Vikan


Vikan - 27.08.1964, Page 15

Vikan - 27.08.1964, Page 15
ari verka. En Stiller gerði það sama og hann hafði gert í Ber- lín, hann æfði Gretu með leynd. Þegar hún kom til upptökunnar að morgni, hafði Stiller unnið með henni alla nóttina. í þessari fyrstu amerísku kvikmynd sinni, leikur Greta syngjandi, spánska bóndastúlku, sem verð- ur ástfangin af synin- um á stórum herra- garði. Hún eignast hann ekki. En hún fær tækifæri til að læra söng og verður heimsfræg óperusöng- kona, tilbeðin af karl- mönnum, meira að segja af siálfum Spán- arkonungi. Rík og fræg kemur hún aftur á óðalssetrið, en móð- ir piltsins gætir son- arins eins og dreki. Hún eyðileggur ham- ingju þeirra, og ó- perusöngkonan fer. Hún heldur áfram á frægðarbraut sinni, dáð en óhamingjusöm. Allir Norðurlanda- búar f Hollywood, en þeir voru fjölmargir, urðu vonsviknir af þessari mynd. Þessi hræðilegi söguþráður álitu þeir að mundi eyðileggja Garbo. Stiller fékk æðiskast og hót- aði að sprengja Metro í loft upp. Greta grét bara og vildi fara aftur heim til Stokkhólms. Öllum til undrunar varð myndin mjög vinsæl. Gagnrýnendur lofsungu Garbo, og fólk tal- aði um sérkennilega fegurð hennnar. Talað var um bogadregnar augabrúnir hennar, stoltan höfuðburð og að hún væri hrífandi í ástarsenunum, sorg hennar og geðshræring væri sönn á tjaldinu. Hið fræga ameríska blað, Varity, skrifar með bandarískri hreinskilni: Louis Meyer, sem nú hefur tekið við þessari stjörnu, getur óskað sjálfum sér til hamingju. Meyer reyndi allt sem hann gat. Hann vildi binda Gretu með margra ára samningi, en hún sýndi allt í einu engan áhuga. Kvikmyndakonungurinn sendi þá boð eftir henni inn í hið allra heilagasta, skrifstofu sína, þar sem gólfið var þakið hvítum teppum og allir vegg- ir gerðir úr spegli, en þar speglaði hann sig til að sjá hvort hann hefði stækkað síðan síð- asti stjórnarfundur var haldinn. Hann tók af sér gullspangargleraugun og leit föðurlegum augum á Gretu og framkoma hans var í alla staði óaðfinnanleg — annars var hann vanur að leggja samninginn þannig, að stjörnunni var nauðugur sá kostur að setjast í fang hans, ef hún vildi undirrita samninginn. En Greta hristi bara höfuðið við öllum skjölunum og taut- aði: — Ég held ég verði bara að fara heim. Meyer var ekki svo skyni skroppinn, að hann sæi ekki brátt hvað var að. Það var Stiller. Væri Stiller látinn stjórna næstu mynd Garbo, mundi hún eflaust fáanleg til að vera kyrr. „Tælidrósin" var engin fyrirmyndar kona. Hún lifði og elskaði i S.-Ameríku, hún var falleg og vond. En þá hittir hún mann, sem kemur hjarta hennar til að slá hraðar. Hann yfirgefur hana, og hún heldur áfram einmanalegu og villtu líferni slnu — efnisþráðurinn er ekki ósvipaður fyrstu kvikmynd hennar í Ameríku, og eins og hún, vakti hún mikla hrifningu. Með henni átti að fylgja sigrinum eftir, en Stiller brann af vinnugleði og lét ekki ómerkilegt efni myndarinnar hræða sig. Hann ætlaði að sýna Ameríkumönnum hvers hann væri megnugur og var nú feginn því, að hætta að pukrast við að æfa Gretu. En Stiller hafði alveg sérstakar vinnuaðferðir. Hann fylgdi ekki handritinu, því að hann sá fyrir sér, hvernig setja átti myndirnar saman. En þegar upptaka dagsins var sýnd for- stjórunum og Louis B. Meyer, gátu þeir ekki fundið neitt samhengi í myndinni. Á vinnu- stað fór líka allt ( háa loft. Stiller var enn sá sami og hann hafði verið í Svíþjóð, stundum eins og öskrandi Ijón, en aðra stundina blíður og vingjarnlegur. Allt fólkið, sem þaut fram og aftur í upptökusalnum, þreytti hann, en í Hollywood ríkti þá ofskipulagning. Það eina, sem ég þarfnast er myndatökumaður, leikararnir mínir og nokkrir verkamenn, öskraði Stiller og kom sér þannig í ónáð hjá starfsfólkinu, sem hann hefði átta að geta náð á sitt -O- Grcta Garbo, 20 ára gömul, og John Gilbert, 26 ára, að leika í fyrstu mynd sinni saman. Gilbert var þá frægur og dáður leikari, en Greta Garbo vakti bæði aðdáun hans og virðingu. Greta Garbo og Mauritz Stiller áttu margar glaðar stundir mcð vinum sínum, þeim Karin Mo lander og Lars Hanson, í Amcríku. Clarencc Brown kennir Gretu að tala f hljóðnema við töku myndar- innar „Anna Christie". Það var fyrsta hljómmyndin, sem Greta lék f, og djúp og hreimfögur rödd hennar vakti mikla hrifningu. -O band. Þar sem hann talaði enga ensku og gaf sér ekki tíma til að nota túlk, varð oft úr mik- ill misskilningur. Þegar hann vildi fá lófaklapp, skipaði hann „Explode!" og allir voru að springa af hlátri. Risinn frá Sví- þjóð var dvergunum í Hollywood mikið aðhlátursefni. Svo barst símskeyti. Eldri systir Gretu var dáin úr berkl- um. Stiller hætti myndatökunni og sendi starfsfólkið heim. For- stjórar Metro gátu ekki sætt sig við að farið væri svo ógætilega með peninga fyrirtækisins ein- göngu af tilfinningaástæðum. Stiller var ómögulegur maður. Honum var bolað frá og við tók annar leikstjóri. Á frumsýn- ingu skammaði Stiller einn af fremstu mönnum Metro og sagði að þeir hefðu eyðilagt Garbo hans og sett hana í lélega um- gjörð. En Ameríkumenn voru ekki á sama máli. Eitt áhrifa- mesta dagblað heimsins, New York Times, kallaði kvikmynd- ina listaverk og titlaði Garbo prinsessu Hollywood. Áhorfend- ur stóðu í margföldum biðröðum. I Garbo þóttust þeir sjá sann- leikann. Greta sýndi ekki bara sjálfa sig eins og hinar stjörn- urnar, hún sýndi sjálfa ástina. Það var eins og að sjá álft á gruggugu vat i, skrifaði einhver. Nú ætlaði Louis B. Meyer að tefla henni fram á aðalvíglín- Framhald á bls. 37. VIKAN 35. tbl. — Jg

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.