Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 10.09.1964, Qupperneq 46

Vikan - 10.09.1964, Qupperneq 46
---------——- SíwjíesK APPELSÍN S ÍTR Ó N LIME Svalandi - ómissandi á hverju heimili mikinn skort. Listin er dýrt spaug í Svíþióð, margir kallaðir en fóir útvaldir. — Er það ekki líka þröngur hóp- ur í Svíþjóð, sem kaupir og les Ijóðabaekur? — Mjög fómennur hópur. Þeir sem lesa Ijóð eru ólitnir skrýtnir sérvitringar. Það er trú manna, að þeir menn lesi Ijóð, sem hafa orðið fyrir einhverskonar andlegum óföll- um og beðið skipbrot. Fólk heldur að Ijóðalestur komi til af þunglyndi. — Það hafa komið út bækur eft- ir þig? — Þrjór Ijóðabækur. — Hefurðu hugmynd um upplag Ijóðabóka í Svíþjóð? — Ljóðabækur eru gefnar út í mjög smáum upplögum, ég gæti trú- að tvö til þrjú þúsund eintök að jafnaði. — En eru þá ekki fáir, sem fást við Ijóðagerð svo einhverju nemi? — Ekki eftir því sem útgefendur segja. Mér skilst að sex Ijóðabóka- handrit berist á degi hverjum til forlaganna í Stokkhólmi eða rúm- lega tvö þúsund á ári. Hins vegar eru aðeins 250 Ijóðabækur gefnar út á ári. — En hvernig er þá hjá þeim sem skrifa í óbundnu máli? — Það er lítið betra. Fyrst verð- ur maður að vera þekktur og það er mjög erfitt að verða þekktur. Það eru margir um hituna. — Eru þá erfiðleikarnir fólgnir í því að fá einhvern til að gefa út? — Já, fyrst og fremst. — En ef einhver óþekktur en sæmilega pennalipur maður skrifar grein um eitthvert málefni eða við- tal við einhvern þekktan mann, fær hann þá inni fyrir það í blöðunum? — Helzt ekki. Það er afar erfitt að koma slíku efni inn í blöðin. Nema náttúrlega að maður sé þekktur. — Og þá er við því að búast, að menn grípi til ýmissa bragða til að verða þekktir? — Já, enda gera þeir það. Sumir grípa til ýmissa skringilegheita til að vekja á sér athygli. — Mér skilst af þessu, að það sé hreinasta hátíð að vera listamað- ur á íslandi. — Já, ég get trúað því. Ég kann mjög vel við mig hér og langar til að biðja þig að geta þess að lokum, að ég hef ákveðið að halda sýningu á svartlistarmyndum í Bogasalnum haustið 1965. G. S. MORÐ 0G MÖMMULEIKUR Framhald af bls. 29. oney beið mín. Dagstofan var búin gömlum, viruðlegum húsgögnum og frú Deloney, sem var hvít fyrir hær- um, var virðuleg kona og fríð, þrátt fyrir aldurinn — eða öllu heldur, ekki hvað sízt fyrir aldurinn. „Gerið svo vel að fá yður sæti," sagði hún og benti á armstól úr fáguðum viði, en rauð, leðurdregin setan blökk og snjáð af langri notk- un. „Þetta er þægilegur stóll," sagði hún, „faðir minn, Osborne öldunga- deildarþingmaður, tók hann fram yfir alla stóla aðra. Má bjóða yður eitthvað að eta eða drekka eftir alla þessa löngu ferð?" „Nei, þakka yður fyrir." Hún gaf þernunni bendingu um að fara. Ég er hrædd um að þér verðið fyrir vonbrigðum; það er harla lítið sem ég get við það bætt, sem fram kom í skýrslu lögregl- unnar, varðandi sjálfsmorð manns- ins míns sáluga. Samband okkar Luce hafði þá ekki verið náið um ske ið." „Þér