Vikan


Vikan - 22.04.1964, Side 9

Vikan - 22.04.1964, Side 9
þessu, og þar var útkoman að meðal- tali 14,3 — og sá hæsti með 23 rétt svör. Hann á metið ennþá. Hópurinn í Háskólanum var að meðaltali með 13 rétt svör og þar var sá hæsti með 16 rétt. Einn bekkur í tækniskóla var með 11 svör rétt að meðaltali, og sá hæsti var með 15. Húsmóðirin, sem aðeins hefur gengið í barnaskóla, hafði 14 svör rétt, og 14 ára drengur með 15 rétt. Því miður — eða kannske sem betur fer — þá gátum við blaða- mennirnir á VIKUNNI ekki tekið þátt í þessu, vegna þess að við höfðum verkefnin til þýðingar og lagfæringar, og gafst því ekki tæki- færi til þess. Annars hefðum við vafalaust verið einhversstaðar á milli 20 og 30. Það finnst okkur að minnsta kosti. Súpermenn! En eitt er nauðsynlegt að taka fram, sem hefur töluverð áhrif á þessar útkomur, að smávægilegar villur voru á þrem stöðum í verk- efnunum, þegar þessar tilraunir voru gerðar. Þær gætu hafa gert það af verkum, að menn hefðu yfir- leitt haft þrjú svör rétt í viðbót. Samt reikna ég ekki með því, en mundi bæta einu réttu svari við að jafnaði. Þessar villur hafa nú verið leið- réttar, og ég vona að nú sé allt rétt. En hvað um það. Þessar tilraunir okkar sýna áþreifanlega, að mennt- un og skólalærdómur hefur ekki neina úrslitaþýðingu í sambandi við lausnirnar, svo að allir sæmilega skynsamir einstaklingar geta tekið þátt í að leysa þær og borið gáfur sínar saman við aðra. En ég aðvara ykkur. Þótt spurn- ingarnar séu 40 talsins, þá telst það semsagt til undantekninga að leysa helminginn af þeim. En ef . . . Ef einhver finnst, sem leysir 26 spurningar eða fleiri réttar, sem- sagt einstaklingur með „mjög góðu gáfnafari" skv. þessari prófun, þá förum við þess vinsamlega á leit við hann, að við fáum að vita um það. Við munum þá reyna að koma því til leiðar að hann (eða hún) verði prófaður meir og betur. Við munum mynda hann í bak og fyrir og, setja hann á opinberan sjení- lista VIKUNNAR. Hver veit nema einhversstaðar leynist einhver Ein- stein meðal okkar, og hafi það að aðalatvinnu að líma frímerki á um- slög allan daginn? Við mundum þá leggja til að hann yrði hækk- aður í tign og fengi að loka um- slögunum líka . . . I alvöru talað. Við höfum mik- Framliald á hls. 31. VIKflN prófaði skólanemend- ur. Meðalútkoman 12,83 atriði rétt aff 40 samsvara greindarvísitölu lOO (I meðali.) -£> Meðalgreindur chimpansi hefði svarað 3 spurn- ingum rétt og það samsvarar greindarvísitölu 40. Einstein er ta.linn hafa haft greindarvísitölu 180. Hann hefði með öðrum orðum svarað öllum þessum spurn- ingum rétt og hann hefði verið innan við hálftíma að svara þeim. [) Mismunur á gáfnafari þeirra skólanemenda, sem VIK- AN prófaði, virtist vera allmikill. Tveir svöruðu til dæmis aðeins 6 spurningum réttum, meðaltalsútkom- an af öllum var um 13 (greindarvísitala 100: meðal- lag) en nokkrir sköruðu framúr, stúlka á Laugarvatni með 19 svör og piltur í Menntaskólanum í Reykjavík með 23 svör rétt. Það samsvarar greindarvísitölu 130. lllllllllfiP Verður stökkbreyting á gáfnafari manna? Sjá grein í næstu opnu. A VIKAN 17. tbl. 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.