Vikan


Vikan - 10.09.1964, Side 44

Vikan - 10.09.1964, Side 44
TDEII EDflDP I nELLCDUnu ÞEGAR UM HJÓLBARIA ER AD R/EBA TRELLEBORG HJÓLBARÐAR ÝMSAR GERÐIR Söluumboð: HRAUNHOLT VIÐ MIKLATORC GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F. heyra, að hann væri að drekka. — Það er frumstætt nóttúrubarn ó eftir hverjum plógi, eða á hverjum bak- dyratröppum . . . — Mér var sagt, að einhver mál- ari hefði keypt eitthvað af þessu dóti. Ég var að velta því fyrir mér, hver það gæti hafa verið. Bannist- er velti símaþræðinum milli fingr- anna. — Og ætli það hafi ekki verið náunginn, sem á heima hérna skammt frá. Eitt náttúrubarnið enn. Þetta er að verða stórbíssnis, að vera náttúrubarn. Ég er dauðþreytt- ur á þvi. Ég er þreyttur á öllum þessum gulu akramálverkum. Ég er dauðþreyttur á þessum fallegu snjósköflum að vetrarlagi. Þetta eru miðstéttaakrar og miðstéttasnjór. Það er eins og enginn geti lengur haft ofan af fyrir sér með því að mála, ef hann hefur lært það. Gansevoort var áreiðanlega ekki allsgáður. Bannister tæmdi úr glasinu sínu, svo fór hann að setja niður í tösk- urnar. Síminn hringdi þrisvar á tíu mínútum, en hann anzaði ekki. Hann leit þétt til dyra, eins og hann ætti von á því, að eitthvert óargardýr kæmi þjótandi inn, eða flóðbylgja skylli á hurðinni. Hann skildi eftir miða handa mjólkurpóstinum, þess efnis, að hann þyrfti ekki meiri mjólk, slökkti öll Ijós, læsti dyrunum og setti lykilinn á naglann, eins og hann hafði talað um við eig- andann. Svo settist hann upp í bíl- inn sinn og ók heim til New York. Hann var tvær og hálfa klukku- stund á leiðinni. Það var mettími. FULLKOMINN GLÆPUR Framhald af bls. 37. ar í dimmustu skotin til þess að sjást ekki, og það er vissulega erfitt að skilja hvernig slíkar kon- ur, gamlar og örvasa eins og þær eru, hugsa sér ennþá að finna við- skiptavini. Rigamonti, samt sem áður, án þess að vera búinn að sjá hana almennilega, spurði hana, á sinn venjulega ófeimna hátt: „Fröken, voruð þér að bíða eftir okkur?" — og hún svaraði á jafn frjálslegan hátt: ,.Já, auðvitað." Svo sá hann hana greinilegar og skildi mistök sín. Hann hörfaði skref aftur á bak og sagði hikandi: ,,Nú jæja, mér þykir það leitt, ég er hræddur um að ég geti ekki í kvöld . . . en hérna er vinur minn." Svo tók hann hliðarstökk og hvarf niður upphleðsluna. Ég gerði ráð fyrir, að Rigamonti hafi haldið, að ég ætlaði að hefna mín á honum með því að kynna hann fyrir skrímsli eins og þessu, eftir allar þessar laglegu stúlkur, og ég gerði mér líka grein fyrir, að minn full- komni glæpur hafði þar með gufað upp. Ég stóð og horfði á konuna, sem sagði við mig, aumingja mann- eskjan, með brosi, sem líktist einna helzt grettu á grímuballsgrímu: „Jæja, sæti, Ijóshærði, viltu gefa mér sígarettu?" og mér þótti fyrir því, hennar vegna og sjálfs mín, og jafnvel vegna Rigamonti. Ég hafði hatað svo ákaflega, og núna hafði einhver eða eitthvað sópað hatri mínu burt, tár komu í augu mín og ég skynjaði það, þökk sé þessarri konu, að mér hafði verið bjargað frá því að verða morðingi. „Ég hef ekki sígarettu," sagði ég henni, ,,en hérna, taktu þetta . . . ef þú selur það færðu alltaf þúsund lírur eða svo," og ég setti „Ber- etta" í hönd hennar. Svo hoppaði ég líka niður hallan á upphleðsl- unni og hljóp ( áttina að breið- strætinu. í sama bili fór Viterbo lestin framhjá, vagn eftir vagn, með alla glugga upplýsta, spúandi rauðum neistum út í nóttina. Ég stanzaði og horfði á hana hverfa í fjarlægð, og ég hlustaði á hávað- ann þar til hann dó út, að lokum fór ég heim. Næsta dag, á barnum, sagði Rigamonti við mig: „Auðvitað vissi ég, að það var einhver brella í þessu ... En þetta var reglulega góður brandari." Ég leit á hann og tók eftir, að ég hataði hann ekki lengur, þó að hann væri alveg eins og hann hafði verið, með sama ennið, sömu augun, sama nefið, sama hárið, sömu loðnu armana og sömu handtökin við kaffivélina. Skyndilega létti mér, eins og apríl- golan, sem blés á gluggatjöldin, hefði blásið inn í mig. Rigamonti ( OPAL hressir/boetir og koetir! ) OPAL VÖLDIN — VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.