Vikan


Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 23

Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 23
Marian gckk eftir stignum og geSshræring hennar óx með hverju spori. Sjávarniðurinn varð hærri, þegar hún nálgaðist brúna, og hún fann hvemig jörðin titraði undir fótum hennar. talinu lauk, vissi hún hvers vegna Paul hafði verið svona reiður og hvers vegna hann var núna svo auðmjúkur. Hún heyrði þegar Paul lagði á og þá gerði hún það sama eins hljóðlega og hún gat. Hún starði á örkina fyrir framan sig. Paul var í vandræðum — peninga- vandræðum. Hann skuldaði þess- um manni mikla peninga. Og Stroud, hver sem það nú var, vildi ekki bíða lengur. Paul hafði reynt að skýra út fyrir honum, að hann gæti borgað miklu meira, ef hann aðeins fengi dálítinn frest. En Stroud þekkti þess kon- ar undanbrögð. Samtalið endaði á því, að Paul sagðist mundi koma sjálfur á skrifstofuna og skýra þetta fyrir honum. Skýra hvað? Hvar hafði hann von um að fá svona mikla pen- inga? Tvö hundruð og fjörutíu þúsund krónur. Hann gat ekki leitað til hennar, þótt hún hefði viljað hjálpa honum, því að eign- in var ekki enn að fullu afhent henni. Það voru mörg smáatriði, sem enn var eftir að ganga frá. Lögfræðingurinn sagði henni, að þess háttar væri vant að taka töluverðan tíma. Það gerði ekk- ert til. Henni lá ekkert á. Bank- inn mundi láta hana fá það sem hún þyrfti á að halda, þar til búið vræi að ganga frá erfða- skránni. En hvað átti Paul við með því, að hann gæti borgað þetta bráðlega? Joe frændi hafði arfleitt hana að öllu, sem hann átti. Það var hálfóþægilegt. Ef til vill var þetta þvingaða andrúmsloft bara henn- ar eigin hugmyndaflug, því að enginn hefði getað boðið hana inr.ilegar velkomna en Florence frænka og Paul gerðu. En grun- urinn var innst í hugskoti hennar, og orsök hans var gjaf- mildi, en þó eigingirni Joe frænda. Hún hafði ákveðið að gefa Florence frænku húsið, þegar hún væri búin að fá umráðarétt yfir því, og hún ætlaði líka að hjálpa Paul. En það vissi hann ekki. Ef hann átti þessa peninga ekki núna, hvernig hafði hann hugs- að sér að útvega þá? Hver var þessi Stroud? Og hvernig hafði Paul farið að því að stonfa til svona stórrar skuldar? Var þetta einhver viðskiptaskuld? Hver var eiginlega atvinna Pauls? Það virtist sem hann kæmi og færi að eigin geðþótta, og oft var hann heima eða að aka bílnum. Hvað- an fékk hann peninga? Enginn hafði minnzt neitt á atvinnu hans. Henni hafði ekki dottið í hug að spyrja um það. Það kom henni ekki við. Eða skipti það hana kannski miklu? Bak við þessar hugleiðingar lá minningin um það sem komið hafði fyrir daginn áður. Hvers vegna hafði Paul verið svona áfram um að sýna henni humar- gildrurnar? Hvers vegna hafði hann ekki tekið eftir því, að reipið var fúið? Hvernig komst hann upp á bjargbrúnina? Það fór hrollur um Marian þótt hún sæti í sólskininu við glugg- an. Hún braut bréfið hægt sam- an og lagði það í skrifborðsskúff- una. Hún stóð á fætur þegar hún heyrði útidyrahurðina skella og opnaði dyrnar fram í forstofuna. Enginn var sjáanlegur, en hún heyrði fótatak úti á mölinni á stígnum. Hún gekk í gegnum for- stofuna og inn í borðstofuna. Gluggi hennar sneri út að