ekki við kökum. Hann er vin- sæl 1 j ósmyndafyrirsæta. MINKUR: f síðustu viku fór Jðn Ogmundsson á refaveiðar, en veiddi mink. Það var karldýr. — -------Undir hausnum á blað- inu stóð eftirfarandi: Efni: Þeir, sem komu með efni í blaðið: Haukur Tómasson, Jón Sigurðs- son, Stefán Stefánsson. Prentun: Blaðið er prentað á Olivetti ritvél af Jóni Sigurðssyni. Við vildum ekki tefja ritstjóra lengur frá störfum, smelltum af honum mynd og höfðum okkur á braut. Að síðustu rákumst við á unga stúlku, sællega og rjóða í kinnum. Hún heitir Celia Washbourn, er tví- tug að aldri og leggur stund á jarð- fræði í hinni frægu háskólaborg, Cambridge. Framhald á bls. 88. 36 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.