Vikan - 27.08.1964, Side 39
kostlegur, að allt féll í Ijúfa löð.
Garbo fékk nýjan samning, sem
tryggði henni 260.000 dollara á
ári.
Hún hélt áfram samleik sínum
við John Gilbert og lék næst í mynd
eftir sögunni „Anna Karenina" eftir
Tolstoj. Stiller fékk heldur ekki að
stjórna þeirri mynd, en hann gerði
tvær myndir fyrir keppinauta Metro.
Þær misheppnuðust báðar. Hann
var þreyttur og vonsvikinn og fór
upp úr þessu heim. — Við sjáumst
aftur! hrópuðu Greta og Victor Sjö-
ström á stöðinni í Los Angeles.
Eftir heimkomuna leitaði Stiller
heldur ekki læknis. Hann gekk í
nudd, sem aðeins gerði illt verra.
Hann var með vatn í lungunum.
Þegar veikin var komin á hátt stig,
var hann lagður inn á Rauða Kross
sjúkrahúsið. Þar var hann skorinn
upp mörgum sinnum og þrettán rif-
bein voru fjarlægð. En fleiri upp-
skurði treystu læknarnir sér ekki til
að framkvæma.
Hann var enn á sjúkrahúsinu,
þegar Victor Sjöström kom til Stokk-
hólms. Hann grét, þegar Victor
Sjöström kom inn til hans, en herti
sig upp þegar hann vissi um heim-
sóknina og hafði fengið leyfi lækn-
anna til að taka á móti gestinum
með þeirri reisn, sem hann var van-
ur. Hurðin opnaðist og inn kom
hjúkrunarkona með flösku af
kampavíni.
Daginn eftir dó hann. Hann varð
aðeins 45 ára gamall.
Við gröf hans talaði gyðinga-
prestur og sagði: — Ég þekkti hann
ekki ... en ég þekkti þann flokk
manna, sem hann fyllti. Eldsálirnar,
sem fuðra upp við að gera drauma
sína að veruleika.
Garbo var einmitt að leika í ást-
arsenu þegar hún fékk símskeytið
um dauða Moje. Hún gekk út úr
salnum, hallaði sér upp að vegg
og þrýsti höndunum að augunum.
Nærstaddir héldu að líða mundi
yflr hana. Svo gekk hún aftur inn
og hélt áfram að leika.
FÖLK FER NESTAÐ I
HEIMSÖKNIR
Framhald af bls. 27.
fyrir iðnaðar- og verkamenn til
dæmis að svíkja undan skatti. Það
er helzt að þeir sem starfa eitt-
hvað sjálfstætt og ganga með skrif-
stofuna uppá vasann, reyni eitthvað
sllkt. En það er tekið mjög strangt
á því, ef upp kemst.
— Hvernig ertu sett, ef veikindi
eða langvarandi heilsuleysi ber að
höndum í fjölskyldunni og fyrir-
vinnan bregzt? Ertu þá á vonarvöl,
eða þarftu ekki að hafa áhyggjur af
fjárhagslegu hruni, sem af því gæti
leitt?
— Ef maðurinn minn veikist, þá
er hann kauplaus ( þrjá daga, en
síðan fær hann 25 krónur á dag
frá sjúkrasamlaginu og 5 krónur
frá vinnuveitanda (250 krónur (s-
lenzkar). Þessar tekjur eru skatt-
frjálsar. Maður lifir á 30 krónum
Karlmannafötin
frá okkur
Stærsta og
glæsilegasta
úrvalið
Nýjustu efnin
Nýjustu sniðin
VIKAN 35. tbl.
39