Vikan


Vikan - 25.10.1962, Blaðsíða 32

Vikan - 25.10.1962, Blaðsíða 32
Skinnhúfan. Frh. sk.iftið um í Bartop . . . Var honum illt í hálsinum? HvaS- an fékk hann þessa bassarödd? — Takk, þetta var afskaplega elskulegt af yður. Iværar þakkir! — Drottinn minn! hvíslaði ég. — Hverslags vofa er nú þetta? Palli lyfti brúnum og leit á leo- pardahattinn og svo á mig. — Nú, hvernig líturðu sjálf út? sagði hann reiðilega. Ég fann hvernig ég fölnaði. — Hv . . hvað meinarðu? — Ef þú ætlar að vera með þessa heysátu, geturðu farið ein á bíó! Ég fann hvernig reiðin sauð i mér. Þetta sagði Palli! Palli! — Erum við ekki bráðum komin? Er langt að ganga? Haidið þér, að það sé hægt að ná í nokkurn hurð- armann? Ég hef svo hræðilega mik- ið að bera, og Minou verður líka að fá að hreyfa sig. Litla hjartað, er hún ekki indæl? Leopardakonan Iiélt upp litlum kjölturakka, sem hún var með í bandi, og Palli — sem kallar svona liunda kerlingahunda •— klóraði bundinum svo ákaft á hálsinum, að lokkur úr ljósu hári hans straukst við leopardahattinn. — Ég vil gjarnan bera nokkrar töskur og ganga ineð vður að hinum vagninum, sagði hann. Það tekur enga stund , , . — ö, nei, þér hafið sjálfsagt eitt- livað annað að gera. Leopardinn hringlaði mótmælandi með arm- böndunum. — Ég næ þvi samt, sagði piltur- inn, sem ég elskaði heitast af öllu i heiminum. Mér fannst ég verða að engu þar sem ég sat. Mig langaði til að kasta mér um hálsinn á Palla og halda honum fast, því að ef hann færi með henni væri öllu tap- að! — Ef þú ferð með henni, segi ég henni að þú sért bara skólastrákur, sem hafir ekki einu sinni sett upp stúdentshúfuna enn! Þú með þessa bassarödd! — Gjörðu svo vel — gerðu það hara, ég ætla aldrei framar á æv- inni að tala við þig! — En bióið? spurði ég kjánalega meðan ég fann hvernig augnahára- liturinn hyrjaði að svíða í augna- krókunum á mér. Svo fóru þau. Fyrst liún á háum mjóum hæluin með litla tösku í hvorri liönd, og á eftir Palli, hann Palli minn — klyfjaður eins og burðarjálkur gekk hann út úr lífi mínu. Hann hafði mikið að bera — alla mína drauma um börn og kaffi og inniskó, fyrir utan allar töskurnar liennar. Ég heyrði þau ldæja og svo hurfu þau innan um hílana. Hvað átti ég að gera? Ég gekk yfir torgið, stóð dálitla stund við hryggjuna þar sem lúristabátarnir lögðust að og hugsaði með mér að réttast vséri að kasta sér i sjóinn, þegar manni hefur verið kastað þannig burt eins og nöguðum epla- kjarna. Ég gæti að minnsta lcosti kastað húfunni, sem alltaf mundi minna mig á fyrsta og mesta ósigur minn. Ég tók Irana líka af mér, en þcgar ég hélt á henni, langaði mig meira til að þrýsta andlitinu að henni og gráta i liana —- og það gerði ég. Hvað álti ég að gera, hvert átti ég að fara? Ekki vildi ég fara í bió, og ekki gat ég vel farið aftur upp í vagninn og farið heim? Mamma mundi sjá allt á mér — við fyrstu spurninguna mundi ég fá móðursýkiskast! Og dásamlega og dýra húfan min — hvað verður nú um okkur? Hvað verður nú um okkur? Ég heyrði einhvern ganga í átt til min, og nú fann ég allt i einu hve dimmt var orðið og hve ein- mana ég var, ég sem alltaf hafði haft Palla við hlið mér, stóra, góða, elsku P . . . . — Pía? Það var hann. Hjartað i mér barð- ist um. — Pía. Röddin var ósköp eymd- arleg. Þú . . . — Fór bíllinn svona fljótt? Rödd min var kaldari en sjórinn, sem skvampaði við bryggjuna. — Fjandinn