hafið þegar bætt nokkrum upplýsingum þar við," varð mér að orði. „Hoffman varðstjóri hélt því nefnilega fram, að um slys hefði verið að ræða." Hendur hennar titruðu lítið eitt. „Það var álitið heppilegra að telja það slysaskot í lögregluskýrsl- unum, annað hefði getað haft pólitískar afleiðingar í för með sér. Því kom lögreglustjóranum og fjöl- skyldunni saman um að hvergi skyldi minnzt á að það væri sjálfs- morð, og vitanlega heldur Hoffman varðstjóri sér við það. Enda sé ég ekki neina ástæður til að breyta því héðan af." „Nema um morð hafi verið að ræða. Það var uppi orðrómur um það." Hún leit á mig, augun voru kannski eilítið hörkulegri, að öðru leyti var svipurinn óbreyttur. „Hver ber slíkt slúður?" spurði hún. „Dóttir Hoffmans varðstjóra kvaðst vita vitni að því. Ef til vill hefur hún sjálf verið vitnið." „Það skal verða tekið fyrir þessa lygi, það skal ég sjá um . . . Þaggað niður í henni, þessari . . ." „Það hefur verið gert. Það var einhver, sem þaggaði niður í Hel- enu síðastliðinn föstudag. Með marg- hleypu. Það er þess vegna, að ég er hingað kominn." Ég þagði stutta stund. „Var faðir yðar enn á lífi, þegar dauða Deloney bar að hönd- um?" „Ég er hrædd um að þér séuð farinn að ryðga í sögunni," setti hún ofan í við mig. „Osborne öld- ungadeildarþingmaður lézt árið 1936 — eða þrem árum áður en eiginmaður minn framdi sjálfs- morð." „Þér minntust á fjölskyldu yðar?" „Ég átti þar við Tish systur mína og Scott heitinn föðurbróður minn, umsjónarmann með eignunum. En það var ég, sem ákvað að einungis skyldi minnzt á þetta sem slys. Til mín var líka leikurinn gerður. — hjónabandi okkar var í rauninni lokið, og ég hafði neitað honum um efnahagslega aðstoð." Hún reis úr sæti, gekk út að glugganum og horfði út yfir trjágarðinn í sínu lit- ríka haustskrúði. „Það urðu margs- konar þáttaskil í lífi mínu, árið 1940. Þá lauk hjónabandi mínu, Deloney framdi sjálfsmorð og Tish systir mín lézt um sumarið og ég ÞAÐ ER SPARNAÐUR í AÐ KAUPA GÍNU Óskadraumurinn við heimasauminn Ómissandi fyrir allar konur, sem sauma sjálfar. Stærðir vi8 allra hæfi. VerS kr. 550,00 og me8 kiæðningu kr. 700,00. BiSjlð um ókeypis leiðarvfsi. Fæst í Reykjavlk hjá: DÖMU- & HERRABÚÐINNI Laugavegi 55 og GÍSLA MARTEINSSYNI Garðastræti 11, sími 20672 Jí? Nei? Hvenær? Þúaundtr kvenna um helm allan nota nú C.D. INDICATOR, svlssneskt retkn- ingstæki, sem reiknar nákvæmlega út þá fáu daga I hverjum rnánuði, sem frjóvgun getur átt sér stað. Lækna- vlsindi 56 landa ráðleggja C. D. IND- ICATOR fyrlr heilbrigt og farsælt hjónabáhd. Skriíið eftir bæklingum vonnn, sem veita allar upplýsingar. SendiS avar- frimerki. C. D. INDICATOR. Deild 2. Pósthólf 1238 Reykjavík. Sendið eftirfarandi afklippu til C. D. INDICATOR, Pósthólf 1238, Rvik, og vér sendum yður að kostnaðarlausu allar upplýsingar. Nafn ............................... Aldur .............................. Heimilisfang ....................... — VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.