Vikan - 22.04.1964, Blaðsíða 45
ekki efni á slíku. Mínir menn verða
að vera sómasamlega útbúnir. Skil-
urðu það? Byssan er mikilvægari
en hönd eða fótur í þínu starfi.
Bond brosti veiklulega. — Eg veit
það, sir. Eg skal ekki mæla á móti
því. Mér þykir aðeins fyrir því að
þurfa að skil|a við hana.
— Allt í lagi þá, við skulum ekki
tala meira um það. En ég hef svo-
lítið meira að segja þér. Það er
vinna framundan. A Jamaica. Það
er vandamál varðandi starfsfólk.
Eða þannig lítur það út. Bara þessi
ven|ulega eftirgrennslan og skýrsla.
Sólskinið kemur til með að gera
þér gott og þú getur æft þig með
nýju byssurnar á dúfunum eða hvað
það nú er, sem þeir skjóta þarna
ÞAÐ ER
SPARNAÐUR í
AÐ KAUPA GfNU
Öskadraumurinn
við heimasaum
Ómissandi fyrir allar konur,
sem sauma sjálfar.
Stærðir við allra hæfi.
Verð kr. 550.00
m/klæðningu kr. 700.00
Biðjið um ókeypis leiðarvísi
Fæst í Reykjavík hjá:
Dömu- & iierrflbóðinni
Laugavegi 55 og
6ÍÉ Narteinssyni
Garðastræti 11, simi 20672
suður frá. Ég hugsa að þú getir
notað þér svona hálfgildings frí.
Mundirðu vilja taka þetta starf að
þér?
Bond hugsaði: Hann er ennþá
sár út í mig vegna þessa síðasta
máls. Finnst að ég hafi svikið hann.
Treystir mér ekki fyrir neinu erfiðu.
Ætlar að sjá til. Jæja. Upphátt sagði
hánn: — Þetta lítur nú út fyrir að
vera mesta sældar líf, sir. Það ligg-
ur nú við að ég hafi fengið full-
mikið af því upp á síðkastið. En ef
þetta þarf að gerast . . . Ef þér
mælið svo fyrir, sir . . .
3. KAFLI - FRÍSTUNDAVINNA.
Það var tekið að rökkva. M
teygði fram höndina og kveikti á
borðlampanum með græna skerm-
inum. Gulur Ijósgeislinn í miðju
herberginu gerði það hlýlegra.
M ýtti þykku leyniskjalamöpp-
unnl yfir borðið. Nú fyrst tók Bond
eftir henni. Hann las það sem utan
á hana var letrað. Hvað hafði kom-
ið fyrir Strangways? Hver var True-
blood?
M þrýsti á hnapp. — Ég ætla
að ná í yfirmann starfsliðsins, sagði
hann. — Ég veit svona undan og
ofan af þessu máli, en hann getur
frætt okkur betur um það. Ég er
hræddur um að þetta sé heldur lítið
spennandi mál.
Yfirmaður starfsliðs kom inn.
Hann var á aldur við Bond, en hár
hans var orðið grátt fyrir tímann
af mikilli vinnu og ábyrgð. Aðeins
sterkar taugar hans og góð kímni-
gáfa höfðu bjargað honum frá því
að falla saman. Hann var bezti
vinur Bonds i aðalstöðvunum. Þeir
brostu hvor til annars.
— Komið þér með stól. Ég hef
látið 007 hafa Strangwaysmálið.
Ég verð að koma þessu á hreint
áður en við ráðum nýjan mann
þarna suður frá. A meðan getur
007 gegnt störfum Strangways
þar. Hann á að fara eftir viku.
Munduð þér vilja ganga frá þessu
við nýlendumálaráðuneytið og
landsstjórann? Og nú skulum við
fara aðeins yfir málið. Hann sneri
sér að Bond. — Ég held að þú
hafir þekkt Strangways, 007. Ég
sé hérna að þú hefur unnið með
honum í þessu fjársjóðsmáli fyrir
fimm árum. Hver er skoðun þín á
manninum?
— Þetta var ágætur maður, sir.
Kannske dálítið spenntur. En ég
mundi nú halda að hann hefði
stillzt dálítið núna. Fimm ár er
langur tími í hitabeltinu.
— Og aðstoðarstúlkan hans,
þessi Trueblood, Mary Trueblood.
Hafið þér nokkurn tíma hitt hana?
— Nei, sir.
— Hún fær nokkuð góðan vitnis-
burð sé ég er. Hún fær góð með-
mæli frá hernum. Lítur ágætlega
út ef dæma skal eftir myndum. Og
þar liggur kannske hundurinn graf-
inn. Myndirðu segja, að Strang-
ways hefði ve'rið svolítið upp á
kvenhöndina?
— Gæti skeð, sagði Bond var-
færinn, því að hann langaði ekki
til að segja neitt á móti Strang-
ways. — En hvað kom fyrir þau
sir?
— Það er það sem okkur lang-
ar að komast að, sagði M. — Þau
eru horfin, gufuð upp. Hurfu bæði
sama kvöldið fyrir um það bil þrem
vikum. Þegar að var komið, var hús
Strangways brunnið til grunna,
senditæki, bækur, möppur. Ekkert
eftir nema rústirnar. Stúlkan hefur
skilið allar eigur sinar eftir. Hún
hefur ekki tekið nema það sem
hún stóð í. Jafnvel vegabréfið henn-
ar var í herberginu. En það hefði
nú verið auðvelt fyrir Strangways
að búa til tvö vegabréf. Hann gaf
út vegabréf á þessum eyjum. Þau
geta hafa tekið hvaða flugvél sem
var — til Flórida eða Suður-Ameriku
eða einhverrar eyju á hans yfir-
ráðasvæði. Lögreglan er ennþá að
fara yfir farþegalistana. Það hefur
ekkert komið fram ennþá, en þau
geta alltaf hafa horfið i einn eða
tvo daga og komið svo fram þegar
þau voru tilbúin .Þau geta hafa
litað hár stúlkunnar o.s.frv. Það er
ekki mikið eftirlit á flugvöllum í
þessum hluta heimsins. Er það ekki
rétt, yfirmaður starfsliðs?
— Jú, sir. Yfirmaður starfsliðs
virtist eitthvað vantrúaður. — En
ég skil ekki ennþá með þetta síð-
asta skeytasamband. Hann sneri
sér að Bond. — Sko, það var haft
samband við þau eins og venjulega
klukkan 18,30 á staðar tíma. Ein-
hver, og stuttbylgjueftirlitið heldur
að það hafi verið stúlkan, tók á
móti kallmerkinu og svo var það
búið. Við reyndum að ná sambandi
aftur, en það var auðheyrilega eitt-
hvað að, svo að við hættum. Það
var ekkert svar við „bláa" kallinu
né heldur því „rauða". Daginn eftir
sendi deild III 258 frá Washington
til Jamaica. Þá hafði lögreglan tek,-
VIKAN 17. tbl. —