inn- ganginum í húsið. Hún gekk inn og lokaði hurð- inni eftir sér. Bak við glugga- tjaldið sá hún Paul ganga inn í bílskúrinn. f gegnum opnar dyrn- ar sá hún litla bílinn, sem Paul átti, og hann virtist ósköp lítil- fjörlegur í samanburði við glans- andi gula bílinn, sem nú var í eigu hennar. Hann ók sínum bíl út og þaut síðan á fleygiferð niður inn- keyrsluna með þykkan rykmökk bak við sig. Hún sá hann beygja til hægri fyrir utan stóra járn- hliðið og aka svo í átt til bæjar- ins. Marian stóð litla stund og hugs- aði sig um áður en hún gekk út úr stofunni. Hún heyrði að vinnustúlkan var að ryksuga inni í setustof- unni, og rödd Florence frænku heyrðist úr eldhúsinu. Hún var að tala við Amy um hádegisverð- inn. Marian gekk hröðum og hljóðlausum skrefum upp á loft. Svefnherbergi Pauls lá fyrir enda gangsins. Hún gekk inn og lokaði hurðinni. Herbergið var vel búið húsgögnum og á því var stór gluggi. Henni fannst hún vera njósnari eða glæpamaður, en hún varð að vita eitthvað meira um Paul. Hún opnaði náttborðsskúffurn- ar, sem báðar voru tómar. Hún gekk að fataskápnum. Hann var of lítill fyrir hina mörgu fatnaði Pauls og herðatrjánum var þrýst þétt saman. Hún fór í vasana á fötunum. f vasa smokingsjakk- ans fann hún meðlimsskírteini að Casinoklúbbnum og saman- vöðlaðan happdrættismiða og í vasanum á sportjakkanum var hálfur sígarettupakki. Annað var þar ekki. Síðan rannsakaði hún snyrti- borðið. En þar var aðeins venju- lega hluti að finna, svo sem skyrtuhnappa, naglaþjöl, vasa- klúta, hárvatn og glas með asp- eríni. Þá var ekki annað eftir en háa kommóðan. Fjórir efstu skúffurn- ar voru fullar af fötum. Sú neðsta var þung, og þegar henni hafði tekizt að opna hana, sá hún hvernig stóð á því. Hún var troðin af gömlum blöðum. Það voru margir árgangar að sigl- ingatímaritum og veiðiblöðum og leiðbeiningar um, hvernig ætti að vinna í spilum, en það sem vakti athygli hennar voru forsíð- urnar, því að margar þeirra voru frá hestaúcappreiðum. Eins og meðlimsskírteinið að klúbbnum og happdrættismiðinn, sýndu þær, að Paul hafði áhuga á alls konar veðmálum og fjárhættu- spili. Marian settist á gólfið og fór að blaða í tímariti um kappreið- ar. Hún tók fljótlega eftir nafn- inu Wilson Stroud. Það var stór auglýsing: „Verið í reikning hjá Wilson Stroud“ stóð stórum stöf- um. „Viðstaddur allar kappreið- ar“. Hún fletti öðru blaði og rakst þar aftur á nafnið. „Látið Stroud sjá um veðmálin“. Þannig lá þá í því. Paul skuld- aði stórfé vegna veðreiða! Það var ekki undarlegt að hann kæm- ist í geðshræringu út af síðasta símtalinu. Hann vildi auðvitað fyrir alla muni halda þessu leyndu — en Stroud hafði hótað að láta til skarar skríða. Undir rólegu yfirborðinu var Paul á barmi örvæntingarinnar! Þegar hún lagði blöðin aftur á sinn stað, rakst hún á gamla vasabók, sem lá innst í skúffunni. Hún tók hana og fletti síðunum. Það var ekki skrifað neitt í hana, en gömul úrklippa úr dagblaði datt úr henni. Það var stutt til- kynning, þar sem þeir, sem far- izt höfðu í flugslysi, voru taldir upp, og í kringum eitt nafnið var dreginn hringur með grænu bleki. Framhald á bls. 44. VIKAN J3. tW, — 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.