Vikan


Vikan - 27.08.1964, Page 36

Vikan - 27.08.1964, Page 36
bólgunnar, komumst við að þeirri hryggilegu staðreynd, að allir gosdrykkir, sem nothæfir eru í bland, voru þrotnir. Svo við lögð- um leið okkar vestur í Húsadal á ný, þangað sem kynlegasti verzlunarstaður sunnan 64. gráðu norðlægrar breiddar hafði að- setur sitt, því þar var enginn drykkur seldur nema til blönd- unar. Þar gat maður rétt af- greiðslufólkinu ókrumpaðan 25 krónu seðil í því augnamiði að kaupa gosflösku á 15 krónur, og fengið flöskuna og krumpaðan 25 krónu seðil til baka. Sunnudagskvöldið var með öllu minni tilbrigðum en laugardags- kvöldið, enda voru drykkjarföng þá af skomum skammti og setið um hvern deigan dropa. Mann- skapurinn söng mikið og trallaði, og Úlfar Jacobsen var þá orðinn svo rámur, er hann stjórnaði fjöldasöng, að jötunninn við Lómagnúp hefur líklegast ekki verið kominn í mútur saman- borið við Úlfar. Úlfar var samt ekkert feiminn við að kyrja roll- una um McDonald gamla, þenn- an sem átti búgarðinn, og þótt Katla hefði byrjað að gjósa á meðan hefði enginn tekið eftir henni. Það er ekki að spyrja að ást- inni í Þórsmörk, frekar en ann- arsstaðar, þar sem unga fólkið er. Þegar líða tók á dansinn, röltu þau yngstu grútsyf juð og útkeyrð heim í tjald, en eldri strákarnir voru staðráðnir í því að þrauka, þar til öll tækifæri um lifandi hitunartæki í tjöldin væru lið- f in. Þess vegna þurftu stúlkur ekki að biðja um heimfylgd, held- ur að ákveða hver hlyti hnossið. Svo voru aðrar, sem gengu tvær og tvær og sögðust þekkja ís- lenzka riddaramennsku of vel, en strákarnir bentu þeim hlýlega á að vera ekki með neina „stæla“! Það væri synd að segja, að þetta væri ekki heilbrigt, og það verða ekki fá bros í framtíðinni (það er ekki verkakvennafélagið Framtíðin, sem átt er við), sem fylgja setningunni: Manstu í Þórsmörk ‘64? Ég veit ekki, hvort ljósmynd- arinn hefur syndgað í Þórsmörk, en hann hlaut reiði guðs og þar með snert af lungnabólgu, þegar hann var að ganga kring- um ímyndaðan einiberjarunn snemma á mánudagsmorgni. Ég vaknaði aftur á móti laus við skaðlegar bólgur, að bak- vöðvabólgu undanskilinni, um hádegi á mánudag. Það var rigning og dimmt yfir, og fólk gerði allt í senn, að klæða sig, éta, taka inn höfuðverkjatöflur, snyrta sig, og fella tjöld. Margt var týnt, og margt var í ólagi, þennan rigningardag. Tveir svall- bræður stóðu skjálfandi og hjart- veikir hjá lögregluþjóni og spurðu hann, hvernig að þeir gætu fundið tjaldið sitt. Þeir voru nefnilega búnir að gleyma

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.