Vikan


Vikan - 22.04.1964, Page 44

Vikan - 22.04.1964, Page 44
U Itima Biðjið bólstrara yðar um aluilar- áklæði frá ÚLTÍMU Þér vitið ekki hversu falleg húsgögn þér eigið fyrr en þau hafa verið klædd með áklæði frá Ú LTÍM U vopnasérfræðingurinn hugsað sér að ég bæri hana? — Það eru til alveg sérstök hulst- ur, sagði major Boothroyd. — Það er auðveldast að hafa það við buxnastrenginn vinstra megin. En það er líka hægt að hafa það rétt undir höndunum. Hulstrið er úr stífu leðri. Og byssan liggur á gormi í því. Ég býst við að það sé fljót- legra að draga hana úr slíðrum heldur en þessa, sagði hann og benti á Berettuna á borðinu. — Þrír fimmtu úr sekúndu til þess að taka upp byssuna og hitta mann á tuttugu metra færi, er um það bil skikkanlegt. — Þá er það ákveðið. Rödd M gerði ekki ráð fyrir frekari mót- mælum. — Og hvað þá um eitt- hvað svolítið stærra? — Þá er aðeins ein byssa, sir, sagði major Boothroyd ákveðinn. — Smith & Wesson Centenneal Air- weight. Skammbyssa. Hlaupvídd .38. Það er enginn hamar í henni, svo að það er engin hætta á að hún festist í fötum. Lengd alls sex og hálf tomma og þyngdin er að- eins rúmlega hálft fjórða kíló. Til þess að halda þyngdinni niðri eru aðeins fimm skot í hleðslunni. En þegar að búið er að skjóta þeim öllum — og major Boothroyd leyfði sér að brosa þurrlega — hefur ein- hver verið drepinn. Skotin eru .38 S & W Special, alveg prýðileg skot. Skothraðinn er átta hundruð og sextíu fet á sekúndu og skotþung- inn er tvö hundruð og sextíu pund á fetið. Hér er um að ræða ýms- ar hlauplengdir, þrjár og hálfa tommu, fimm tommur . . . — Allt í lagi, allt í lagi. Ég treysti yður fullkomlega, sagði M. — Ef þér segið að þetta sé það bezta, þá trúi ég yður. Með öðrum orð- um, það er Walther og Smith & Wesson. Þér skuluð senda 007 eina af hvoru. Og komið því svo fyrir að hann geti æft sig með þeim. Byrjum í dag. Hann verður að vera orðinn útlærður eftir viku. Er þetta í lagi? Þá þakka ég yður kærlega fyrir, vopnasérfræðingur. Ég skal ekki tefja yður frekar. — Þakka yður fyrir, sir, sagði majór Boothroyd. Hann snerist á hæl og skálmaði út úr herberginu. Það var stundar þögn, slyddan glumdi enn sem fyrr á gluggunum. M sneri stólnum sínum og horfði út. Bond notaði tækifærið til að líta á úrið sitt. Klukkan var tíu. Hann renridi augunum til byssunnar og hulstursins á borðinu. Hann hugs- aði um fimmtán ára samveru sína með þessu Ijóta málmstykki. Hann mundi þá tíma, þegar eitt hljóð þessa hlutar hafði bjargað lífi hans — og einnig þegar það hafði ver- ið nóg að sýna það. Hann hugsaði um þá daga, þegar hann hafði ein- sett sér að drepa — þegar hann hafði tekið byssuna sundur og smurt hana og komið skotunum vandlega fyrir í magasíninu og hleypt einu sinni eða tvisvar af, jafnvel tæmt skothylkin í rúmdýnu í einhverju hótelherbergi einhvers staðar í heiminum. Svo var hann vanur að strjúka að lokum yfir hana með þurri tusku og stinga henni í hulstrið, stanza aðeins fyrir fram- an spegilinn til þess að ganga úr skugga um að það sæist ekki utan á honum að hann væri vopnaður. Svo hafði hann farið út af stað til þess stefnumóts sem batt enda á annað tveggja: Myrkur eða Ijós. Hve oft hafði hún bjargað lífi hans? Hve marga dauðadóma hafði hún uppkveðið? Bond fann til óskiljan- legs dapurleika. Hvernig var hægt að finna til vináttu við jafn líf- lausan hlut og meira að segja Ijót- an, og þar að auki vopn, sem að hvergi nærri komst í hóp þeirra sem að vopnasérfræðingar viður- kenndu? En þessi vinátta var fyrir hendi og M hafði bundið endi á hana. M sneri sér að honum aftur. — Mér þykir þetta leitt, James, sagði hann, en það var engin samúð í röddinni. — Ég veit hvað þú ert hrifinn af þessum járnklumpi. En hann verður að hverfa. Það á aldrei að gefa vopni annað tæki- færi — fremur en manni. Ég hefi TVÖ N Ý HEFTI Þriðja heftið af Nýjum danslagatextum var að koma út. í heftinu eru aðeins íslenzkir textar við öll nýjustu lögin. Beatles — mynda- og danslagatexta- heftið er fyrir nokkru komið út í því eru 23 textar við Beatleslög1 og 23 myndir af þessari heimsfrægu hljóm- sveit. Sendið kr. 25,00 fyrir hvoru hefti og þið fáið það sent um hæl burðargjalds- frítt. NÝIR DANSLAGATEXTAR PÓSTHÓLF 1208 — RVÍK. 44 — VIKAN 17. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.