Vikan


Vikan - 22.04.1964, Side 28

Vikan - 22.04.1964, Side 28
DREYFUSARMALIfl Framhald af bls. 19. stuðning, og Brisson forsætisráð- herra varð að leita lengi fyrir sér áður en hann fann mann, sem reyndist tilleiðanlegur að taka við embætti hermálaráð- herrans. Það var Zurlinden hers- höfðingi, æðsti maður setuliðs- ins í París, en hann setti það skil- yrði, að hann fengi skjölin í Dreyfusarmálinu til athugunar áður en ákveðið væri að taka það til meðferðar á ný. Ekki leið á löngu áður en Zur- linden hershöfðingi lýsti yfir því, að nákvæm athugun hans á sönn- unargögnunum hefði fullvissað hann um sekt Dreyfusar. Meiri- hluti ríkisstjórnarinnar var því hins vegar svo fylgjandi að málið yrði tekið upp aftur að Zurlind- en tók aftur við embætti sínu sem yfirmaður setuliðsins í París — og Frakkland varð enn einu sinni hermálaráðherralaust. Zurlinden hafði vikið du Paty de Clam úr embætti, og einnig hafði hann séð svo um, að málið gegn Piquart yrði lagt fyrir her- dómstól. Hershöfðingjaklíkan hafði svarið að ganga á milli bols og höfuðs á honum, og innan skamms stóð hinn hugprúði of- ursti enn fyrir rétti. Endurskoðuninni jókst stöðugt fylgi, einnig hjá dagblöðunum, en „La Libre Parole“, og nokkur önnur héldu áfram Gyðingaof- sóknum sínum og birtu nýjar af- hjúpanir. Hvarvetna gætti stjórn- málalegrar óvissu og öngþveitis, orðrómur um uppreisnarundir- búning og byltingu komst á kreik og hernum var skipað að vera við öllu búinn. Esterhazy var flúinn til Englans, eftir sjálfs- morð Henrys, og ól nú brezk dagblöð á sífelldum æsifregnum og „afhjúpunum". Og þegar hann að lokum gekk svo langt að lýsa yfir því við eitt af blöðunum, að hann hefði sjálfur skrifað hið margumrædda „bordereau11, trúði honum enginn! Ekki var annað sýnna en að hið pólitíska öngþveiti mundi leiða algert stjórnleysi yfir Frakkland, og loks tók hæstirétt- ur rögg á sig þann 3. júní, 1899, ógilti dóminn yfir Dreyfusi og bauð að málið skyldi tekið upp aftur fyrir herrétti í Rennes. Tveim dögum síðar gekk yfir- fangavörðurinn inn í kofa Dreyf- usar á Djöflaey, og sýndi hon- um símskeyti: „Samkvæmt ákvörðun hæstaréttar er Dreyfus höfuðsmaður ekki lengur háður ákvæðum þeim, sem gilda um útlæga fanga . . . og hefur aftur leyfi til að bera einkennisbúning sinn . . . Varðhaldi hans er lok- ið og skal hann vera frjáls ferða sinna. Beitiskipið „Sfax“ lætur í haf frá Fort-de-France í dag til að sækja hann og flytja aftur heim til Frakklands". DÓMURINN í RENNES. „Sfax“ flutti Dreyfus aftur heim til Frakklands, þar sem hann var settur í herfangelsið 1 Rennes, en Mathieu bróðir hans sagði honum hvað gerzt hafði á undanfömum árum. Zola sneri heim aftur eftir ellefu mánaða útlegð á Englandi. Picquart var látinn laus og málsókn á hendur honum frestað um óákveðinn tíma. Dómararnir sjö, sem skipaðir voru í forsæti herréttarins í Rennes, voru einskonar samnefn- ari yfirmanna héraðsherfylkj- anna. Að vísu hefur hlutleysi þeirra verið dregið nokkuð í efa, af skiljanlegum ástæðum, en að öllum líkindum var þetta þó rétt- sýnasti og ábyrgasti dómstóllinn, sem herinn gat sett á stofn. Hlut- verk hans var þó engan veginn eins auðvelt og Dreyfus hafði gert sér í hugarlund, þegar hann las fagnaðarboðskapinn í sím- skeytinu á Djöflaey. Þegar deilt var um málið í þinginu, hafði því verið hreyft að Mercier hers- höfðingi, sem gegnt hafði em- bætti hermálaráðherra, þegar dómurinn yfir Dreyfusi