Vikan


Vikan - 27.08.1964, Síða 33

Vikan - 27.08.1964, Síða 33
drepið kjölturakkann sinn í votta viðurvist — hann á tæplega völ fleiri kosta þann daginn. Ég vissi af insæi mínu, að konan hafði hrokkið í baklás og var læst eins og klósettdyrnar. Þessvegna kom mér það ekkert á óvart, þegar ég heyrði hana ganga fram skömmu síðar og loka útidyrun- um á eftir sér. Hælarnir pjökk- uðu hátt á gangstéttinni. Það hlægði mig pínulítið, að það lét ívið hærra í öðrum þeirra. Að því búnu féll ég í öngvit í blóði mínu á klósettinu. Ég vakna við það, að maðurinn er að þvo mér um hausinn undir bað- krananum. Ég hef ekki séð mitt eigið blóð fyrr. Það rennur upp fyrir mér sannleikur, sem mér hefur verið dulinn hingað til: að hundsblóð og mannsblóð — það er næstum sama blóðið. Hús- bóndinn þuklar mig allan, og ég læt aðra framlöppina hanga, þó ég viti reyndar að ég er ekki fót- brotinn. Hann rífur handklæðið í lengjur og vefur þeim um löpp- ina, og ég kveinka mér mátulega. Hann hefur mjúkar hendur; og þó hreyfingar hans séu ómark- vísar, þá tekst honum þetta býsna vel. Hann er þögull. Hann er alveg þögull. Ég skynja, að við erum aftur sáttir; og mér líð- ur vel, þó ég hafi misst dálítið blóð. Hann klappar mér á belg- inn, kallar mig vininn sinn góða og eina, og er fínn náungi í van- sælu sinni. Það dettur dropi oná trýnið á mér. Ég kasta mér öllum til og næ að sleikja á honum kinnina — í annað sinn á þess- um viðburðaríka degi. Tungu- broddurinn skrikar niður í annað munnvikið á honum. Mér geðjast betur að málningarbragðinu en mig varði. Hann ber mig varlega inn í stofuna, hagræðir mér á gæru- skinninu og lætur vel að mér. Það dettur annar dropi oná trýn- ið á mér. Ég sleiki hann upp í mig, og hann er saltur og góður. Ég loka augunum undir hendi húsbóndans. Litlu síðar heyri ég, að hann er farinn að bardúsa í geymslunni. ★ EINS OG VENJULEGT SVEITABALL Framhald af bls. 5. Lögregluþjónarnir, sem þarna voru, hafa ábyggilega aukið hróð- ur stéttar sinnar meðal unga fólksins. Þeir gengu um tveir og tveir og skiptu sér ekki af, þótt menn syngju bæði hátt og fyrir utan laglínuna. Þeir hafa sjálf- sagt verið í Lögreglukórnum og öllu vanir í þeim efnum. En kæmu upp deilur og þras, lögðu þeir ætíð gott til málanna og spöruðu mörgum glóðaraugu og kjálkabrot með lipurð sinni. Und- ir lokin voru þeir orðnir allsherj- arpabbar þarna í Þórsmörk, og unglingarnir víluðu ekki fyrir sér að leita til þeirra með vand- ræði sín. Það var gaman að horfa yfir flötina, um það bil er dansinum lauk. Kringum pallinn, þar sem Sóló sextett lék, var allstór hóp- ur dansandi manna og kvenna. Þar fyrir utan sótu þeir, sem þreyttir voru, og eins þeir sem höfðu tekið ástfóstri við flösk- una. Síðan tók við hið svokall- aða ástalífsbelti, þar sem hægt var að sitja með einhverri af ís- landsdætrum og ræða um sam- vinnu á breiðum grundvelli. Já, í landslagi sem þessu, er bókstaflega ekki hægt að komast hjá að hugsa um hitt kynið, og jafnvel þeir, sem einir voru og yfirgefnir, gengu raulandi með flöskur sínar um Mörkina: Ég á skógargötu geng greini óm af hvíslum. Leggur Amor ör á streng undir birkihríslum. Hljómsveitin lék til kl. 3. Þá var komið rökkur í skóginum og maður sá pörin úr dansinum læðast eitt og eitt í burtu til að fá sér frískt loft undir svefn- inn. Ég hef aldrei vitað neitt myrkur jafn titrandi af spennu og lifandi og myrkrið í Þórsmörk. Þar blandast saman söngur og mannamál, hrotur og hvíslingar, enginn sést en allt heyrist. Þær líða líka einum og fljótt, næturn- ar þarna upp frá, og eru líklega alltof stuttar. A.m.k. neyddust margir til að framlengja þær fram á hádegi á sunnudag. Þá sá maður hinar reisulegu og áferðarfallegu drottningar kvöldsins, skríða úfnar og bældar úr einhverju tjaldinu á leið í vatnsbólið, til að koma lagi á út- lit sitt og veiðarfæri. Hinar, sem birtust glaðvakandi og vel til hafðar, þegar klukkan tíu á sunnudagsmorgni, svo að segja ferskar úr pokanum, voru litnar með virðingu, þegar þær gengju til fjalla, eða að einhverju hinna nýreistu náðhúsa Merkurinnar. Timbraðir strákar litu öfúnd- araugum á þá fjöldamörgu, sem höfðu heilsu til að setjast á ein- hvern sólskinsblettinn og taka lagið. En aðrir höfðu útbúið sig þannig í ferðina, að þeir þurftu ekki að verða timbraðir, eins og t.d. sjómennirnir tveir, sem voru nokkuð við aldur og skál og sungu miður skærum rómi: Nætursvallið næstum tók níu fulla koníaksfleyga. Eru nú flestir aldir á kók, en afréttir þeir sem betur mega. Vatn er nauðsynlegt lífi á jörð- inni, og þess vegna er beygluð járnpípa í Þórsmörk líka nauð- synleg lífi þar, því úr henni kem- ur vatn. Þangað leituðu þeir, sem hugðu til þvotta og matargerðar. Það var líf í tuskunum kringum rörið, og gamansamar upphróp- anir heyrðust oft. Ein algeng upp- hrópun var þó svo ný í þéssum Heildsolubirgdir ! O. JOHNSON & KAABER hf Loksins komid! OMEGfl úrin heimsfrægu ávallt í fjölbreyttu úrvali Kornelíus Jónsson ÚRA- OG SKARTGRIPAVERZLUN Skólavörðustíg 8 — Sími 18588 VIKAN 35. tbl. — gg

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.