Vikan


Vikan - 25.10.1962, Blaðsíða 27

Vikan - 25.10.1962, Blaðsíða 27
II * 'i 'biiwap m Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. HrútsmerkiÖ (21. marz—21. apr.): Þú skalt ekki vera mikið úti eftir miðnætti í þessari viku, því að þín bíða þá alls kyns freistingar, sem þú virð- ist ekki maður til að standast eins og á stendur. Vinur þinn bregzt þér einhvern veginn, líklega um helgina, en þú mátt umfram allt ekki taka þetta illa upp hiá honum, þvi að þetta var óviljaverk. Nautsmerkiö (21. apr.—21. mai); Kona, sem lítið hefur komið við sögu þína undanfarið, verður nú til Þess að áform þín varðandi næstu tvær vik- ur breytast töluvert og þá líklega til batnaðar. Þú munt verða hrókur alls fagnaðar í samkvæmi, sem haldið verður í tilefni merkisdags I fjölskyldunni. Föstudagurinn er dálítið varasamur. TvíburamerkiÖ (22. mai—21. júní): Fimmtudag- urinn virðist vera sá dagur vikunnar, sem skiptir þig og framtíð þína mestu. Þú skalt fara að öllu með gát þennan dag, einkum ef peningaútlát eða stöðubreyting er annars vegar. Á vinnustað gerist ýmislegt óvænt, sem verður til þess að áhugi þinn vaknar á nýju tómstundaverkefni. KrábbamerkiÖ (22. júni—23. júlí): Taktu ekki mark á Því, sem sagt er um náið skyldmenni þitt. Helgin verður öll hin skemmtilegasta og i alla staði afar óvenjuleg. Vinur þinn gerir þér ómet- anlegan greiða, en ekki er vist að þú gerir þér grein fyrir því, hversu mikinn greiða hann hefur gert þér, fyrr en þá eftir eina til tvær vikur. Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þetta er vika, sem á eftir að verða þér lengi minnisstæð, eink- um hvað öll hjartans mál snertir. Liklega tekur þú afdrifarika ákvörðun í vikunni, en ef þú hef- ur ekki hugsað það mál nógu rækilega er hætt ylð, að ákvörðun þín geti komið þér illilega í koll, þegar fram liða stundir. Heillalitur rautt. MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Maður nokk- ur, sem þú hefur aldrei talað við fyrri, verður til þess að hjálpa þér mjög mikið I máli, sem þér er afar hugleikið. Reyndu að votta honum þakk- læti þitt eins og Þú getur bezt. Liklega verður helgin ekki nærri eins skemmtileg og þú vonaðist til, en aftur á móti máttu hlakka til mánudagsins. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú munt eiga mjög annríkt í vikunni, jafnvel kvöldin verða ef svo mætti segja hlaðin verkefnum. Um helgina gefst þér þó tími til að „slappa af“ og skaltu þá umfram allt ekki fara að spennast út um hvipp- inn og hvappinn. heldur sitja heima I ró og næði. Amor gæti þá sýnt sig. Heillatala 7. DrekamerkiÖ (24 okt.—22. nóv.): Þetta verður vika mikilla andstæðna. Ýmist mun allt ieika i lyndi eða þá þér finnst allt á móti þér. Þú ræðst í eitthvað, sem síðar mun reynast þér einum of- viða, og verður þú þá að leita til einhvers, sem gæti orðið þér að liði. Miðvikudagurinn er langbezti dagur vikunnar. Heillatala 11. Bogmannsmerkiö (23. nóv -—21. des.): Þessi vika verður yfirleitt heldur tilbreytingalítil, en þó eru líkur á þvi, að helgin verði óvenjuskemmti- leg. ef þú gerir eitthvað til þess sjálfur, en bíður þess ekki bara, að eitthvað gerist. Þú ert orðinn fulihlutdrægur i hópi kunningja þinna, og væri réttast fyrir þig að bæta ráð þitt hið snarasta. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú munt fá fréttir að utan eða úr fjarlægu landshorni, sem verða til þess að koma Þér í gott skap. Þú skalt ekki fara að ráði þér yngri og óreyndari manns í máli, sem snertir starf þitt. Á vinnustað rís upp einhver deila, sem þú getur einmitt orðið til að útkljá. Heillalitur bleikt. VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú ferð að heiman i vikunni, án þess beinlínis að vita, hvert þú ert að fara, en einmitt þá muntu lenda i mjög óverijulegu og skemmtilegu ævintýri. Kona, sem þér hefur ekkert verið allt of vel við til þessa, sýnir þér nú, að þú hefur vanmetið hana. Mánudagurinn er svolítið varasamur fyrir unga fólkið. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þessi vika verður fremur leiðinleg fyrir flesta þá, sem heima sitja. Þú ferð að öllum líkindum á einhvern stað, sem þú munt umgangast talsvert næstu vikur og kannski enn lengur. Talan 5 skiptir konur mjög miklu. Á'*+A m % LÓÐBYSSUR Sölustaðir: S í S Austurstræti og kaupfélögin.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.