var upp kveðinn, yrði tekinn höndum, og í rauninni höfðu blöð þjóðernis- sinna lög að mæla, þegar þau fullyrtu að dómararnir yrðu að velja á milli hans og Dreyfusar. Demange, sem áður hafði var- ið mál Dreyfusar, áleit, að Dreyf- us ætti að miða málsvörn sína að þessu sinni við það, að hann hefði verið dæmdur á röngum forsendum og byðist nú tækifæri til leiðréttingar á því. Hann hafði alltaf verið því mótfallinn að pólitík væri blandað í mál þetta. Labori, hinn skeleggi málafærslu- maður sem annazt hafði vörnina í máli Zola og Picquarts, vildi einnig fá að hafa með höndum vömina í máli Dreyfusar, en það var endurskoðunin, sem hann lagði fyrst og fremst áherzlu á, hann vildi byggja vömina á sið- gæðislegum kröfum, en ekki lúta svo lágt, að viðurkenna að um eiginlegt afbrotamál væri að ræða. Dreyfus-fjölskyldan tók að lokum þá ákvörðun að þeir skyldi báðir annast vörnina, en það sýndi sig að hún varð veik- ari fyrir bragðið. Samkvæmt herréttarvenjum hófust réttarhöldin klukkan sex að morgni, og augu allra við- staddra beindust að Dreyfusi, þegar hann var leiddur inn í dómsalinn. Þeir fáu þar, sem ver- ið höfðu viðstaddir brottrekstur hans úr hernum 1894,könnuðust við vélrænt göngulag hans og stjarfan hermannsbrag. Hann var nú 39 ára, en leit út sem gamalmenni, grár fyrir hærum, veikburða, og augun sljó bak við þykk og kúpt gleraugun. Hann vakti meðaumkun fyrst í stað, eða þangað til hann tók til máls. Hann gerði sér allt far um að beita kaldri skynsemi og rök- festu; það kom að vísu fyrir að gráthreim brá í röddina og að hann missti stjórn á tilfinningum sínum, en annars var rómur hans annarlega hlutlaus og kaldrana- lengur, rétt eins og málið snerti hann ekki neitt persónulega. HEFÐI HANN DÆMT SJÁLFAN SIG? Heraginn og virðingin fyrir yfirmönnunum var honum svo samgróið, að skelfingu brá í svip hans, þegar hann heyrði að Picqu- art, sem einungis var ofursti að tign, dirfðist andmæla herfor- ingjunum. Það var sagt um hann, að hann mundi hafa dæmt sjálf- an sig ef hann hefði setið í dóm- arsæti. Clemenceau lét einu sinni svo ummælt, að Dreyfus hefði sjálfur verið sá eini, sem ekkert skildi í gangi Dreyfusmálsins, og sjálfur sagði Dreyfus löngu síð- ar: ,,Ég var einungis stórskota- liðsforingi, stöðvaður á frama- braut minni fyrir hörmuleg mis- tök. Sá Dreyfus, sem gerður var að píslarvotti réttlætisins, var alls ekki ég —- það voruð þið, sem skópuð hann“. Og svo var Dreyfusmálið sett á svið öðru sinni, og áherzlan lögð á „bordereauið" og bréfið, sem þeir Henry og de Paty höfðu betrumbætt á glæpsamlegan hátt. Það varð undarleg leiksýning, sem þeir fáu útvöldu urðu þar vitni að bak við lokaðar dyr dómsalarins. Mercier hershöfð- ingi var aðalvitnið, og hann lagði allan sinn mikla persónuleik á metaskálarnar. Hann hagaði sér alls ekki sem vitni, heldur sem harðskeyttur saksóknari. Dómararnir litu á Mercier og herinn sem eitt og hið sama. Hann festi á þá hvöss augun á meðan hann gerði grein fyrir sök Dreyfusar og sekt. Hann lék hlut- verk hins gamla og reynda yfir- boðara, sem vill leiðbeina undir- mönnum sínum; malaðli fram- burð varnarvitnanna mjölinu smærra með nýjum sakargiftum, óljósum skýringum og gaf stöð- ENN EIN NÝJUNG «*flWk$JÖFN rrvi 4 Li ~L/ Ío'-J ^7 1 NÝJA REX SKIPAMÁLNINGIN ER AFBRAGÐS STERK OG ENDINGARGOÐ XTS ii 4ÖI □ REYNSLAN SANNAR GÆÐI REX VARANNA 1 2g — VIKAN 17. tbL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.