Vikan


Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 34

Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 34
UMBODIÐ fl ISLANDI óshðr öllum íeseodum Vihunnar gleöilegror pdshahdtíðar Jafnframt viljum vér minna á aS SAAB er fáanlegur fyrir vorið í 6 litum með 3ja eða 4ra gíra alsamhæfSum gírkassa SAAB ER TRAUSTBYGGÐUR - NÆGIR VARAHLUTIR - GÓÐ VIÐGERÐAÞJÓNUSTA m SÖLUUMBOÐ Á ÍSAFIRÐI: ísak Jónsson SÖLUUMBOÐ Á AKUREYRI: Jóhannes Kristjánsson h.f. AÐALUMBOÐ: SVEINN BJÖRNSSON & CO. Garðastræti 35 - Sími 24204 - Box 1386 vega tvö viðbótareintök og koma svo . . . — Má ég þá biðja þig að koma með mér Völundur. Mér skilst að . . . — Ég verð að gera það. En komdu þá heldur fyrir hádegi. Ég fór aftur til fasteignasal- ans, eina, tvær, þrjár og í fjórðu ferð hafðist að hitta á hann. Ég sleppti allri kurteisi og sagði: — Það vantar fleiri eintök. Ég bíð á meðan. — Nú var ég orð- inn töff. Hann sá sína sæng út breidda og settist við ritvélina. Ég heyrði slag og slag öðru hvoru, síðan var allt þrifið úr ritvélinni og fleygt í ruslakörfuna. Byrjað á ný . . . plamp . . . plamp . . ., þetta voru fín kaup sem þú gerð- ir þarna . . . plamp . . . ha . . . plamp . . . síminn, réttu mér tólið . . . plamp . . . Já, við vor- um að auglýsa hana í dag, stór- kostlega glæsileg íbúð, teppi út í hvert horn og reifaraverð mundi ég segja, þvottahúsið alveg tipp topp og geymsla undir tröppun- um, ha . . . plamp . . . ha . . . Þér vilduð kannski líta á hana frú, . . . jæja, ætlið að tala við mann- inn yðar fyrst . . . plamp . . . allt í lagi, sælar. — Er þetta ekki að verða búið? Mér liggur pínulítið á . . . — Alveg að verða búið . . . plamp . . . plamp . . . vesgú, þar hefurðu það. Ég gat ekki farið daginn eftir, því óunnin verk höfðu hlaðizt upp hjá mér. En svo gerði ég hreint borð og fórnaði deginum þar á eftir. -— Völundur, jú heldurðu að þú vildir nú labba til fógetans með plaggið. Ég hitti þig bara þar . . . það á allt að vera klárt núna. Já, þakka þér fyrir. Það var alveg fullt hjá fóget- anum og ég tvísté og hafði ekki einu sinni eirð í mér að horfa niður í fangelsisgarðinn. —■ Austurbrún? . . . Þinglesn- ing já. Ég man eftir því, sagði afgreiðslumaðurinn og fór og sótti pappíra í vírkörfu. Aðeins eitt sem vantar til þess að hægt sé að afgreiða þetta. — Ha? — Jú, það verður að vera stimpill frá lóðarskrárritara á afsalinu. Þér skulið bara fara strax, hann ætti að vera við núna. Þá náið þér aftur fyrir hádegi. — Völundur Grímsson leit dá- lítið vorkunnsamlega á mig, en svo hló hann. — Ætlarðu að láta mig koma þriðju ferðina, spurði hann? ■—• Ég biðst afsökunar, en ég vissi þetta því miður ekki. Viltu ekki bara bíða hérna, ég skal vera fljótur. — Því miður, ég hef bara ekki tíma til þess. Hóaðu heldur í mig á morgun. Ég náði í lóðarskrárritara og fékk stimpilinn á afsalið eða var það skuldabréfið. Nei, andskot- inn, það var afsalið. Ég snar- stoppaði á miðri götu og reif allt upp úr vösum mínum. Kannski ég hafi nú látið hann stimpla vitlaust plagg. Nei, nei, þetta var rétt: Hér stóð skírum stöfum: Afsal. Ég hélt áfram að lagði plaggið inn hjá fógetanum. Það fór ekki nema hálfur dag- ur í þetta sinn. Daginn eftir vann ég fram að hádegi, en fór síðan til fógétans til að vita, hvort ekki væri allt klárt. Nú ætlaði ég ekki að ónáða Völund í Fjármála- ráðuneytinu fyrr en allt væri klappað og klárt. — Afsal já. Var það þinglesn- ing? — Já, þetta er víst fullnægj- andi, sagði ég hikandi. — Þetta er háð lögum um byggingasamvinnufélög, er ekki svo? — Ja, ætli það ekki. Ég er búinn að ganga í tvö. En ég hugs- aði með mér: Hver djöfullinn er nú á ferðinni — fleiri ferðir fer ég ekki. — Ja, það er venjan, að ein- hver skrifi uppá afsalið vegna Byggingasamvinnufélagsins. Það er víst reyndar skylda ... — Er það alveg víst? — Hann Jón hjá Byggingasam- vinnufélaginu skrifar upp á þetta í hvelli fyrir yður. — Olræt, ábyggilega ekkert fleira? — Ekki það ég sé . . . — Jæja þá Völundur, ég er búinn að fá Jón til að skrifa upp á afsalið hvað þá annað. Nú á allt að vera klárt. —■ Ég kem. Af hverjum keypt- urðu þarna í Austurbrún? — Geirmundi Pálssyni. — Og allt klárt frá hans hálfu? — Ja, ég veit það ekki. Það kom kökkur í hálsinn á mér. — Hvernig gæti það verið óklárt. Ég er bæði með kaupsamning og afsal . . . — Nei, það hlýtur að vera í lagi . . . Eða við skulum vona það . . . ■— Þá er þetta víst frágengið. Hér er Völundur með skulda- bréfið og hér er samningurinn, nei, afsalið með stimpli, nei, ég meinti uppáskrift fjármálaráðu- neytisins . . . — Fjármálaráðuneytisins, át afgreiðslumaðurinn eftir mér. Það var ekki Fjármálaráðuneyt- ið, sem átti að srkifa upp á þetta. Það var formaður byggingasam- vinnufélagsins ... — VIKAN 13. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.