hafi það! — En hve hún átti fallegan hund! sagði ég. Var það ekki Minou, sem hann hét? — Fjandinn hirði hann! — Hún var reglulega lagleg — daman, meina ég. Iivað sagðirðu að hún héti? — Pía! Hann öskraði næstum. Ég hef aldrei vitað það áður, að þú gætir verið svona illgjörn. Þú nýtur þess, að pína mig! — En þú? Ég stappaði niður fæt- inum. Það lield ég að þú hafir notið þess að burðast með þennan heimskulega hund hennar og tosk- urnar og allt dótið. Þú hefur von- andi haft hugsun á að fá heimilis- fangið hennar, svo að þú getir hitt hana aftur, einhvern tíma þegar þú ert laus við mig? En nú gat ég ekki meira. — Geturðu ekki hælt að tala um þessa manneskju! Það var eins og röddin brysti skyndilega — eins oð hún hefði verið klippt í sundur með skærum. Hann horfði ekki lengur á mig, en ég liorfði á liann. Svo rétti ég út höndina og stakk henni i vasa hans. — Það stóð einhver náungi á bið- stöðinni og beið eftir henni. Hún kallaði: Ástin mín! og kaslaði sér í faðm hans meðan ég stóð hjá og hélt á liundinum hennar. Svo tók hann liundinn af mér og fékk mer nokkrar krónur fyrir aðstoðina og bauð góða nótt! Hún sagði ekkert, hún hafði sjálfsagt gleymt þvi að ég var til. — Asni! hvíslaði ég af tilfinn- ingu. — Konur eins og hún eiga engan tilverurétt! sagði Palli borginmann- lega. — Alls ekkil Hann stóð þögull og starði í gegnum mig svo hitru augnaráði, að mér lá við gráti. — Henni fannst ég sjálfsagt hlægilegur . . . — En það varstu ekki. Það skaðar aldrei að vera kurteis! Þá birti yfir svip hans og hann þrýsti lófa minn I vasanum. — Þú ert að minnsta kosti ágæt, Pía-Mía! Þú skilur allt án allra málalenginga og uppistands! Þú — heyrðu, ef við lilaupum, náum við í bíó! Svo kyssti hann mig snöggt á nef- ið og enginn gat séð í myrkrinu hvernig ég roðnaði. En hann minnt- ist ekkert á húfuna, en það sýnir INNOXA INNOXA - SNYRTIVÖRUKYNNING VIKUNNAR. Vikunni er ánægja að kynna fyrir lesendum sínum samstarf við hið heimsþekkta snyrtivörufyrirtæki INNOxA, London og París. Vörukynning sem þessi er áður óþekkt hérlendis, en INNOXA hefur tekið upp slíka kynningu í mörgum löndum í samstarfi við þekkt tímarit og vikublöð. Útsölustaðir INNOXA snyrtivara eru: REGNBOGINN s.f., Bankastræti, Verzlunin STELLA, Bankastræti, SÁPUHÚSIÐ h.f., Austurstræti, Verzlunin OCULUS h.f., Austurstræti, Verzlunin EDDA, Keflavík, Verzlunin STRAUMUR, ísafirði, SILFURBÚÐIN, Vestmannaeyjum, APÓTEK NESKAUPSTAÐAR, Neskaupstað. Hér kynnir INNOXA tvær af vinsælustu og mest seldu andlitskrem- tegundum, en þær eru: INNOXA TENDER TOUCH MÓISTURISING CREAM og INNOXA CLEANSING CREAM. Kremin eru pökkuð í litlar umbúðir (15 gr.) og er verðíð mjög lágt þar sem þetta er gjört í kynningarskyni. Þær konur sem vilja notfæra sér þetta, meðan hið takmarkaða magn endist, geta fengið afhent tvær ofangreindar kremtegundir, gegn kr. 25,00 greiðslu og meðfylgjandi seðli í einhverjum eftirtöldum INNOXA-útsölustöðum eða með því að senda seðilinn í pósti til VIKUNNAR ásamt ofangreindri greiðslu og mun varan þá verða send yður í pósti. INNOXA . INNOXA . INNOXA . INNOXA . xn s Ph NAFN: ..................................... Heimili: ................................... Kaupst. eða sýsla: ........................ VIKAN - P. O. Box 149 - Reykjavík. INNOXA . INNOXA .INNOXA .INNOXA . 32 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.