Vikan


Vikan - 10.09.1964, Side 13

Vikan - 10.09.1964, Side 13
Smásaga efftir PETER DE VRIES Peter de Vries er fæddur í Chicago árið 1910, en sneri sér að blaðamennsku árið 1931, að foknu háskóiaprófi. Hann tók að skrifa smásögur nokkrum árum síðar, og birtist fyrsta saga hans, Eine Kleine Nact, árið 1935. Hann varð þó ekki frægur fyrir þá sögu, heldur þá, sem hér birtist, og kom fyrst út í The Story Magazine sama ár, 1935. Þessi saga heitir á frummálinU American Primi- tive. De Vries hefur einnig skrifað átta stór- ar skáldsögur, og eru þessar kunnastar af þeim: The Tunnel of Love, Comfort Me With Apples, og The Tents of Wickedness. Gert hefur verið leikhúsverk eftir The Tunnel of Love, og var það sýnt við mjög góða aðsókn á Broadway. Svo þac5 er of seint, þótt einhver annar sjói þær núna. KomiS nú, sagði hún og opnaði búðardyrnar. — Það er nógur tími. Hann horfði á stúlkuna og hugsaði. Hvers vegna hafði Ganse- voort ekki minnzt á þetta í gærkvöldi? Svo mundi hann eftir þv[, hve mikinn áhuga Gansvoort hafði á því að uppgötva nýja snillinga, og hve hann var var um sig, ef hann hélt að ein- hver myndi vilja taka fram fyrir hendurnar á honum á því sviði. — Það er hérna, sagði stúlkan, og leiddi hann að hringborði [ miðri búðinni, þar sem, ásamt krukkum með súrsuðu grænmeti, stóðu nokkur málverk. Þetta voru litlar myndir, eins og allar hinar, og allar af hús- dýrum. Bannister gat ekki varizt því að brosa að einni þeirra. Það var sótrauður hestur, standandi við jötu, í gulum geisla frá olíulukt. Hesturinn var tvíátta á svipinn, eins og hann hefði óvænt verið vakinn af værum blundi. Bannister virti myndirnar fyrir sér um stund. Þær voru tvimælalaust betri en þær, sem hann hafði séð heima í dagstofunni. Tveir dollarar, stóð á verðmiðanum — dollar fyrir rammann, gat hann sér til. — Ég ætla að fá þessa, sagði hann kæruleysislega, og benti á þann sótrauða. Kaup- maðurinn, sem stóð við peningakassann og stangaði úr tönnum sér með eldspýtu, reyndi ekki að leyna undrun sinni. — Þetta er Charles Pratt Bannister, listagagnrýnandi frá New York, útskýrði stúlkan, en Bannister lagði höndina á öxl hennar. — Nei, sagði hann. — Ekki þetta. Mér þykir bara gaman að þess- ari mynd. Þér skuluð ekki leggja mikið upp úr því. Svo borgaði hann myndina, og, af einhverri ástæðu, sem hann gat aldrei út- skýrt, keypti hann ennfremur krukku af súrsuðu grænmeti. Kaupmaðurinn spurði, hvort hann ætti að „pakka myndinni inn, eða hvað?" en stúlkan tók myndina af honum og setti hana aftur á borðið, um leið og hún minnti Bannister á, að hann hefði ætlað að verzla fleira, og sagði að svo gæti hann skroppið með henni heim og hitt föður hennar. — Settu bara miða á mynd- ina og skrifaðu á hann „seld". Faðir hennar sat úti á svölunum og sneri andlitinu að sólinni. Hann var vandræðalegur á svipinn. Hann var í gömlum, gráum gallabuxum og himinblárri vinnuskyrtu, opinni í hálsmálið. — Þetta er Charles Pratt Bannister, sagði stúlkan. — Hann var einmitt að kaupa eina af myndunum þínum. Bigelow hallaði sér áfram og rétti fram höndina. — Það var gaman að heyra, sagði hann. — Og mér er sönn ánægja að kynn- ast yður, Mr. Bannister. Ég hef hlakkað til þess. Stúlkan kom með stól handa Bannister. — Nú skal ég lofa ykkur að vera í friði, sagði hún og hvarf. — Ég hef hlakkað til að hitta yður, síðan Susan sagði mér fyrst frá yður, að þér væruð gagnrýnandi og allt það, þótt ég hafi náttúrlega ekkert vit á þessum hlutum. Bigelow hallaði stólnum sínum aftur og setti upp svip þess manns, sem verið er að hafa blaðaviðtal við, og Bannister flaug í hug, að kannski væri hann fastari [ gildrunni en hann hafði búizt við. — Ég veit ekkert um þessa hluti, endurtok Bigelow, — ég mála bara eftir augunum. Þegar Bannister sagði ekkert, hélt hann áfram. - Eins og við segjum að fólk spili eftir eyranu. Þannig mála ég .Það hefur eng- inn kennt mér neitt. Eg mála af því ég hef ánægju af því, eins °g Grandma Moses, og ég mála það sem ég sé hérna inni. Hann bankaði á kollinn á sér með einum fingri. — Aiveg eins og hún. Ég hef alltaf malað bara af því að ég hef gaman af því, og ef einhver annar hefur gaman af því líka, sérstaklega einhver, sem vit hefur á, þá hef ég ennþá meira gaman af þv[. Ég mála beint. Sko, ég set upp trönurnar mínar og tek . . . Bannister hafði einhverra hluta vegna búizt við, að hann hefði sterkari rödd og hærri, ef tii viil vegna þess, að útlit og klæða- burður Bigelows gaf til kynna að hann væri af sérstakri gerð amerískra bænda, þótt Bigelow væri ekki tannlaus, eins og gerð- ist um þá manngerð. Bannister bjóst við, að Bigelow myndi þá °9 þegar spyta um tönn út yfir limgerðið. En hann gerði það ekki. Ég skal sýna yður meira eftir mig, sagði hann og skálm- aði í áttina að lítilli hlöðu. Það voru staflar af málverkum, stand- andi upp við veggina og í kös á borði á miðju gólfi. — Ég var Framihald á bls. 43. V_______*____________:____________________y VIKAN 37. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.